Vikan - 19.01.1961, Side 16
Peysa á
ungbarn
Efni: 120 gr þrinnað babygarn,
prjónar nr. 3. Mynztrinu þarf að
vera hægt að deila með 8+5.
1. umf. slétt. 2. uinf. og umferðir,
sem prjónaðar eru á röngu, eru
prjónaðar snúnar, 3. umf. slétt. 5.
umf.: 1 sl., x 3 br., 5 sl. tekin upp
frá x út umf. og enda með 3 br. 1
sl. 7. umf.: 1 sl., x 2 sl., teknar sam-
an, bregð um prjón 6 sléttar. Tekið
upp frá x út umf. og enda með því
að taka 2 1. saman bregða um prjón
2 sl. 9. umf.: slétt. 11. umf.: slétt. 13.
umf.: x 5 sk, 3 br. tekið upp frá x út
umf. og enda með 5 sl. 15. umf.: 5
sl. x 2 sl. teknar saman, bregð um
prjón 6 sl., tekið upp frá x út umf.
16. umf.: snúin.
Byrjið svo aftur á 1. umf.
Fitjað upp 160 1. á prjóna nr. 3
og prjónað garðaprjón 4 umf. Síðan
er prjónað mynztur fyrir utan 5
fyrstu og síðustu lykkjurnar, sem
prjónast með garðaprjóni alla leið.
í fyrstu umf. er aukið í 15 1. með
jöfnu millibili. Prjónað er áfram
þar til komnir eru 14 cm, en þá er
fellt af fyrir handvegum, þannig:
prjónaðar 75 L, felldar af 8 L,
prjónaðar 42 1. Geymið svo prjónið,
sem búið er, á meðan ermarnar eru
prjónaðar.
Ermar: Fitjaðar upp 44 L, og
prjónað garðaprjón 6 umf. Síðan er
prjónað mynztur. í 1. umf. er auk-
ið út 9 1. með jöfnu millibili. Aukið
svo út 1 I. hvoru megin í 6. hverri
umf. þar til 65 1. eru á. Þegar ermin
mælist 15 cm er fellt af hvoru meg-
in 6 1. Hin ermin er prjónuð eins.
Síðan eru öll stk. prjónuð saman
um leið og byrjað er á garðaprjóni.
Prjóna fyrst hægra framstk., aðra
ermina, bakið, hina ermina og
vinstra framstk. Prjónið garðaprjón
4 umf., í allar lykkjur. Þá er prjónað
slétt prjón og jafnframt tekið úr,
þannig: Prjóna 40 L, 2 sl. teknar
saman, 1 1. tekin fram af óprjónuð,
1 1. prjónuð, óprjónuðu lykkjunni
steypt yfir þá prjónuðu. Prjóna 49
1., 2 sl. teknar saman, 1 1. tekin
fram af óprjónuð o. s. frv.
Prjóna 71 1. 2 sl. teknar saman,
1 1. tekin fram af óprjónuð o. s.
Framhald á bls. 29.
Brmið með
pressugeri
ENSK PRESSUGERSKAKA.
1 kg hveiti, 250 gr smjörlíki, 100
gr sykur, 1 tesk. salt, 2% dl
mjólk, 50 gr pressuger eða 5 tesk.
þurrger, kúrenur og rúsínur,
eplamauk, kanill, sykur.
Hveitið er sáldað í skál, 14 hluti
tekinn frá. Sykri og salti blandað sam-
an við. Smjörlíkið mulið í. Vætt i
með egginu og pressugerinu sem áður
er hrært út með volgri mjólkinni.
Hrært vel saman. Deigt stykki lagt
yfir skálina og deigið látið lyfta sér
á volgum stað um það bil 1 klst. eða
þar til það hefur lyft sér um helm-
ing. Hnoðað með því sem eftir er af
hveitinu, rúsinum og kúrenum. Skipt
í þrjá hluta.
1. Mótað í lengju sem er fyllt með
eplamauki eða öðru góðu mauki.
Lögð saman. Klippt sem með-
fylgjandi mynd sýnir og kanil-
sykurblöndu stráð yfir.
2. Hnoðað með 1 tesk. af kardi-
mommum og ef til vill dálitlu
súkkati. Rúllað í þrjár lengjur,
fléttað. Sett í hring á plötu eða i
mót.
3. Skipt í tvær lengjur sem eru rúll-
aðar og snúnar saman og látnar
á plötu eða í mót á sama hátt og
fléttan. Það er einnig gott að fylla
PtlsAr
t. d. eina kökuna með vanilju-
kremi.
Bakað við fremur hægan hita þar
til kökurnar hafa lyft sér og eru
fallega gulbrúnar, um 25 mín. Lengj-
una og fléttinginn er fallegt að pensla
með sykurvatni, volgu sírópi eða
hunangi. Ofan á þriðju kökuna er
sett flórsykursbráð og saxaðar
möndlur.
HVEITIBOLLUR, HOItN,
SNÚÐAR o. fl.
500 gr hveiti (eða hveiti og heil-
hveiti til helminga), 75 gr smjör-
líki, 1 tesk. salt, 1 msk. sykur, 50
gr pressuger.
Búið til á sama hátt og deigið í
pressugerskökuna, hnoðað, mótað í
(rúnnstykki) lítil hveitibrauð, bollur,
horn eða snúða, sem eru látin lyfta
sér á volgum stað. Stykki lagt yfir
plötuna á meðan. Penslað með út-
hrærðu eggi eða mjólk og bakað við
hægan hita.
Pressugershorn (sjá mynd) er gott
að vefja upp með reyktu svínakjöti
(skeinku) þunnum stieiðum, hangi-
kjöti eða osti. Borið fram nýbakað.
Framhald á bls. 27.
Pelsar eru eins og allar konur vita alltaf í tizku, en sniðin og
skinnin eru ekki alltaf þau sömu. Nú í ár eru kvartpelsar mikið
í tizku ef svo mætti að orði komast og undantekningarlaust eru
þeir allir með stórum kraga, og það oft mjög stórum. Ég býst við
að fáar ykkar hafi uppgötvað hvað annað tízkufyrirbrigði í ár,
perlufestarnar, fara vel við pelsa. Herðaslár, ,,Cape“, eru yfirleitt
með ermum. Vinsælustu skinnin eru minkur, mörður og blárefur.
H,érna eru nokkrar myndir af pelsatízkunni í ár.
Hreinsunarvörur
Núna eftir jólaannirnar er
ekki seinna vænna að liefja
herferð gegn öllum óhrein-
indum og blettum, sem safnazt
hafa saman yfir hátíðarnar
og þá ætlum við, svo að þið
þurfið ekki að fara að gá á
rifnum blöðum hér og þar að
blettaráðum og síðan að
blanda og mixa, að kynna fyr-
ir ykkur ýmsar nýjungar á
sviði lireinsunarefna og við
húumst fastlega við að þær
komi í góðar þarfir.
Þá er fyrst að telja hletta-
vötn í plastflöskum og nýj-
ungin er sú að í liverri flösku
er vatn fyrir aðeins eina teg-
und bletta.
Blóð-blettavatn fjarlægir
örugglega og mjög auðveld-
lega alla blóðbletti. Einfalt í
notkun.
Ullarhreinsunarefni hreins-
■ ar alla bletti úr bæði
baðmull. Einnig er hægt að
hreinsa með því perlon, nælon og lín.
Blek-blettaduft, hreinsar alla blek-, raka- og myglubletti. Áður
en þetta efni er notað verður að reyna litarþol efnisins á lítið
áberandi stað.
Ryðhreinsari, fjarlægir örugglega allt ryð af málmum og króm-
uðum hlutum. Ef mála á einhvern hlut eykst viðloðun hans, eftir
notkun ryðhreinsarans.
Ryðblettavatn fjarlægir ryðbletti úr öllum efnum nema þeim,
sem ofin eru með gleri eða málmum.
Litarfjarlæging fjarlægir bletti, sem stafa af ávöxtum, grasi,
rauðvini og m. fl. Með honum má hreinsa allt, en gæta verður
Framhald á bls. 27.
16 VIKAN