Vikan - 19.01.1961, Page 21
óskamyndin
Rex Gildo
Rex Gildo fæddist 2 júlí 1939 í
Miinchen og er því rúmlega 21. Und-
anfarið ár hefur heyrst æ meira í hon-
um á plötum og lengi var unnið að
þvi að hann léki og syngi með Conny
í nýrri mynd. En það varð litið úr
því nema leikurinn og Rex tók sig Því
til og I félagi við Heidi Brúhl söng
hann og lék. Sú mynd heitir „Mit 17
weint man nicht“ og það útleggst á
íslenzku, að maöur grætur ekki þegar
maður er orðinn 17 ára. Enda má
gera ráð fyrir gríni, en ekki gráti í
þeirri mynd.
hlj dmlist
Ef Louis Armstrong er konungur
jassins, þá er Ella Fitzgerald drottn-
ingin. Ella er fædd í Newport News
í Virginiu. 1934 tók hún þátt
í söngkeppni i Apolli Theater
í Harlem og þar má segja að hún
hafi komið inn á jasssviðið og ekki
farið þaðan aftur. Chick Webb réði
hana upp úr því. Bráðlega naut hún
mikilla vinsælda ekki sízt vegna út-
varpa(þátta hennar með hljómsveit
Benny Goodmans Hún var fastráðin
hjá Chick Webb, en 1939 lézt hann og
Ella Fitzgerald
hún tók þá við stjórn hljómsveitarmn-
ar. Það samstarf leystist upp, þegar
flestir af leikurunum voru kallaðir i
herinn 1942. E’ila hefur að vísu farið
mjög út fyrir jássinn í mörgum svo-
kölluðum kassalögum, en það er með
hana, eins og Louis, það er alveg sama
hvað þau syngja, þau eru alltaf góð.
Ella hefur ferðast víða með „Jazz at
the Philharmonic”. Sérstaklega hefur
henni verið tekið vel í Norður-Evrópu.
Við Islendingar getum víst státað af
flestum og beztum karlakórum í heimi
miðað við fólksfjölda. Skemmst er að
minnast för Karlakórs Reykjavíkur
til Vesturheims og viðtökum þeim er
hann hlaut þar. Karlakórinn Fóst-
bræður hefur einnig komið víða við
og hann er stofnaður 1916, sem karla-
Það eru alltaf læti í vesturbænum
(West Side) í New York. Þar eru
skuggahverfin, hættulegu göturnar,
skúmaskot glæpamanna. Á nóttunni
eru háðir harðir bardagar milli hinna
ýmsu ribaldaflokka og enginn heiðar-
legur borgari treystir sér á kvöldin i
það hverfi. En — seinustu vikurnar
hefur allt verið með öðrum blæ i West
Side. Á nóttunni er kyrrð og ró. E’n á
daginn láta leðurstakkarnir öllum ill-
um látum og hafa undirleik.
Hvað hefur komið fyrir? Jú, kvik-
myndafélag hefur slegið upp tjöldum
sinum þarna og þvi hefur heppnast
það, sem New York búar hafa haldið
að væri ómögulegt. Kvikmyndafélag-
ið hefur komist að samkomulagi við
töffana, að hafa mánaðar vopnahlé.
Og það sem meira er. Þeir hafa verið
ráðnir sem tæknilegir ráðunautar.
Þeir kenna nú leikurunum alla her-
list sína og þeir útfæra hana svo i
kór K.F.U.M. en breytti um nafn 1936.
Hann er því 45 ára á þessu ári og er
það sæmilegur aldur. Á þessari plötu
syngja þeir innlend.og erlend lög með
Kristni Hallssyni, sem einsöngvara og
Jón Þórarinsson stjórnar. Undirleik
annast Carl Billich.
dansi. Það er verið að kvikmynda
„WEST SIDE STORY.” Við könnumst
þegar við ýms lögin, þau hafa verið
leikin undanfarin ár. Fréttir hafa
borizt af leiksigrum á Brodway Og í
London gerði söngleikurinn mikla
lukku. Því hefur verið jafnað saman
við „My Fair Lady“ að vinsældum og
nú er meiningin að kvikmynda allan
hasarinn. „WE’ST SIDE STORY” er
nokkurs konar nýtízku útgáfa á
„Romeo og Júlíu,” sem fjallar um
unga og vonlausa ást og hatramma
ættardeilu. 1 þessari útgáfu er sagt
frá með söng og spili og dansi. Þetta
er samsetningur ballets og óperettu.
Allir leikararnir þurfa að kunna að
dansa. E’f þeir geta ekki sungið sóma-
samlega, þá eru bara notaðar raddir
atvinnusöngvara, sem tryggja gæðin.
Natalie Wood hreppti annað aðal-
hlutverkið og voru þó margar um
plássið. Ástæðan fyrir því hvað vera
sakleysislegt útlit, leik og danskunn-
átta. Hún hefur nefnilega stundað
ballett í tíu ár. 1 kvikmyndinni er
hún María, fátæka innflytjenda-
stúlkan frá Puerto Rico og systir
forsprakka innflytjendatöffklíkunnar.
Hún verður ástfangin af foringja inn-
fæddra Kana, sem von er. Sá heitir
Riff og er leikinn af Russ Tamblyn.
Natalie fær litlar 300.000.00 fyrir leik
Natalie Wood.
sinn og er það í dollurum. Frétzt hef-
ur að tæknilegu ráðunautarnir hafi
farið fram á allsæmilegar fjölskyldu-
bætur sér til handa fyrir að hafa nú
einu sinni verið góðu strákarnir.
Einn mesti skákmeistari 18 aldar-
innar, hinn þekkti snillingur, Phili-
dor, var um skeið skákkennari Lúð-
vigs konungs 16. Er þeir höfðu telft
saman í mánaðartíma óskaði kóng-
urinn eftir áliti kennarans á skák-
hæfileikum sínum. Og Philidor, sem
var gæddur ríkri herkænsku við skák-
borðið, var ekki síður góður dimplo-
mat i lífinu og svaraði: Það eru til
þrenns konar skákmenn: Þeir sem alls
ekki geta telft — Þeir, sem tefla illa —
og þeir sem tefla vel. Yðar hátign,
þér hafið Þegar færst upp i 2. flokk.
Islendingar telfdu við Indverja I
Leipzig og töpuðu, 1 — 3. Hér kemur
ein stutt tapskák íslendinganna.
Frönsk vörn.
Hvítt: Guðmundur Lárusson.
Svart: Seth.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5
5. a3 Ba5 (Þessi leikur kemur frá
sjálfum Botwinnik, en venjulegri og
þægilegri leikur er 5. — Bxc 3) 6. b4!
cxd4 7. Dg4 (Þannig tefldi einnig
Smyslow á móti Botwinnik, en betra
hefur reynst 7. Rb5 Bc7 8. f4 og síðan
Rf3) 7. — Re7 8. bxa5 dxc3 9. Dxg7
Hg8 10. Dxh7 Rb8-c6 11. Rf3 Dxa5?
12. Bf4. (Hvítur undirbýr Rg5, en sú
áætlun tekur bæði of langan tíma og
reynist árangurslítil).
12. — Da4! 13. g3 Bd7 14. Rg5 o-o-o!
15. Rxf7 Rg6! 16. Rxd8 De4 17. Be3
Hxd89 18. Hgl Rc6xe5 19. Be2 Bea4!
20. Kfl Bxc2 21. Bxa7 Bd3 22. Dh5
Re5-f3 23. Bxd3 Rf3-d2 mát.
Undramennirnir, Tal og Fischer
sýna hvernig á að tefla.
Skákin er einnig telfd á síðasta
Olympíuskákmóti í Leipzig.
Hvítt: Fischer.
Svart: Tal.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5
5. a3 Ba5 6. b4 cxd 7. Dg4 Re7 8. bxa5
dxc3 9. Dxg7 Hg8 10. Dxh7 Rb8-c6
11. Rf3 Dc7! (Hér skilur á milli. Tal
segir sjálfur: „Svartur má ekki leyfa
sér að leika 11. — Dxa5, þvi þá fengi
hvitur hættulega sókn með 12. Rg5“).
12. Bb5 Bd7 (Ef sv. leikur 12. — Hxh2,
fengi hv. sókn eftir Kfl og Hgl.) 13.
o-o o-o-o 14. Bg5 Rc6xe5! 15. Rxe5!
Bxb5! 16. Rxf7! Bxfl 17. Rxd8 Hxg5
18. Rxe6 Hxg2 19. Khl! De5 20. Hxfl
Dxe6 21. Kxg2. Jafntefli.
kvikmyndir
VIKAN’ 21