Vikan - 19.01.1961, Qupperneq 35
Stéttaskipting
Framhald af bls. 5.
— En segjum nú, að sonur þessa
sama ágæta borgara, sem væri jafn
bráðgáfaður og Þú segir stúlkuna
vera, trúlofaðist stúlku, sem ynni á
saumastofu eða væri við nám í hár-
greiðslu. Mundi það gegna sama
máli?
— Ekki alveg. Það væri að visu
ekki gott, en engan veginn sambæri-
legt við hitt dæmið. Þegar þau gift-
ust, mundi hún hætta á saumaverk-
stæðinu eða á hárgreiðslustofunni og
flytjast heim til hans til þess að verða
konan hans. Þá er hún ekki hár-
greiðslukona eða saumastúlka lengur.
— Finnst þér stéttaskiptingin hafa
mikla ókosti?
— Nei, mér finnst hún sjálfsögð
og eðlileg. Það er ómögulegt, að allir
séu á sama bás og það er búið að
halda alltof lengi i þessa hugsjón, að
allt sé jafnt og slétt og enginn megi
skara fram úr. Útkoman verður bara
sú, að allir verða jafnir i lágkúrunni
og lubbaskapnum. Það er bara verst,
að þessi umrædda stéttaskipting er
svo óráðin og reikandi, að það veldur
oft óþægindum. En ég undirstrika
það, að mér finnst miklu betra, að
hver umgangist sína líka.
— Væri ekki einmitt þroskandi, að
umgangast fólk, sem hefði ólíkar lífs-
skoðanir, aðra reynslu og frábrugðna
menntun?
— Það má vel vera og ég viður-
kenni, að mér finnst ágætt að um-
gangast stráka, sem ekki eru í skóla.
Mér finnst að mörgu leyti hvíld í því.
— Er það vegna þess, að þá þarft
þú ekki að leggja þig í framkróka
um að tala gáfulega?
—- Já, það er að nokkru leyti vegna
þess og svo líka hi-tt, að þá þarf mað-
ur ekki að hafa svo mikið fyrir því
að hlusta á eitthvað, sem á að vera
gáfulegt.
— Þú ætlar þó ekki að fara að
segja mér, að það sé alls ekki gáfu-
legt, sem þeir segja.
— Þeim finnst það sjálfsagt gott
og það er íyrir mestu. Þú ættir að
sjá þessa gæja héðan úr Menntaskól-
anum, sem hanga á Skallasjoppunni
í Lækjargölunni. Þeir stritast við að
vera þar hverja tómstund svo ailur
heimurinn geti séð, að þeir þurfi svo
sem ekki að líta í bók og þarna eyða
þeir tímanum við hreystisögur um
það, þegar þeir voru teknir upp síð-
ast — algjörlega ólesnir auðvitað —
og sneru sig út úr málinu með frá-
bærri skerpu, sem þeim einum er lag-
in. Það er hlægilegt, því allir vita að
það er ekki hægt að komast gegnum
Menntaskólann, nema lesa þó nokkuð
mikið og þessir „gáfnahestar" vaka
á næturnar heima hjá sér með fæt-
urna niðri í köldu vatni til Þess að
sofna ekki meðan þeir lesa lexíurnar
sinar. Svo er það svo skrýtið, að hin
algjöra andstæða við þessa mennta-
skólaunglinga safnast helzt saman á
sjoppu í Lækjargötunni, sem er við
hliðina á Skallasjoppunni og það þarf
ekki annað en fara þangað til þess
að sjá þessi umtöluðu dæmi.
— Ég vil fá nákvæmari greinargerð
um það, hvers vegna Þér finnst að
mörgu leyti þægilegra að umgangast
iðnsveina en þá, er gengið hafa
menntagyðjunni á hönd. Mér finnst
vera hálfgerð mótsögn i þessu, þar
sem þú tilheyrir sjálf þeirri stétt,
sem lýkur löngu skólanámi.
— Ég meina, að það er þægilegt
aðeins um stundarsakir og án þess
að til náinna kynna sé stofnað.
Strákar, sem byrjaðir eru að vinna,
hafa eðlilegri skoðanir og þeir eru
ekkert að braska við að vera gáf-
aðir i samtölum við kvenfólk. Þetta
háfleyga hjal Þeirra hér í Mennta-
skólanum er álika leiðinlegt eins og
skoðanir þeirra eru flestar öfgafullar
og fáránlegar og gersamlega úr sam-
bandi við hið lifandi líf. Mér finnst
líka skólapiltar á ákveðnu aldurs-
skeiði hafa mjög leiðinlega afstöðu
til stúlkna og það er alveg ólíkt, hvað
hinir „vinnandi" skulum við segja,
hafa þar eðlilegri og jákvæðari af-
stöðu. Þeir eru yfirleitt miklu kurt-
eisari og skemmtilegri á eðlilegan
hátt.
— Það kemur á óvart að heyra
það, að þeir sem eru að mennta sig
skuli kunna sig verr.
-— Já, én svona er það. Sumir eru
svo óskaplega kurteisir, að það geng-
ur út í öfgar og þeir ganga svo fínt
klæddir og eru nýkomnir úr svo
skemmtilegri ferð til útlanda, pem-
píulegir með sifellda gullhamra og
gersamlega óþolandi. Eg neita því
ekki, að það eru til ákaflega leiðin-
legir „gæjar“ úr hinum hópnum, en
Þeir eru alltaf eðlilegri, hvað sem
þeir gera.
—- Nú segir þú, að þessar „stéttir"
meðal unga fólksins, hafi mjög lítið
samneyti. E'n hvernig er það þá á
skemmtistöðunum. Sækja þá þessir
ákveðnu hópar alltaf sömu skemmti-
staðina?
— Á skemmtistöðunum blandast
fólkið alltaf talsvert mikið. Hvar eig-
um við að byrja? Til dæmis i Vetr-
argarðinum. Þangað fara sjómenn,
sem eru í landi, skinnjakkalýður,
stútungskellingar og skólastrákar,
sem ætla á blindfylliri og vilja þá
ekki láta sjá sig á sæmilegúm stöð-
um. Unga fólkið, sem við höfum talað
um, sækir mest tvo staði: Sjálfstæð-
ishúsið og Þórskaffi. I Sjálfstæðis-
húsinu sér maður frekar unga krakka,
en þeir eru yfirleitt frá betri heim-
ilum. Skólastelpur fara þangað mik-
ið en strákarnir fara fremur í Þórs-
kaffi.
— Hvers konar fólk er þá í Þórs-
kaffi að öðru leyti?
— Þar er mjög mikið af millistétt-
arfólki, afgreiðslustúlkur úr búðum,
hárgreiðsludömur og skrifstofufólk.
Karlmennirnir þar fyrir utan skóla-
strákanna eru líka úr millistétt.
—- Ég fer nú helzt á Borgina. Mér
þætti gaman að heyra, hvaða fólk
þú telur sækja þann stað?
— Það er alls konar fólk, til dæm-
is skólafólk, sem lengra er komið,
sömuleiðis krakkar, sem eru trúlof-
aðir og mikið af alls konar skrif-
stofufólki.
— Þú ert ekki búin með alla stað-
ina enn, — eða eru mörkin kannski
ekki eins greinileg þar?
— Jú, þau eru greinileg í Þjóðleik-
húskjallaranum. Ef eitthvað er þar
af ungu fólki, þá eru það börn betri
borgara. í Lido er yfirleitt kúltiverað
og snyrtiiegt fólk af ýmsu tagi, en
Klúbburinn er svo nýr, að það verður
ekki séð ennþá, hvaða hlutverki hann
gegnir.
— Þú dregur ekki dul á það, að
þér finnst stéttaskiptingin æskileg.
Viltu nefna mér eitt dæmi um það,
svo að mér gangi betur að trúa?
— Við skulum segja, að ég eigi
kunningja úr hópi skólafólks og aðra
úr hinum hópnum og svo býð ég í
partý. Þá er eins og þetta fólk geti
ekki sameinazt og útkoman verður
vandræðaskapur og leiðindi. Ég held,
að stéttaskiptingin sé nauðsyn og mér
finnst allt benda til þess að þessi að-
greining verði mun skýrari þegar
fram líða stundir.
— Við skulum láta það kyrrt
liggja, en viltu svara annarri spurn-
ingu, sem þó er viðamikil: Hvað ger-
ir ungt fólk í tómstundum sinum?
— Það er satt, að sú spurning er
viðamikil og ég held, að það verði
efni i annað viðtal, — en ekki skal
standa á mér að svara.
gs.
IBÚÐARHUS
n
VERKSMI-ÐJUHUS
FRVSTIHÖS
Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár-
um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður
-sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt
er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota-
legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað).
Lækjargötu . HafnarfirÖi . Sími 50975.
VIKAN 35