Vikan - 06.04.1961, Blaðsíða 11
Á þessum síðum sjáið þið
Sigurrós Arthúrsdóttur frá Siglu-
firði. Það er okkur til mikillar
ánægju að hafa fengið einn ágæt-
an fulltrúa fyrir Siglufjörð og
um leið Norðurland, og vonandi
eiga fleiri eftir að bætast í hóp-
inn þaðan.
Sigurrós er átján ára gömul
og á heima á Túngötu 10 á Siglu-
firði. Hún er fædd þar og upp-
alin, dóttir hjónanna Stefaníu
Guðmundsdóttur úr Skagafirði
og Arthúrs Sumarliðasonar, verk-
stjóra á Siglufirði.
Þar á Siglufirði hefur Sigur-
rós unnið öll hugsanleg störf,
sem fyrir koma, en mest að verzl-
unarstörfum. Hún tók gagn-
fræðapróf frá Gagnfræðaskólan-
um á Siglufirði, og þar að auki
nam hún við Húsmæðraskóla
Iteykjavíkur og útskrifaðist
þaðan.
Sigurrós kvaðst ekki hafa
iðkað íþróttir að ráði, en sagðist
hafa garnan af sundi og skíða-
íþróttinni, eins og Siglfirðingum
er í blóð borið. Hún er bláeyg
og ljóshærð, 52 kg að þyngd og
168 cm á hæð. Onnur mál í cm:
brjóst 91, mitti 55, mjaðmir 92,
háls 30, ökkli 21 cm.