Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 06.04.1961, Qupperneq 18

Vikan - 06.04.1961, Qupperneq 18
Blaðafulltrúi. Þessi ungi maður heitir Elías B. Halldórsson og er einn þeirra, sem sýnt hafa þá dirfsku að hengja upp myndir sínar á opinberum vettvangi. Það er aldrei að vita, nema það séu stórtíðindi, þegar ungur maður sýnir í fyrsta skipti, það á tíminn eftir að leiða í ljós. Elias sýndi eingöngu svartlistarmyndir og það er 'að visu ekki nýjung, en sjaldgæft samt og ber að fagna því, ef fleiri listamenn aðhyllast það á- gæta listform Því hefur ekki verið mikill sómi sýndur hér meðal hinna upprennandi listamanna, enda er erfitt að sleppa ..billega" frá þvi, eins og margir hafa gert í hinni litauðugu abstraktlist. Það þykir yfirleitt góð latína að ráðast veigrunar- laust að byrjendum á þessu sviði og tína til hitt og annað, sem betur mætti fara. Þegar hinir hálærðu gagnrýnendur koma fram fyrir þjóðina með fjálglega orðaðar skoðanir og dóma um verkin, verður sá mis- brestur, að þeir eru sjaidan sammála og einn telur þeira áfátt um byggingu, en annar segir hana í lagi og telur litasamsetningar fyrir neðan allar hellur. Þá fer að vandest málið fvrir Pétri Páls- syni og .Tóni Jónssyni Á hverju eiga beir að taka mark? Vænlegast yrði fyrir þá að sækja sýningar að staðaldri og mynda sér eigin skoðanir, en láta ekki færa sér þær verksmiðjuunnar. I svartlistarmyndum Elíasar B. Halldórssonar var sitt af hverju sem lofar góðu. Hann nær ákveðnum, impressionistiskum áhrifum, sem gefa myndum hans líf. í svipmóti þeirra er eitthvað nýtt og persónulegt, sem getur orðið sterkt og safamikið með þroska og aldri listamannsins. Ekki er mér kunnugt um iita- meðferð Elíasar, og verður forvitnilegt að sjá, þegar hann efnir til málverkasýningar. Heimsmeistari. Þessi ungi maður ætlar sér að verða heimsmeistari í hnefaleikum seinna meir. Og til þess að geta æft sig í tæka tíð fékk hann þessa hanzka í afmælisgjöf frá pabba sínum. Og faðirinn er enginn annar en ^ngemar Johannsson hnefaleikakappi. Drengurinn heitir Thomas og er fimm ára. > Pierre Emil Salinger heitir blaðafull- trúi Kennedys. Og eitthvert fyrsta verk- cfni hans var að svara blaðamönnum í sambandi við barnsburðinn í Hvita Hús- inu. Honum fórust orð á þessa leið: „Æ, þetta er eins og ungbarn . . . það eru einhver hár . . . hárið er dökkt . . . mér gengúr ekki vel að lýsa börnum.“ Salinger er sjálfur þriggja barna faðir. Hann er þrjátíu og fimm ára að aldri og hefur stundað l)laðamennsku í ein fimmtán ár. Hann komst í samband við Robert Kenne- dy vegna starfs síns við rannsóknir á hlut- deild glæpamanna í verkalýðshreyfing- unni, en þar óðu þeir uppi og þorði eng- inn að hrófla við þeim. Robert sem hefur slíkar rannsóknir með höndum fyrir þing- ið, réð hann sérlegan starfsmann sinnar nefndar. Og þar komst hann í kynni við .Tohn Kennedy núverandi for- seta. BOR GARSTJ ÓRAR Við íslendingar erum ekki einir um það, að hafa konur í borgarstjóraembætti. 1 Aabenraa í Dainmörkfu er varaborgar- stjórinn kona. Camma Larsen-Ledet heitir hún og er tengdadóttir bindindisfrömuðar- ins fræga, Larsen-Ledet. Hún er líka for- maður tækninefndar borgarinnar, sem hefur eftirlit með vatns-, rafmagns- og gasveitunni. Til þess að að geta annað öllum skyldum sínum, en þær eru ekki fáar, þá hefur hún tekið tæknina í sína þjónustn og ekki á þann hátt, sem Reyk- víkingar gætu búizt við, að þcirra lcvcn- borgarstjóri hefði gert. Hún fer nefnijega allar sínar ferðir á Vespu og þarf því ekki að hafa bílstjóra hennar vegna. Skallar og kynþokki. Síðan Yul hinn sköllótti Brynner geystist fram á sjónarsviðið, hefur hagur hinna mörgu, sem við hárskort búa batnað mjög. Að vísu höfðu sálfræðingar áður leitt í ljós með fyrirspurnum hjá konum, að hárlitlir karlmenn þættu síst verri en þeir sem við Koníaksflaska Gissurar. mikla hárprakt búa. En annað hefur líka verið haft fyrir satt. Og það er að Þessir menn þykja alveg sérstaklega kvenhollir. Fjórmenningarnir á myndinni, sem eru að d 'st að ensku kynbombunni Diönu Dors eru enskir blaðamenn. FO RSET ASKIPTI í janúar fóru fram forsetaskiptin í Bandaríkjunum. Þá tók við embætti fyrsti kaþólski forsetinn í sögu Banda- ríkjanna. Og öllum er kunnugt um konu hans Jackie, en hún hefur getið sér ýmislegt til frægðar á undanförnu ári. Hér er hún ásamt konu Eisen- howei's fyrrverandi forseta og takast þær hjartanlega í hendur við skiptin. 1B VIKAN.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.