Vikan - 06.04.1961, Blaðsíða 32
TVtlli pnns
Ungfrú Yndisfríð
Ungfrú Yndisfrið er komin á dagbókarald-
urinn, og á hverjum degi skrifar hún nokkr-
ar síður í dagbókina um atburði dagsins.
Hún hefur það fyrir venju að geyma dag-
bókina sina í Vikunni, en henni gengur
mjög illa að muna, hvar hún lét hana. Nú
skorar hún á ykkur að hjálpa sér og segja
sér blaðsíðutalið, þar sem dagbókin er. Ung-
frú Yndisfríð veitir verðlaun og dregur úr
réttum svörum þremur vikum eftir, að þetta
blað kemur út. Verðlaunin eru:
Carabella undirföt.
Nafn.
Heimilsfang.
Sími.........
Síðast er dregið var úr réttum lausnum.
hlaut verðlaunin:
RAGNHEIÐUR HARALDSDÓTTIR,
Sjólyst Stokkseyri.
óður. Hamingjan góða, hvað þetta var langt.
Hann varð þreyttari og þreyttari í litlu vængj-
unum, og að lokum só hann, að hann varð að
gefast upp. Varlega sveif hann niður aftur, og
síðast var hann afutr kominn í topp eikitrés-
ins.
— Uhu, uhu, heyrði hann sjálfan sig hrópa
út í næturmyrkrið sér til mikillar skelfingar,
og þvi hélt hann áfram alveg þar til dagaði.
Þá byrjuðu augnalokin að þyngjast, og svo féll
hann í svefn standandi á trjágrein. En það stóð
ekki lengi yfir, því að nú ýtti einhver við hon-
um.
— Palli prins, Palli prins, hrópaði einhver.
Palli hrökk upp, fyrir framan hann stóð
stjarna 777 og horfði strangleg á hann. Þá
glaðvaknaði Palli undir eins. Ó, en hvað ég
er ánægður, ætlaði hann að hrópa, en það
varð aðeins að uhu, uhu.
Já, sagði stjarna 777, þarna sérðu hvað þú ert
orðinn. Friðlaus ugla, sem aðeins getur sagt
uhu, uhu. Það eru hvorki til dýr né fuglar,
sem skilja þig núna. Þú eignast hvergi vini.
Hvers vegna varstu ekki varkárari?
Palli horfði skömmustulegur upp yfir gler-
augun. Hann vissi ekki, hvað hann átti að segja.
Allt i lagi, hélt stjarnan áfram, ég skal ekki
vera reið við þig lengur, því að það er ekki
auðvelt að berjast við tröllatöfrabrögð. Gleraug-
un tek ég nú samt til baka, því að þau getur
ekki friðlaus ugla notað. En til allrar hamingju
höfum við eitt tækifæri enn, og getum við not-
að það tækifæri, missir tröllkarlinn vald sitt
yfir þér að eilífu. Tækifærið er ekki mjög ein-
falt, en það er þarna, og það er nóg fyrir mig.
Fylgstu nú vel með. Hérna er litill pakki. í
honum er lítill spegill með gullramma og lítið
saumaskrin. Ef þú getur fyrir nýárskvöld
fundið litla stúlku, sem opnar saumaskrinið
áður en hún lítur í spegilinn, þá ertu laus við
galdrana á nýárskvöld klukkan tólf ... Ef svo
fer ekki, — nei, það skulum við ekki hugsa um.
Nú verður þú að gera það sem eftir er. Héðan
I frá get ég ekki hjálpað þér meir. Gangi þér
vel. Og einn, tveir og þrír, stjarnan var horfin.
Palli prins andvarpaði. Allt í lagi, nú var
að duga eða drepast. Og með röskum vængja-
tökum flaug hann inn yfir landið, með sauma-
skrínið í annarri klónni og spegilinn í hinni.
Loks kom hann að þéttbýlli sveitum, og i
hrekku nokkurri kom hann auga á þrjár falleg-
ar litlar stúlkur. Ánægður stefndi hann til
þeirra, kannski var ein af þeim sú sem hann
leitaði að.
Nei, sjáið þið þennan fallega fugl, hrópuðu
stúlkurnar i kór, um leið og Palli setti sauma-
skrínið og spegilinn varlega niður fyrir fram-
an þær. Þær stukku fljótlega að speglinum og
byrjuðu að slást um hann til að geta speglað
sig.
Palli flaug sorgmæddur í kringum þær, en
fór svo og tók spegilinn og skrínið, þegar þær
voru orðnar leiðar á þvl að spcg'Ia sig og héldu
áfram að leika sér. Síðan flaug hann áfram og
hugsaði málið.
Hvar skyldi eiginlega finnast stúlka, sem full-
nægði þessum kröfum? Var nokkur stúlka til,
sem mundi líta fyrst í spegilinn? Og hann
flaug þungt hugsandi yfir fjöll og dali. Skyndi-
lega datt honum nokkuð í hug. Hvernig væri
að fara heim i konungshöllina og athuga hvernig
málum liði þar? Og hann tók stefnuna beint
heþn í konungsrikið.
Framhald í næsta blaði.
32 VIKAN