Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Söluaðilar.: Járn og gler hf - Garðheimar - Húsasmiðjan - Búsáhöld
Kringlunni - Pottar og Prik Akureyri. www.weber.is
Frábært úrval af gjafavörum frá Weber
RAFHLÖÐUSERÍUR henta vel með skreytingum
og passa ofan í ker og glæra vasa. Með slíkum serí-
um er hægt að losna við langar leiðslur auk þess sem
engin þörf er á því að hafa skreytinguna nálægt inn-
stungu.
„Mér þykir afskaplega vænt um þessa kirkju. Faðir minn smíðaði hana fyrir mitt minni og það var alltaf sett ljós í hana á bernsku-heimili mínu. Ég hef það þannig líka,“ segir Steinunn Þými l
ur árum hafi hann búið til eyrna-lokka úr fjöðrum sem hafi alger-lega slegið í gegn og þegar hann hafi verið á hvalveiðiskipuhafi han bú
um til að hylja vírinn.“ Hún segir jólatréð hafa skipað mikilvægansess hjá henni þe
Helgidómur í stofunni með hjörð í kringum sig
Þegar Steinunn Harðardóttir, þjóðfélagsfræðingur og dagskrárgerðarkona, er búin að breiða bómull á
þak gömlu trékirkjunnar og koma fyrir skrauti í kringum hana er orðið jólalegt á hennar heimili.
„Kirkjan hefur heiðurssess hjá mér og eins og sjá má er heil hjörð af fólki og trjám og alls konar dóti í kringum hana,“ segir Stein-
unn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Auglýsingasími
MÁNUDAGUR
14. desember 2009 — 295. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Seljabraut
Hreindýrakjöt
Úrval af villibráð!
Girnilegar
jólauppskriftir
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
Opið til 22
10
STEINUNN HARÐARDÓTTIR
Er með helgidóm í
stofunni um jólin
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Í faðmi fjölskyldunnar
Haraldur Gíslason
tónlistarmaður á 35
ára afmæli í dag.
TÍMAMÓT 20
FÓLK Gáfumannahljómsveitin
The Esoteric Gender vann nýver-
ið alþjóðlega lagakeppni sem
var haldin á Netinu. Hljómsveit-
in er skipuð erlendum nemum
úr Háskóla Íslands og einum
háskólaprófessor.
„Þetta kom okkur mjög á
óvart. Við áttum alls ekki von á
því að vinna þetta,“ segir söng-
konan Lisa Jamesdaughter frá
Manchester. - fb / sjá síðu 28
Íslensk gáfumannahljómsveit:
Með besta lagið
í netkeppni
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON
Bókaður út árið 2010
Vinsældir konungs íslenskrar popptónlistar
eru með ólíkindum og hann þráir frí.
FÓLK 38
Strákar vilja dansa
Ásta Bærings opnar
dansskóla í Reykja-
nesbæ á næsta ári.
Tuttugu strákar hafa
þegar skráð sig til
náms.
FÓLK 38
FJÁRMÁL Ríkisstofnanir greiddu 1,2 milljarða
króna í dráttarvexti frá ársbyrjun 2007 fram
á mitt þetta ár. Stofnanir sem greiddu yfir
milljón króna voru 37 talsins en sex þeirra
bera meirihluta þessa kostnaðar og er upp-
söfnuðum rekstrarhalla undanfarinna ára um
að kenna.
Stofnunum er ekki heimilt samkvæmt
lögum að fjármagna rekstur með lánum eða
yfirdrætti.
Þetta kemur fram í samantekt
Ríkisendurskoðunar fyrir Fréttablaðið um
dráttarvaxtagreiðslur ríkisstofnana. Á síðasta
ári greiddi A-hluti ríkissjóðs, en til hans
heyrir hin eiginlega starfsemi ríkissjóðs sem
fjármögnuð er af skatttekjum, tæpar 650
milljónir króna í dráttarvexti til aðila utan
ríkisins. Þar af námu dráttarvextir sem tengj-
ast bankahruninu með beinum hætti samtals
yfir 150 milljónum króna.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um end-
urskoðun ríkisreiknings 2008 kemur fram
að dæmi er um að stofnanir sem starfa
innan fjárheimilda, greiða engu að síður
umtalsverðar upphæðir í dráttarvexti. Ríkis-
endurskoðun telur nauðsynlegt að tekið verði
á þessum vanda í heild sinni tafarlaust og að
með öllu sé ólíðandi að stofnanir greiði drátt-
arvexti að ástæðulausu. Ríkisendurskoðun
hvetur fjármálaráðuneytið til þess að bjóða
stofnunum sem eiga í verulegum rekstrar-
vanda upp á endurfjármögnun skulda á meðan
unnið er að varanlegri lausn rekstrarvandans.
Nokkrar stofnanir skera sig úr hvað varðar
greiðslu dráttarvaxta. Þær eiga það sammerkt
að bera uppsafnaðar skuldir frá síðustu árum;
aðallega til birgja. - shá
Milljarði sóað í dráttarvexti
Langflestar stofnanir ríkisins greiða dráttarvexti til utanaðkomandi aðila. Nokkrar þeirra greiða dráttar-
vexti þrátt fyrir að afgangur sé af fjárheimildum. 1.200 milljónir hafa farið í súginn síðan 2007.
Stofnun Dráttarvextir 2007 - júní 2009
Landspítali 474 millj. króna
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu 64 millj. króna
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum 55 millj. króna
St. Jósefsspítali, Sólvangur 33 millj. króna
Þjóðleikhúsið 23 millj. króna
Heilbrigðisstofnun Austurlands 22 millj. króna
Landbúnaðarháskóli Íslands 18 millj. króna
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17 millj. króna
Háskóli Íslands 11 millj. króna
DRÁTTARVEXTIR
STOFNANA FRÁ 2007
MANNRÉTTINDI Mannréttindadóm-
stóll Evrópu í Strassborg mun
á næstunni skera úr um hvort
íslenska ríkið gerist brotlegt við
mannréttindi með því að inn-
heimta svokallað iðnaðarmála-
gjald, sem er 0,08 prósent af veltu
iðnfyrirtækja í landinu.
95 prósentum af gjaldinu er
ráðstafað til Samtaka iðnaðar-
ins, hagsmunasamtaka, sem hafa
meðal annars að markmiði að hafa
áhrif á stefnu stjórnvalda.
Einar S. Hálfdánarson hæsta-
réttarlögmaður flutti málið gegn
íslenska ríkinu fyrir Mannrétt-
indadómstólnum í mars. Venjulega
líða 4-5 mánuðir frá því að mál er
flutt þar til dómur fellur. Nú eru
liðnir um níu mánuðir frá því að
málið var tekið til dóms og er því
búist við niðurstöðu fljótlega.
Einar S. Hálfdánarson flytur
málið fyrir hönd félagsmanns í
Meistarafélagi húsasmíða, sem
telur gjaldtökuna brjóta gegn
ákvæðum Mannréttindasáttmála
Evrópu um félagafrelsi, tjáningar-
frelsi og fleira. Hæstiréttur hafði
áður komist að þeirri niðurstöðu
að gjaldtakan væri lögmæt.
„Menn, sem vilja ekki vera
félagar í Samtökum iðnðarins
þurfa samt sem áður að greiða
þetta gjald, þótt þeir séu félags-
menn annars staðar og telji sig
hafa andstæða hagsmuni við Sam-
tök iðnaðarins,“ segir Einar. „Þetta
er keimlíkt félagsgjaldi, þótt það
sé kallaður skattur.“
Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins, segir rangt að líkja iðnaðar-
málagjaldinu við skatt eða félags-
gjald. Samtökin hafi þá skyldu
samkvæmt lögum að verja gjald-
inu til framþróunar og iðnþróun-
ar í landinu. Það sé meðal annars
gert með þátttöku í rekstri Tækni-
skólans og Háskólans í Reykjavík.
- pg / sjá síðu 11
Mál vegna iðnaðarmálagjalds flutt hjá Mannréttindadómstóli Evrópu:
Iðnaðurinn bíður dóms frá Strassborg
HÆGLÆTISVEÐUR Í dag verða
suðaustan 3-8 m/s V-til, annars
hæg breytileg átt. Bjartviðri norð-
an- og austanlands en skýjað með
köflum sunnan- og vestan til. Hiti
víðast 3-10 stig, mildast syðst.
VEÐUR 4
8
4
6
4
7
Enn eitt tapið
Liverpool tapaði
sínum sjötta leik í
deildinni í vetur
er Arsenal
kom í heim-
sókn.
ÍÞRÓTTIR 32
ÉG HLAKKA SVO TIL Á jólasýningu Árbæjarsafns á sunnudögum gefst gestum færi á að fylgjast með jólaundirbúningi eins og
hann fór fram fyrr á árum. Jólasveinarnir líta líka inn og þeir Stúfur og Gluggagægir vöktu lukku hjá yngri kynslóðinni í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Hvað skiptir máli?
„Kjörnum fulltrúum í fagráðum
hefur fækkað mjög hlutfallslega
enda erfitt að raða fimmtán
manna borgarstjórn í sjötíu sæti
fagráða,“ skrifar Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir.
UMRÆÐAN 16
DANMÖRK, FBL Stærsta mótmæla-
ganga í sögu Kaupmannahafn-
ar var farin um helgina í tilefni
af loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem þar stendur yfir.
Yfir 1.200 manns hafa verið hand-
teknir vegna mótmælanna og við-
búnaðurinn er gríðarlegur.
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International hafa gagnrýnt
framgöngu lögreglu og krafist
rannsóknar á atburðunum.
- kóp / sjá síðu 4
Loftslagsráðstefnan:
Tólf hundruð
verið handtekin