Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 10
10 14. desember 2009 MÁNUDAGUR * Þú hringir og sendir SMS á vini þína fyrir 0 kr., 1.000 mín. / 500 SMS á mánuði. Upphafsgjald 0 kr. í skráða vini en 5,90 kr. í önnur númer. Mánaðarverð 1.990 kr. Það er ein faldara en þú heldur að skipta um símafélag. 800 7000 Hringdu strax í dag og kynntu þér kosti Símans. SJÁVARÚTVEGUR Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal gerði í fyrravetur tilraun til að nýta gulldeplu sem fóður í áframeldi á villtum þorski. Tilraunin gafst það vel að hugmynd- ir eru uppi um að leggja áherslu á gulldeplu sem fóður og Álfsfell, annað þorskeldisfyrir- tæki í Djúpinu, hefur bæst við. Huginn VE frá Vestmannaeyjum ætlar að frysta 500 tonn fyrir jól, gefi á sjó. Þessi nýting gulldeplunn- ar sætir nokkrum tíðindum í því ljósi að fisktegundin var ekki veidd hér við land fyrr en loðnuvertíð brást og uppsjávarskipin þurftu að leita sér nýrra verkefna í fyrra, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Gunnvarar. Hann segir tilraunina í fyrra hafa staðfest að þorsk- ur í áframeldi taki gulldepluna sem fóður. Það hafi verið fyrsta skrefið. Hins vegar sé ekki enn þá hægt að fullyrða um hversu gott fóður hún sé í samanburði við loðnu, síld og fisk- úrgang sem nýtt hafi verið hingað til. „Þetta er mjög spennandi, sérstaklega ef hægt er að landa þessu beint til okkar, en það er einmitt hugmyndin,“ segir Einar. Við áframeldi á þorski er eins til tveggja kílógramma þorskur veiddur og færður lif- andi í sjókvíar. Þar er hann alinn í nokkra mánuði og síðan slátrað. Þá hefur hann oft tvöfaldað þyngd sína. Um lítið magn er að ræða á landsvísu, eða um 500 tonn hjá þeim fyrirtækjum sem þetta eldi stunda. Einar segir að í áframeldið noti fyrirtækið á milli eitt og tvö þúsund tonn á ári. „Við verð- um að vita hvað við erum með í höndunum en ef vel gengur skiptum við út öðru fóðri fyrir þetta. Það er líka ánægjulegt að vinna með mönnum sem vilja gera meira með hráefnið en selja það allt í bræðslu.“ Guðmundur Huginn Guðmundsson, skip- stjóri á Huginn VE, segir hafa staðið til að veiða 500 tonn af gulldeplu í fóður en brælur hafi ekki leyft það hingað til. „Það stóð til að landa þessu fyrir vestan. Þeir vilja sjá hvern- ig fiskurinn dafnar af þessu. Ef það er í lagi vilja þeir fá nokkur þúsund tonn til viðbótar.“ Huginn segir gulldepluna vera spikfeitan fisk sem hljóti að henta vel í fiskeldi. „Hann er líka svo smávaxinn að hann er ábyggilega þægilegur munnbiti fyrir þorskinn.“ svavar@frettabladid.is Tilraun til að nýta gulldeplu sem aðalfóður í þorskeldi Hraðfrystihúsið Gunnvör hefur hug á að nota gulldeplu sem aðalfóður í áframeldi á þorski. Tilraun sem hófst í fyrra lofar góðu. Huginn frá Vestmannaeyjum freistar þess að frysta 500 tonn fyrir jól. SLÁTURTÍÐ HJÁ GUNNVÖRU Þorskeldi er góð búbót og miklar vonir eru bundnar við eldið til lengri tíma litið. MYND/VALDIMAR GUÐMUNDUR HUGINN GUÐMUNDSSON GULLDEPLA Gulldepla er lítill fiskur af silfurfiskaætt. Hún er 5-8 sentimetra löng. Hún er miðsjávarfiskur sem finnst frá yfirborðinu niður í allt að 1.500 metra dýpi en er algengust á 150-250 metrum um nætur en við 50 metra á daginn. Hún er algengust í heittempr- uðum sjó í Norður- og Suður-Atlantshafi og lifir á rauðátu. Gulldepla finnst allt í kringum Ísland. GENGIÐ Á VATNI Ungur maður gengur yfir vatn í þar til gerðri kúlu. Myndin er tekin í Dighalipukhuri í Guwahati, sem er höfuðborgin í indverska ríkinu Assam. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Danskir fjárfestar trúa á viðsnúning í efnahagsmálum og taka nú í stórum stíl lán til kaupa á hlutabréfum. Frá þessu greindi danska viðskiptablaðið Børsen fyrir skömmu. Blaðið segir að með Norðmönn- um séu danskir fjárfestar nú þeir áhættusæknustu á Norðurlöndum vegna aukinnar lántöku til hluta- bréfakaupa. Vitnað er til nýrra talna frá Nordnet, stærsta fjár- festingarmiðlara Norðurlanda, sem greint hefur hegðun fjár- festa á þriðja ársfjórðungi þessa árs meðal 300 þúsund viðskipta- vina sinna. Danirnir hafa aukið lánsfjár- mögnunarhlutfall eignasafna sinna um 29 prósent milli árs- fjórðunga og eru sagðir tvöfalt skuldsettari en kollegar þeirra í Svíþjóð. - óká Danskir fjárfestar: Viljugastir til að taka áhættu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.