Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 36
28 14. desember 2009 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
Gáfumannahljómsveitin
The Esoteric Gender vann
nýverið alþjóðlega laga-
keppni sem var haldin á
Netinu. Hljómsveitin er
skipuð erlendum nemum úr
Háskóla Íslands og einum
háskólaprófessor.
„Þetta kom okkur mjög á óvart.
Við áttum alls ekki von á því að
vinna þetta,“ segir söngkonan
Lisa Jamesdaughter frá Manchest-
er. Hljómsveitin, sem spilar seið-
andi rafpopp, sigraði með laginu
Pretty Muted Blue. Keppnin nefn-
ist SEAT og geta notendur síðunn-
ar Sellband.com í hverjum mánuði
kosið eitt lag af þeim tíu sem eru
tilnefnd. Þær hljómsveitir sem
bera sigur úr býtum eru síðan
styrktar til plötuútgáfu. Einnig
geta notendur síðunnar tekið þátt
í að styrkja sveitirnar til plötuút-
gáfu og fá þeir í staðinn hluta af
hagnaði plötunnar.
Lisa fluttist til Íslands árið
2003 eftir að hafa útskrifast sem
hljóðmaður úr listaháskóla Bítils-
ins Pauls McCartney í Liverpool.
Hún skráði sig í nám í skapandi
ritsmíðum við Háskóla Íslands og
kynntist þar Frakkanum Jean-
Christophe Salaün. Saman stofn-
uðu þau hljómsveitina The Esot-
eric Gender og skömmu síðar
bættist við danski trommuleikar-
inn Thomas Brorsen Smidt, sem
stundar meistaranám í kynja-
fræði. „Fyrstu tónleikarnir okkar
voru á Café Rosenberg. Okkur
vantaði stóra trommu og fengum
eina lánaða sem Egill Ólafsson
átti. Mér var bent á að banka upp
á hjá honum og þá gerði ég mér
enga grein fyrir því að hann ætti
heima þarna. Allt í einu mætti
náunginn úr Stuðmönnum til dyra
og hann var mjög vingjarnlegur
og lánaði okkur trommuna,“ segir
Lisa.
Einn meðlimur til viðbótar
bættist við nokkru síðar og það
var Gabriel Malenfant frá Que-
bec í Kanada, sem kennir heim-
speki við Háskóla Íslands. „Hann
er prófessor í háskólanum og við
komumst að því að hann væri gít-
arleikari líka. Það er dálítið fyndið
að hann skuli vera að kenna í skól-
anum og sé núna hluti af hljóm-
sveitinni okkar.“ Það var síðan
upptökustjórinn og hljóðmaður-
inn Tony Platt, sem Lisa kynnt-
ist í listaskóla McCartneys, sem
hvatti þau til að taka þátt í keppn-
inni á Netinu. Hann hefur unnið
með flytjendum á borð við The
Who, Led Zeppelin, Wings, AC/
DC, Metallica og Bob Marley.
The Esoteric Gender er sem
sagt mikil gáfumannahljóm-
sveit. Spurð hvort gáfurnar end-
urspeglist í tónlistinni segir Lisa
að vissulega hafi þær eitthvað að
segja. „Nýjasta lagið okkar fjall-
ar um hvernig bókmenntir hafa
áhrif á okkur og við syngjum líka
mikið um kynjamál. Sumir text-
arnir virka stundum femínískir
en eru það ekki alltaf. Til dæmis
gerði ég einn texta um að konur
drepi karla tilfinningalega,“ segir
hún og hlær.
Hljómsveitin er starfrækt á
Íslandi og lítur hún á sig sem
íslenska þótt allir meðlimirnir
séu erlendir. „Reykjavík er mjög
hentugur staður fyrir okkur sem
hljómsveit og hérna er gott alþjóð-
legt samfélag. Við lítum á okkur
sem íslenskt band því við stofnuð-
um hljómsveitina hér og fáum mik-
inn innblástur úr umhverfi okkar,“
segir Lisa. freyr@frettabladid.is
Gáfumannahljómsveit
sem kynntist á Íslandi
THE ESOTERIC GENDER Gáfumannahljómsveitin vann alþjóðlega lagakeppni sem var
haldin á Netinu.
„Þetta var mjög skemmtilegt. Þetta
stóð fyllilega undir væntingum,“
segir Pétur Már Kristjánsson, sem
er nýkominn heim frá Lundúnum.
Þar var hann ásamt konu sinni Gígju
Jónsdóttur viðstaddur heimsfrum-
sýningu á stórmyndinni Avatar á
Leicester Square. Spókuðu þau
sig á rauða dreglinum innan
um leikstjóra myndarinnar,
James Cameron, og stjörnur
á borð við Sam Worthington,
Sigourney Weaver og Michelle
Rodriguez. „Þau sátu þarna
rétt hjá okkur,“ segir Pétur,
sem vann bíómiðana í leik sem
Sena stóð fyrir. Eftir sýning-
una var Pétur síðan tekinn í við-
tal hjá blaðamanni Boston Herald
ásamt fleiri frumsýningargestum og
birtist það á heimasíðu blaðsins.
Avatar verður frumsýnd hérlend-
is föstudaginn 18. desember og einn-
ig verður Nexus með forsýningu 16.
desember. Myndin fékk nýverið fullt
hús stiga hjá kvikmyndatímaritinu
Empire og einnig hafa birst mjög
jákvæðir dómar í Hollywood Reporter
og Variety. Avatar hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu, enda er
hún fyrsta myndin frá James Cam-
eron síðan hann sendi frá sér stórvirk-
ið Titanic árið 1997.
Innan um stórstjörnur Avatar> ORÐIN MAMMA
Playboy-kanínan Kendra Wilkin-
son eignaðist sitt fyrsta barn
nú á dögunum. Hún og eig-
inmaður hennar, ruðn-
ingsleikmaðurinn Hank
Baskett, eignuðust lít-
inn son sem skírð-
ur var í höfuðið á
föður sínum, Hank
Baskett IV.
Glæpasaga Yrsu Sigurðardótt-
ur, Sér grefur gröf, er sögð ein af
glæpasögum ársins á heimasíðu
breska dagblaðsins The Independ-
ent. „Orðspor íslenskra glæpasagna
fer ört vaxandi. Önnur skáldsaga
Yrsu Sigurðardóttur, Sér gref-
ur gröf, er fyndin en á sama tíma
þétt og vel skrifuð saga sem gerist
í íslenskri heilsulind sem reynist
langt í frá heilsusamleg fyrir gest-
ina,“ segir í Independent.
Pétur Már Ólafsson hjá Veröld,
sem gefur út bækur Yrsu hér á
landi, er mjög ánægður með þessi
tíðindi. „Það kemur slíkur fjöldi af
glæpasögum út í Bretlandi að það
að komast í svona úrtak er frábær
árangur,“ segir hann. „Hún hefur
fengið frábæra dóma fyrir Sér gref-
ur gröf á þessu ári. Times sagði að
hún væri í hópi fremstu glæpa-
sagnahöfunda Norðurlanda. Hún er
greinilega að ná augum og eyrum
manna á þessum erfiða markaði.“
- fb
Hrós í Independent
YRSA SIGURÐARDÓTTIR Yrsa fær góða dóma fyrir Sér grefur gröf hjá The Independ-
ent. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www.lapulsa.is
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Jólasveinninn getur keypt
Friendtex bangsa til styrktar
Krabbameinsfélaginu
hjá okkur á 1.000.- krónur
Opið í dag mán-fös kl. 11-18, lau 11-16
Útsala
30–50% afsláttur!
Mikið úrval að
fallegum fatnaði
Á HEIMSFRUMSÝNINGU Pétur Már lukkulegur
í London á frumsýningu myndarinnar Avatar
sem fer í almennar sýningar hérlendis 18.
desember.