Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 22
STÚDENTASTJARNA
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 14. desember
Miðvikudagur 16. desember
Fimmtudagur 17. desember
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir æfingar sem
hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann.
Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00.
Hangikjötið fer illa í suma – Lærðu fyrstu viðbrögð í
endurlífgun og að losa aðskotahlut áður en fjölskyldu-
boðin byrja. Tími: 13.30 -14.30.
Skiptifatamarkaður - Úti- og spariföt barna -
Tími: 13.30 -17.00.
Jólin í bíó - Hvað segja bíómyndirnar okkur um jólin?
Hvers konar tími eru jólin? Tími: 15.00-16.00.
Psychosocial support - Learn more about stress
management, crisis and trauma. Tími: 12.00-13.30
Saumasmiðjan - Ertu stopp í saumaskapnum? Getur
þú ekki klárað flíkina? Fáðu leiðbeiningar og komdu
með saumavél ef þú getur. Tími: 13.00-15.00.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Spuni - Rökkvi frá uppistand.is sér um spuna þar sem
leikurum er stýrt af áhorfendum sem taka þátt.
Tími: 12.30 -13.30.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri! Tími: 12.30 -13.30.
Íslenskuspilið – Viltu læra meiri íslensku? Komdu og
spilaðu með! Allir velkomnir. Tími: 13.00-15.00.
Jólabingó – Hallgrímur Ólafsson leikari stjórnar bingó
þar sem veglegir vinningar eru í boði. Heitt súkkulaði
og vöfflur með rjóma á boðstólnum. Tími: 14.00-15.00.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri
og gleði? Tími: 15.30-16.30.
Föstudagur 18. desember
Facebook - Lærðu á samskiptavefinn. Tími: 12.15-14.00.
Að lappa upp á gömlu jólaskreytinguna - Áttu
gamla og úr sér gengna skreytingu? Fáðu aðstoð við að
laga og lærðu grundvallaratriðin. Tími: 12.30-13.30.
Prjónahópur - Vertu með! Tími: 13.00-15.00.
Tálgunarnámskeið - Lærðu nýjar aðferðir við að tálga
með beittum hníf í ferskan trjávið. Tími: 14.30-16.00.
Skákklúbbur - Komdu og tefldu! Tími: 15.30-17.00.
Allir velkomnir!
Tölvuaðstoð - Fyrir alla. Tími: 13.30-15.30.
Bókaklúbbur - Ræðum bókina Leyndardómur
Býflugnanna eftir Sue Monk Kidd. Tími: 14.00-15.00.
Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Eða alltaf
langað til að læra bridds? Tími: 14.00-16.00.
Biblíulestur - Hefur þig alltaf langað að lesa Biblíuna?
Tími: 15.30-16.30.
Spænska í daglegu lífi - Lærðu nýtilegar setningar
fyrir almenna tjáningu á spænsku. Tími: 15.00-16.30.
Þriðjudagur 15. desember
Rauðakrosshúsið
Ljósmyndir - Jóla- og áramótamyndir - Taktu betri
myndir um jólin og smelltu af góðri flugeldamynd.
Komdu með myndavél og þrífót ef þú getur.
Tími: 12.30-14.30.
Rauðakrosshúsið verður opið að venju dagana
21, 22. og 23. desember og einnig milli jóla og nýárs.
PERSÓNULEG FLÍSTEPPI Fátt er betra um þetta leyti árs
en að hringa sig uppi í sófa með flísteppi. Hjá Merkt í Faxafeni
er hægt að láta gera persónuleg flísteppi með myndum og
texta. Upplögð jólagjöf. Sjá www.merkt.is.
Ljósin lýsa okkur í skammdeginu og er afbragðs ráð
að bregða undir sig betri fætinum og fá sér göngu-
túr um gömul og gróin íbúðarhverfi til að virða ljós-
dýrðina fyrir sér. Þannig má næla sér í rétta jóla-
skapið og jafnvel smá roða í kinnarnar um leið.
Þetta gerði ljósmyndari Fréttablaðsins í vik-
unni sem leið og varð gamli miðbær Hafnarfjarðar,
nánar tiltekið Hverfisgatan, fyrir valinu. Þar er að
finna fallegar en þó látlausar skreytingar sem allar
gefa með einhverjum hætti til kynna hvaða mann
fólkið innandyra hefur að geyma.
vera@frettabladid.is
Ljósin í firðinum
Til að næla sér í sannan jólaanda er upplagt að fá sér göngutúr um gömul og gróin hverfi, virða ljósa-
dýrðina fyrir sér og velta jafnvel vöngum yfir því hvað skreytingarnar segja um fólkið innandyra.
Lítið þarf til að gera gömlu báru-
járns húsin, sem einkenna gamla mið-
bæinn, enn fallegri.
Hér er allt að verða tilbúið fyrir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hátíðlegheit og hversdagsleiki kallast á.
Hlýlegur stigapallur sem býður gesti
velkomna.
Fígúrur gleðja börnin.