Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 42
34 14. desember 2009 MÁNUDAGUR KÖRFUBOLTI Það var mikið um dýrð- ir í íþróttamiðstöðinni í Grafar- vogi þegar bestu körfuboltamenn Iceland Express-deildanna mættu til að taka þátt í Stjörnuleiksdegi KKÍ. Áhorfendur fjölmenntu á svæð- ið og urðu ekki fyrir vonbrigðum enda var þetta hin besta skemmt- un. Bestu leikmenn Stjörnuleikj- anna sjálfra voru þeir Andre Dab- ney úr Hamri og Heather Ezell úr Haukum. Karlaleikurinn var afar spennandi en kvennaleikurinn var aldrei neitt spennandi enda tók lið Benedikts Guðmundssonar strax góða forystu og hélt henni út leik- inn. Magnús Gunnarsson úr Njarð- vík vann þriggja stiga keppnina hjá körlunum eftir harða baráttu við Sean Burton í Snæfelli en sá skoraði 16 þriggja stiga körfur í einum leik á dögunum. Magnús hafði eins stigs sigur í úrslitunum en Burton brást bogalistin á ögur- stundu í keppninni. Guðjón Skúla- son, þjálfari Keflavíkur, tók þátt í keppninni og komst í úrslit. Hann náði samt ekki að ógna þeim Magn- úsi og Burton í úrslitunum. Kristi Smith úr Keflavík vann þriggja stiga keppnina hjá konun- um. Hún var aðeins þriðja í for- keppninni en sýndi allar sínar bestu hliðar í úrslitunum og fékk 13 stig. Koren Schram úr Hamri varð þriðja en Heather Ezell, sem varð efst í forkeppninni, varð að sætta sig við þriðja sætið. Troðslukeppnin var æsispenn- andi og stórskemmtileg. Grinda- víkurgormurinn Ólafur Ólafsson hafði skorað á erlenda leikmenn í keppnina og Ólafur veitti útlend- ingunum svo sannarlega harða keppni. Hann var efstur í for- keppninni ásamt John Davis úr Ármanni. Í úrslitunum urðu Ólafi síðan á mistök er hann kláraði ekki troðslu. Davis nýtti sér mistökin og landaði troðslutitlinum þetta árið. Einn af hápunktum dagsins var síðan leikur eldri landsliðsmanna gegn liði landsþekktra einstakl- inga. Gömlu mennirnir sýndu strax í upphafi að lengi lifir í göml- um glæðum því þeir náðu strax góðu forskoti. Munurinn 19 stig í hálfleik, 23-8, en hvor hálfleikur var aðeins átta mínútur. Stjörnurnar brugðu á það ráð að fjölga í liði sínu í síðari hálfleik og undir lokin voru þeir allir inn á vellinum. Það dugði þó ekki til því landsliðskempurnar lönduðu sigri, 39-27. henry@frettabladid.is Vel heppnaður Stjörnuleiksdagur KKÍ bauð upp á mikla körfuboltasýningu á laugardag þegar hinir árlegu stjörnuleikir fóru fram. Einnig var keppt í þriggja stiga skotkeppnum, troðslukeppnin var á sínum stað. Svo mættu gamlar landsliðskemp- ur liði landsþekktra einstaklinga í sérstökum sýningarleik sem áhorfendur höfðu afar gaman af. STJÖRNURNAR SLAKAR Lið landsþekktra einstaklinga sýndi ekki merkilega takta með körfuboltann gegn gömlum landsliðskempum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SEAN BURTON Tapaði fyrir Magnúsi Gunnarssyni í þriggja stiga keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GRINDAVÍKURGORMURINN Ólafur Ólafs- son sýndi lipur tilþrif í troðslukeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SVAKALEG TILÞRIF Bandaríkjamaðurinn John Davis vann troðslukeppnina og hann tróð meðal annars eftir að hafa stokkið yfir tvo leikmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HANDBOLTI Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska meistaralið- inu Kiel halda uppteknum hætti í þýsku úrvalsdeildinni og vinna alla leiki. Kiel rúllaði yfir Hannover Burg- dorf um helgina, 41-22, og hefur aðeins gert eitt jafntefli í vetur. Aðrir leikir hafa unnist. Aron Pálmarsson lék vel fyrir Kiel um helgina. Skoraði fimm mörk og mataði síðan félaga sína með góðum sendingum. Helsti keppinautur Kiel, HSV, komst í hann krappann gegn TuS N-Lübbecke um helgina en marði að lokum eins marks sigur, 25-24. Heiðmar Felixson skoraði tvö mörk fyrir Lübbecke sem er í tólfta sæti deildarinnar. HSV sem fyrr í öðru sæti, aðeins stigi á eftir Kiel. Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen laumaði sér upp í þriðja sæti deildarinnar með öruggum sigri á Magdeburg, 40-21. Guðjón Valur Sigurðsson með sex mörk fyrir Löwen en þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefáns- son skoruðu báðir þrjú mörk fyrir liðið. Snorri náði um leið merkilegum áfanga því hann er búinn að skora 600 mörk í þýsku úrvalsdeild- inni. Hann spilaði í fjögur ár með Grosswallstadt og Minden. Hélt svo til Danmerkur en kom aftur í þýska boltann í vetur. Grosswallstadt er í áttunda sæti deildarinnar eftir 33-21 sigur á Düsseldorf. Sverre Andreas Jak- obsson skoraði ekki fyrir Gross- wallstadt en Sturla skoraði eitt mark fyrir Düsseldorf. Alexander Petersson tryggði Flensburg síðan sigur á Gummers- bach, 26-27. Alexander skoraði sigurmarkið rúmri mínútu fyrir leikslok. Landsliðsmaðurinn spil- aði sinn besta leik í vetur og skor- aði sex mörk. Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach. - hbg Íslendingarnir áberandi sem fyrr í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta: Kiel á toppnum og Löwen í þriðja sæti ARON PÁLMARSSON Hefur leikið vel með Kiel og skoraði fimm mörk fyrir liðið um helgina. NORDIC PHOTOS/BONGARTS HANDBOLTI Stjarnan vann botnbar- áttuslaginn í N1-deild karla í gær er liðið mætti Fram í Safamýri. Liðin voru jöfn á botninum fyrir leikinn með aðeins tvö stig. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik völtuðu Stjörnumenn yfir Fram- ara. Þeir náðu mest níu marka for- skoti og þegar upp var stað- ið landaði Stjarnan átta marka sigri, 26-34. Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir jólafrí og það verða því Framarar sem munu sitja á botni deildarinnar yfir jólin en Fram- arar hafa valdið gríðarlegum vonbrigðum í vetur. Liðið rak þjálfarann sinn, Viggó Sigurðsson, fyrir nokkr- um vikum en þjálfaraskiptin hafa ekki skilað sér nema síður sé. - hbg N1-deild karla: Fram fer í jóla- frí á botninum Í TÓMU TJÓNI Magnús Stefánsson og félagar hafa ekkert getað í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SUND Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug lauk í Tyrklandi í gær. Skagamærin Inga Elín Cryer setti Íslandsmet á lokadeginum er hún synti 400 metra fjórsund á 4:50,96 sekúndum. Hún bætti þar með met Erlu Daggar Haralds- dóttur. Þetta er fyrsta Íslands- metið sem Inga Elín setur í kvennaflokki. Ragnheiður Ragnarsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir kepptu báðar í 50 metra skrið- sundi en hvorug komst upp úr undanrásunum. Ragnheiður varð í 25. sæti en Ingibjörg í 43. sæti. Sindri Þór Jakobsson varð í 56. sæti í 50 metra flugsundi karla og Davíð Hildiberg Aðalsteins- son var nálægt sínum besta tíma í 200 metra skriðsundi. - hbg EM í sundi í Tyrklandi: Inga Elín setti Íslandsmet DAVÍÐ HILDIBERG Stóð sig ágætlega í Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.