Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 34
26 14. desember 2009 MÁNUDAGUR menning@frettabladid.is 13.990kr.Verð frá - með puttann á púlsinum!! HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Gram kæli – og frystiskápar. Gram býður upp á notagildi, frábæra endingu og sígilt útlit sem stenst tímans tönn. Fullkomin eldhústækjalína í hvítu, áli eða stáli. Fönix býður nú kæli- og frystiskápa frá Gram í meira úrvali en áður af öllum stærðum og gerðum. Fr ys tis ká pa r Kæ lis ká pa r Kæ li- o g fry st is ká pa r Hátúni 6a . 105 Reykjavík . Sími 552 4420 . www.fonix.is Jólahádegistónleikar Óp-hópsins í Íslensku óperunni verða á morgun 15. desember kl. 12.15. Fram koma allir meðlimir hópsins, en sérstakur gestur á tónleikunum er Gissur Páll Gissurarson tenór- söngvari. Á efnisskrá eru jólalög úr ýmsum áttum. Tilgangur Op-hóps- ins var sá að veita menntuðum söngvurum tækifæri til að koma fram á sviði óperunnar með valin stök númer og hafa tónleikarnir til þessa verið ágætlega sóttir enda efnisvalið fjölbreytt. Hópurinn sem flytur söngnúmer að þessu sinni er óvenju stór: Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Erla Björg Káradóttir, Jón Svavar Jósefsson, Rósa- lind Gísladóttir, Rúnar Þór Guðmundsson, Erla Björg Káradóttir, Jóhanna Héðinsdóttir, Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Hörn Hrafnsdóttir. Sótt er í smiðjur ýmissa tónskálda en efnið tengist allt hátíðinni: Reger, Mozart, Schubert, Bach, Gounaud, Sigfús Halldórsson, Franck, Adams og Webber. Og við þennan lista bætist enn: Gissur Páll Gissurarson tenór er sérstakur heiðursgestur en hann syngur Agnus dei eftir G. Bizet. Efnisskránni lýkur svo með því að allur hópurinn syngur Ó helga nótt eftir Adams. Antonía Havesi leikur undir. Miðaverð er aðeins 1.000 kr. og taka tónleikarnir um 40 mínút- ur í flutningi. Gestir geta keypt samlokur, sælgæti og drykki í anddyri Íslensku óperunnar fyrir og eftir tónleikana þannig að þeir sem snúa til vinnu þegar að tónleikunum loknum geta sleppt hádegismat en gripið samloku þegar tónlistar- hungrið hefur verið satt. Jólatónleikar í hádegi á morgun TÓNLIST Gissur Páll Gissurar- son tenór Ath. kl. 18 í Bókasafni Seltjarnarness. Þá leikur hljómsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness jólalög á Bókasafni Seltjarnarness. Stjórnandi sveitar- innar er Helga Þórarinsdóttir. Hljóm- sveitin kemur okkur í gott jólaskap. Te og tónlist eru stuttir tónleikar, hugsaðir þannig að fólk geti komið við á bókasafninu, hvílt sig og notið tónlistar á heimleiðinni. Te og tónlist er samstarfsverkefni bókasafnsins og Tónlistarskóla Seltjarnarness. Allir eru velkomnir. Þrítugustu og aðrir Jóla- söngvar Kórs Langholts- kirkju verða dagana 18.-20. desember í Langholts- kirkju. Kórinn í Langholts- kirkju er brautryðjandi í flutningi jólaefnisskrár um þetta leyti árs og verða að þessu sinni fjórir tónleikar í Langholtinu. Fyrstu jólasöngvarnir fóru fram í Landakotskirkju 1978 og voru þá nýmæli hérlendis. Þessi siður hefur nú öðlast miklar vinsæld- ir og ótölulegur fjöldi jólasöngva fer nú fram um allt land. Er þessi siður tekinn að eflast með æ stærri tónleikum og eru hljóðfæraleik- arar önnum kafnir við að fylgja hinum ýmsu kórum og koma fram með þeim í kirkjum og samkomu- húsum um allt land. Hefur kirkju- haldi og trúarlífi ekki í annan tíma verið sýndur jafn ríkulegur styrk- ur af fólki úr öllum stéttum sem áhuga hefur á kórsöng og með í kaupunum fylgja einsöngvarar. Einsöngvarar að þessu sinni eru Eivør Pálsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir, nemandi og kenn- ari, en Ólöf fékk Eivöru hingað til lands á sínum tíma til að þjálfa hana í söng. Einnig syngur Andri Björn Róbertsson, sem er félagi í Kór Langholtskirkju, og kórfélagar úr Gradualekór Langholtskirkju. Jólasöngvarnir eru ávallt síð- ustu helgi fyrir jól og að þessu sinni deilast tónleikarnir á þrjá daga: föstudaginn 18. desember kl. 23.00, laugardaginn 19. desember kl. 20.00 og 23.00, og loks sunnu- daginn 20. desember kl. 20.00. Sterk hefð hefur myndast á efn- isskránni. Kórarnir flytja jólalög hvor fyrir sig og einnig saman, bæði hátíðleg og með léttri sveiflu. Áheyrendur taka virkan þátt í almennum söng. Hljóðfæraleik- ararnir Hallfríður Ólafsdóttir og Arna Kristín Einarsdóttir leika á flautur, Monika Abendroth á hörpu og Tómas Guðni Eggerts- son á orgel. Um létta djasssveiflu sjá Kjartan Valdemarsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur. Í hléi er boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur til að hressa menn við og auka á gildi þessarar árvissu samverustund- ar. pbb@frettabladid.is Jólasöngvar í Langholtinu TÓNLIST Eivör kemur fram með kór Langholtskirkju á tónleikum undir lok vikunnar. > Ekki missa af beinni útsendingu frá Metr- opolitan þann 19. og 21. desember. Það er marglofuð sviðsetning á Ævintýrum Hoffmanns eftir Offenbach sem er þar flutt beint frá New York og valinn maður í hverju rúmi. Miðasala er á miði. is og er þetta einstakt tækifæri að sjá sígilt verk flutt af afburða listamönnum á heimsvísu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.