Fréttablaðið - 14.12.2009, Síða 6
6 14. desember 2009 MÁNUDAGUR
www.reykjavik.is/kjostu
UM VERKEFNI Í ÞÍNU HVERFI
KJÓSTU
Kosningu lýkur í dag!
Ætlar þú að þrífa allt hátt og
lágt fyrir jólin?
JÁ 32,4
NEI 67,6
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að forseti Íslands synji
Icesave-lögum staðfestingar?
Segðu skoðun þína á visir.is
STJÓRNMÁL Auka á fjárveiting-
ar til dómstóla og verja yfir 100
milljónum í fjölgun fangarýma
á næsta ári. Þetta er meðal þess
sem gert er ráð fyrir í breyting-
artillögum við fjárlagafrumvarp
næsta árs, sem ræddar verða á
Alþingi í dag.
Meðal annars er lagt til að
fjárveitingar til héraðsdómstóla
hækki tímabundið um 86 millj-
ónir, í samræmi við þær breyt-
ingar sem gert er ráð fyrir í nýju
frumvarpi um dómstólalög. Þar
er kveðið á um að héraðsdómar-
ar landsins skuli vera 43 fram
til ársins 2013, í stað 38 eins og
nú er, vegna mikillar fjölgunar
dómsmála, meðal annars vegna
bankahrunsins. Laun þessara
fimm dómara til viðbótar nema
53 milljónum á ári, og auk þess
er gert ráð fyrir 33 milljónum í
laun fimm aðstoðarmanna dóm-
ara til viðbótar.
Nefndin leggur jafnframt til
að fjárveitingar til Hæstaréttar
verði hækkaðar um 16 milljónir
til að takast á við aukinn mála-
fjölda. Féð á fyrst og fremst að
fara í að fjölga aðstoðarmönnum
dómara. Þá er lagt til að útgjöld
Hæstaréttar lækki um 8 milljón-
ir, enda hefur kjararáð ákveðið
að lækka laun hæstaréttardóm-
ara um 15 prósent, en í fjárlaga-
frumvarpinu gleymdist að reikna
með því.
Á móti þessu á að hækka dóms-
málagjöld umfram önnur gjöld.
Þá hefur verið ákveðið að leigja
gistiheimilið Bitru og koma þar
upp sextán fangarýmum. Kostn-
aðurinn við það er áætlaður 107
milljónir, þar af eru 18 milljón-
ir í húsaleigu. Einnig hefur verið
hætt við að skera niður framlög
til meðferðargangsins á Litla-
Hrauni, og eru 30 milljónir vegna
hans lagðar til í breytingartillög-
unum. stigur@frettabladid.is
Framlög til fangelsa
og dómstóla aukin
Ráðstöfunarfé ráðherra verður skorið niður um rúmar 20 milljónir samkvæmt
breytingartillögum við fjárlög næsta árs. Leigja á gistiheimili og útbúa þar fang-
elsi og ráða fimm nýja héraðsdómara. Tillögurnar verða ræddar á þingi í dag.
LITLA-HRAUN Plássið á Litla-Hrauni og í öðrum fangelsum landsins er löngu
uppurið og því verður 107 milljónum varið í að koma upp sextán fangarýmum á
gistiheimilinu Bitru. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
■ Hallinn á fjárlögum næsta árs verður öllu meiri en áður var gert ráð fyrir,
eða 102 milljarðar í stað 87,4.
■ Lækka á ráðstöfunarfé ráðherra úr samtals 70,6 í 49,4 milljónir.
■ Gerð verður krafa um 500 milljóna króna hærri arðgreiðslu frá ÁTVR á
næsta ári en að var stefnt.
■ 185 milljónum veitt aukalega til byggingarframkvæmda og tækjakaupa
við Háskóla Íslands.
■ Framlag til sjóvarnargarðagerðar hækkar úr 63,6 milljónum í 163,6.
■ Samtök iðnaðarins fá 420 milljónir frá ríkinu í stað 300 milljóna.
■ Sautján milljónum varið í endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna refaveiða.
PUNKTAR ÚR BREYTINGARTILLÖGUNUM
SLYSFARIR „Aðstæðurnar voru mjög
erfiðar, rok, ausandi rigning og
mikill vöxtur í ánni. En allir eru
sammála um að björgunin hafi
gengið ljómandi vel,“ segir Jón
Hermannsson, svæðisstjóri björg-
unarsveita á Suðurlandi. Björgun-
arsveitir komu þremur mönnum til
hjálpar í Steinsholtsá í Þórsmörk á
laugardagskvöld.
Tíu menn á þremur jeppum voru
á leið yfir ána í Bása þar sem þeir
hugðust gista í skála um nóttina.
Straumurinn hreif einn bílinn sem
flaut niður með ánni og festist loks-
ins. Tveir farþeganna höfðu komið
sér fyrir á þakinu á bílnum þegar
björgunarsveit kom á vettvang, en
sá þriðji hékk utan á bílnum.
Jón segir vatnselginn hafa verið
mikinn. „Við settum línu út til
mannanna, og það voru bátar á leið-
inni ef einhver skyldi hafa losnað
og flotið niður ánna. Sem betur fer
kom ekki til þess.“ Stór bíll frá flug-
björgunarsveitinni á Hellu náði loks
að keyra út í til mannanna, taka þá
upp í og flytja í land. Þeir höfðu þá
verið í um tvær klukkustundir utan
á bílnum. Að sögn Jóns var einungis
einn þeirra orðinn verulega kaldur.
Þeir héldu áfram leið sinni í Bása
stuttu síðar með hinum bílunum.
Alls tóku milli fjörutíu og fimm-
tíu björgunarsveitarmenn þátt í
aðgerðinni, að undanskilinni áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem
var kölluð út en snúið við þegar tek-
ist hafði að bjarga mönnunum. - kg
Þrír menn voru hætt komnir í miklum vatnavöxtum í Steinsholtsá í Þórsmörk:
Bjargað við erfiðar aðstæður
KOSNING Fréttaveitan Eyjan.is hefur
efnt til rafrænnar atkvæðagreiðslu
á Netinu um afstöðu þjóðarinn-
ar til Icesave-málsins. Verkefnið
er unnið í samstarfi við Íslenska
erfðagreiningu og er fullyrt að
þetta sé fyrsta örugga vefkosning-
inn sem fram fer á Íslandi.
Við atkvæðagreiðsluna er notast
við kerfi sem kallast Íslendingaval
og er þróað af Íslenskri erfðagrein-
ingu.
Kerfið er sagt tryggja öryggi og
nafnleynd þátttakenda. Aðgangs-
kóðar hafa verið sendir sem raf-
ræn skjöl til kjósenda í gegnum
heimabanka þeirra. Hægt er að
nálgast kóðana nú þegar.
Opnað var fyrir kosninguna í
gær og áætlað er að henni verði
lokið síðdegis á fimmtudag. Til
stendur að kunngjöra niðurstöð-
urnar strax í kjölfarið.
Í könnuninni er spurt: „Vilt þú
að Alþingi samþykki eða synji rík-
isábyrgð á Icesave-samkomulag-
inu við Breta og Hollendinga?“
Svarmöguleikar eru þrír: „Alþingi
samþykki ríkisábyrgð“, „Alþingi
synji ríkisábyrgð“ og „Tek ekki
afstöðu.“
Í fréttatilkynningu vegna máls-
ins segir að Eyjan hyggist birta
fleiri kannanir af þessu tagi á
næstu misserum.
- sh
Vefmiðillinn Eyjan.is og Íslensk erfðagreining taka höndum saman:
Kosning um Icesave á Eyjunni
KOSNINGUNNI HRINT AF STAÐ Guð-
mundur Magnússon, ritstjóri Eyjunnar,
og Hákon Guðbjartsson frá Íslenskri
erfðagreiningu handsala samninginn.
MYND / EYJAN.IS.
BJÖRGUN Mikil hlýindi og úrkoma undanfarið hafa orsakað mikla vatnavexti. Menn-
irnir þrír voru utan á jeppanum þegar björgunarsveitir komu á vettvang.
Kortafé til líknarmála
Bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ hafa
ákveðið að senda starfsmönnum
sveitarfélagsins ekki jólakort þetta
árið. Með þessari ákvörðun sparast á
annað hundrað þúsund krónur sem
renna til menningar- og líknarmála.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Sautján ára brutust inn í bíla
Tveir sautján ára piltar hafa verið
dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands
fyrir að brjótast inn í nokkra bíla og
hnupla úr þeim. Piltarnir játuðu sök.
Ákvörðun refsingar þeirra var frestað
haldi þeir skilorð í eitt ár.
DÓMSTÓLAR
Nýr skóli vígður
Hópsskóli, nýr grunnskóli í Grindavík,
var vígður á fimmtudag. Skólinn mun
hýsa nemendur í 1. til 4. bekk grunn-
skóla en gamli grunnskólinn mun
hýsa 5. til 10. bekk.
GRINDAVÍK
STANGVEIÐI NASF – verndarsjóð-
ur villtra laxa skorar á Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseta
að koma í veg fyrir að markað-
ir opnist fyrir norskan eldislax í
Bandaríkjunum.
Þetta kemur fram á vef Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Orri
Vigfússon, formaður NASF, segir
Norðmenn brjóta alþjóðlegar
samþykktir með stórfelldu lax-
eldi og óttast að Norðmenn noti
heimsókn Obama í Noregs til að
liðka fyrir sölu eldislax í Banda-
ríkjunum. Fiskeldi Norðmanna
hafi veruleg áhrif í Finnlandi og
Rússlandi og á norska laxastofna.
Laxalús frá norskum fyrirtækj-
um hafi mikil áhrif á villta laxa,
ekki aðeins í Noregi heldur einn-
ig í Chile, Bandaríkjunum, Kan-
ada, Írlandi og á Skotlandi. - gar
Áskorun frá Orra Vigfússyni:
Obama beiti sér
gegn laxeldi
BANDARÍKIN Annise Parker var
kjörin borgarstjóri í Hous-
ton í Texas-ríki Bandaríkj-
anna. Parker hlaut 53,6 prósent
atkvæða.
Það sem vekur mestu athygl-
ina við kjör Parker er að aldrei
hefur samkynhneigður einstakl-
ingur verið kjörinn borgarstjóri í
jafn fjölmennri borg og Houston.
Íbúar borgarinnar eru um 2,2
milljónir talsins.
Í kosningabaráttunni var
Parker hins vegar gagnrýnd
mikið af íhaldsömum trúmönnum
og öðrum sem fordæma líferni
samkynhneigðra, að því er fram
kemur á fréttavef BBC. - jhh
Kosningar í Houston:
Borgarstýran
samkynhneigð
M
YN
D
/JÓ
N
H
ER
M
A
N
N
SSO
N
KJÖRKASSINN