Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 11
MÁNUDAGUR 14. desember 2009 11
Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar alla jafnt.
Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu þér sex vini hjá
hvaða farsímafyrirtæki sem er og sendir þeim SMS eða
hringir í þá fyrir núll krónur.*
Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun Símans
eða í síma 800 7000.
Sex vinir alveg óháð kerfi
Sími
Netið
SjónvarpÞað er800 7000 • siminn.is
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.
HEILSA Stöku yfirvinnutímar skaða
engan en ef unnin er of mikil yfir-
vinna getur það haft alvarlegar
afleiðingar fyrir heilsufar, segir í
finnskri rannsókn sem Aftenpos-
ten segir frá.
Ef unnið er meira en 50 tíma í
vikunni verður orðaforðinn verri
sem og hæfileikinn til að draga
ályktanir. Skammtímaminni hrak-
ar líka. Samkvæmt rannsókn-
inni versnar svefninn einnig hjá
þeim sem vinna meira en 55 tíma
á viku. Þeim er þrisvar sinnum
hættara við svefntruflunum en
þeim sem ekki vinna yfirvinnu.
Ekki er samt algilt að of mikil
vinna hafi slæm áhrif á heilsuna.
Þeir sem vinna 40 tíma á viku
hafa það best samkvæmt rann-
sókninni, bæði þeir sem vinna
meira eða minna en það eiga
þunglyndi og kvíða á hættu. - sbt
40 tíma vinnuvika fullkomin:
Of mikil vinna
heilsuspillandi
SKATTUR Ríkissjóður leggur fram 400 milljónir
króna í ár til að standa undir rekstri Samtaka
iðnaðarins (SI) með svokölluðu iðnaðarmála-
gjaldi. Gjaldið samsvarar 0,08 prósentum af
veltu allra iðnaðarfyrirtækja í landinu.
Fyrirtækjum sem stunda iðnrekstur í land-
inu er skylt samkvæmt lögum að greiða gjald-
ið eins og hvern annan skatt. Ríkisfyrirtæki,
álver og Járnblendiverksmiðjan á Grundar-
tanga hafa þó verið undanþegin gjaldinu. Af
því sem innheimtist renna 95 prósent í gegn-
um ríkissjóð til SI. Ríkissjóður heldur eftir
fimm prósentum af því sem innheimtist og
stendur þannig undir kostnaði við innheimt-
una. SI eru hagsmunasamtök og hafa meðal
annars að markmiði að hafa áhrif á stefnu
stjórnvalda.
Sum iðnfyrirtæki kjósa að standa utan
samtakanna en greiða gjaldið engu að síður.
Félagsgjald er einnig innheimt af félögum.
Félagsgjöld skiluðu SI 122 milljóna króna
tekjum á síðasta ári, að sögn Jóns Steindórs
Valdimarssonar, framkvæmdastjóra samtak-
anna.
Iðnaðarmálagjald hefur verið lagt á frá
1975. Núgildandi lög eru frá 1993. Undanfar-
in tvö ár hefur iðnaðarmálagjald skilað mun
meiri tekjum en áætlun fjárlaga gerði ráð
fyrir. 2008 var áætlað að gjaldið skilaði um
260 milljónum króna. Þegar upp var staðið
kom í ljós að ríkið hafði innheimt 502 milljón-
ir króna, eða nær tvöfalt meira en áætlað var.
Af því áttu um 476 milljónir að renna í gegn-
um ríkissjóð til SI.
Með sama hætti er nú ljóst að iðnaður-
inn hefur greitt mun hærra iðnaðarmálagjald
árið 2009 en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir,
þótt samdrátturinn sé talsverður frá 2008.
Þetta sést í frumvarpi til fjáraukalaga 2009,
sem Alþingi hefur til meðferðar. Þar kemur
fram að iðnaðarmálagjald mun skila 420
milljónum króna, eða 120 milljónum króna
meira en fjárlög áætluðu. Af því munu Sam-
tök iðnaðarins fá 400 milljónir.
Í fjárlagafrumvarpi 2010 var gert ráð fyrir
300 milljóna króna tekjum af iðnaðarmála-
gjaldi. Í breytingartillögu sem lögð var fram
á laugardaginn var tekjuáætlunin hækkuð í
420 milljónir á árinu 2010. peturg@frettabladid.is
400 milljóna króna skattur
til Samtaka iðnaðarins
Hagsmunasamtök iðnfyrirtækja fá um 400 milljónir úr ríkissjóði í ár. Tekjurnar hafa verið vanáætlaðar
undanfarin tvö ár. Í breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið 2010 var tekjuáætlun hækkuð í 420 milljónir.
IÐNAÐUR Í Samtökum iðnaðarins (SI) mætast stórfyrirtæki eins og Actavis, Alcan og Alcoa annars vegar og
hins vegar hvers konar smáfyrirtæki sem stunda iðnaðarstarfsemi. 0,08 prósent af veltu iðnfyrirtækja eru inn-
heimt sem skattur og skilað til SI. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Innan Samtaka iðnaðarins eru
rúmlega 1.200 fyrirtæki og félög
sjálfstæðra atvinnurekenda.
Meðal þeirra eru stærri
fyrirtæki eins og: Alcan og
Alcoa/Fjarðaál, Actavis, Ístak og
Mjólkursamsalan, í bland við
smærri fyrirtæki, einyrkja, svo
og meistarafélög og hagsmuna-
samtök einstakra iðngreina.
„Samtök iðnaðarins vinna að
hagsmunum iðnaðarins á öllum
sviðum og í nánu samráði við
fyrirtækin sjálf,“ segir á heima-
síðu samtakanna. Meðal mark-
miða þeirra er að bæta almennt
rekstrarumhverfi með því að
hafa áhrif á stefnu stjórnvalda.
HAGSMUNASAMTÖK IÐNAÐARINS
VIÐSKIPTI Viðskiptasmiðjan, hrað-
braut nýrra fyrirtækja, braut-
skráði í gær níu sprotafyrirtæki.
Samanlagt verðmæti fyrirtækj-
anna er vel á annan milljarð
króna, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Viðskiptasmiðjunni.
Rúmlega fjörutíu sprotafyrir-
tæki tóku þátt í starfsemi smiðj-
unnar á fyrsta starfsárinu, og eru
níu nú formlega útskrifuð.
Dæmi um útskrifuð fyrirtæki
eru Gogoyoko, tónlistarverslun á
Netinu, Trackwell, sem hefur raf-
rænt eftirlit með langferðabílum
og skipum, Clara, sem rannsakar
umtal á Netinu, og Hafmynd, sem
framleiðir ómannaða kafbáta. - bj
Níu sprotafyrirtæki útskrifuð:
Verðmætin á
annan milljarð