Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 14.12.2009, Qupperneq 18
18 14. desember 2009 MÁNUDAGUR UMRÆÐAN Ragnar Sær Ragnarsson skrif- ar um leikskólamál í Reykjavík Að undanförnu hefur verið fjall-að um fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar í fjölmiðlum. Þar hefur leikskólastarf m.a. verið til umfjöll- unar og fram hefur komið að for- eldrar og starfsfólk leikskóla bera ugg í brjósti um áhrif hagræðingar á starf skólanna á komandi ári. Við fyrri umræðu um fjárhags áætlun Reykjavíkurborgar í borgarstjórn þann 3. desember var ákveðið að leggja aukalega 150 milljónir króna til starfs leikskóla borgarinnar á komandi ári. Nú er ljóst að eftir þessa ákvörð- un munu heildarfjárveitingar til leikskólastarfs í Reykjavík aukast um 100 milljónir á milli ára. Heildarkostnað- ur leikskólasviðs Reykja- víkur er um tíu milljarðar á árinu 2010. Stærstur hluti þessara fjármuna er fram- lag úr borgarsjóði en hlut- ur foreldra í kostnaði er um 11 prósent. Við vinnslu fjár- hagsáætlunar var upphaf- lega miðað við 5,76% hag- ræðingarkröfu á leikskólasvið en niðurstaðan varð hagræðing sem nemur 4,1%. Meginhluti hagræð- ingarinnar næst fram í yfirstjórn og innkaupum, en starfsemi leik- skólanna sjálfra ber einungis 1,8% hagræðingu. Verulegur ávinningur er nú þegar sýnilegur með nýjum útboðum. Aukning verður í græn- um innkaupum með því að akstur aðfanga og inn- kaup verða samtvinnuð. Þá hefur verið ákveðið að ný börn verði ekki vistuð inn á sumarleyfistíma starfs- fólks eins og verið hefur í nokkrum skólum. Af þessu leiðir að starfs- fólk getur tekið samfellt sumarleyfi án þess að álag aukist á aðra starfsmenn eða afleysingarfólk sé ráðið í stað- inn. Jákvæð og eðlileg viðbrögð for- eldra um gæði í leikskólastarfi eru ofarlega í huga þeirra sem koma að gerð tillagna fyrir sviðið enda erum við flest jafnframt foreldrar barna í leikskólum borgarinnar. Leikskóla- svið hélt opinn fund með foreldrum þann 12. nóvember sl. til að fara yfir stefnu og markmið í leikskólastarfi næsta árs og kynna markmiðasetn- ingu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Fulltrúum úr foreldraráð- um og foreldrafélögum var sérstak- lega boðið að taka þátt í umræðum. Á fimmta tug mættu og komu fram margar góðar ábendingar til leik- skólasviðs sem fylgt hefur verið. Farið er eftir ábendingum foreldra, barna og starfsfólks þegar tilgreind eru framtíðarskref og áherslur í starfi leikskólanna á næsta starfs- ári. Foreldrar þurfa í engu að kvíða um metnaðarfullt og faglegt starf í leikskólunum og því síður um öryggi barna sinna. Allt slíkt tal er ábyrgð- arlaust. Aldrei áður hafa leikskólar borg- arinnar verið jafn vel skipaðir starfsfólki og er nýting skólanna af þessum sökum 100% um þessar mundir. Rúmlega 200 börn eiga nú kost á leikskólaplássi vegna þessa, umfram þann fjölda sem skólarnir hafa annað undanfarin ár. Í mörgum tilvikum þýðir þetta beinan peninga- legan sparnað fyrir foreldrana, þar sem leikskólagjöldin eru lægri en kostnaður foreldra við önnur úrræði. Hlutfall háskólamenntaðra starfs- manna hefur aukist um 10 prósentu- stig og er áætlað að tæplega 60% starfsmanna verði með háskólapróf á árinu 2010. Í nýlegri könnun kom fram að aukin og jákvæð þjónustu við börn og foreldra lýsir sér best í því að 98% foreldra telja að barni sínu líði vel í leikskólanum og 95% telja að komið sé til móts við þarf- ir barna þeirra. Þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra. Þetta jákvæða viðhorf er fyrst og fremst að þakka frábæru starfsfólki og stjórnend- um leikskólanna. Enginn leikskóli er betri en starfsfólkið sem þar vinnur. Gæði leikskólastarfs liggja í þeim mannauði sem er til staðar í sérhverjum skóla. Framsækið leik- skólastarf mun áfram ráða ríkjum. Má í því sambandi nefna að áfram er haldið með öflugan sjóð til að byggja upp nýbreytni og þróunarstarf leik- skólanna. Þá hefur verið settur á laggirnar vinnuhópur til að kanna grundvöll fyrir alþjóðlegar þekking- arheimsóknir erlendra kennara til Íslands. Launakjör haldast óbreytt eða hækka á árinu 2010. Neysluhlé sem er greiðsla til starfsmanna sem vinna með börnum á leikskólunum heldur áfram. Stöðugleiki í starfs- mannahaldi skapar aukna ánægju og betri þjónustu. Um 8.200 börn njóta framlaga borgarinnar á árinu 2010. Leikskóla- gjöld í Reykjavík eru lægri en ann- ars staðar og munar þar verulegu. Þá er 100% systkinaafsláttur þannig að foreldrar greiða í raun einungis gjald með einu barni. Engin áform eru uppi um breytingu á gjaldskrá. Höfundur er formaður leikskóla- ráðs Reykjavíkurborgar. Leikskólar fá aukið fjármagn UMRÆÐAN Gunnar Þór Jóhannesson, Stefán Pálsson og Helga Björnsdóttir skrifa um nýtt félag stundakennara á há- skólastigi Háskóli Íslands er ein af lykil-stofnunum íslensks samfélags. Þessi sannindi þreytast ráðamenn ekki á að rifja upp, í það minnsta á tyllidögum, og þau eru leiðarstefið í þriggja ára átaksverkefni Háskól- ans sem rektor kynnti á fullveld- isdaginn 2008 undir yfirskriftinni „Fjársjóður til framtíðar“. Í ræðu sinni útskýrði Kristín Ingólfsdótt- ir að fjársjóðurinn væri í raun „sú auðlegð sem býr í öflugu starfsliði Háskóla Íslands“. Sjálfsagt er að taka undir þessu hlýju orð í garð starfsliðs Háskól- ans. Ekki er þar einungis um fast- ráðna starfsmenn að ræða, því eins og segir á bls. 85 í Árbók Háskól- ans 2008 er stór hluti kennslunnar við skólann „framlag lausráðinna stundakennara sem kenna sam- hliða starfi úti í atvinnulífinu“ eða alls 1.097 manns. Þá kemur fram að um 14% kennslunnar séu í höndum starfsmanna Háskólans annarra en fastráðinna kennara. Samkvæmt Árbókinni samsvarar stundakennsla alls 211 ársverkum aðjúnkta. (Hér er stundakennsla á vegum Mennta- vísindasviðs ekki meðtalin.) Af þessum tölum má glögglega sjá hversu mikilvægt framlag stunda- kennara er í starfi Háskólans og raunar vandséð hvernig stofnun- in yrði rekin án þeirra. Ekki bera launakjör þess hóps þó með sér að vinnan sé metin að verðleikum. Flestir stundakennarar eru laus- ráðnir og fá greitt tímakaup, fast- ir starfsmenn stofnana Háskólans hafa þó fengið greidda yfirvinnu fyrir stundakennslu. Kaup og kjör þessa hóps eru einhliða ákveðin af Samráðsnefnd um kjaramál en í henni sitja lögfræðingur Háskóla Íslands, fjármálastjóri og einn aka- demískur starfsmaður. Stundakenn- arar eiga þar engan fulltrúa. Kröpp kjör Samráðsnefndin hefur ákveðið að frá og með 1. janúar 2009 fái laus- ráðinn stundakennari með meistara- prófsgráðu 1.655 krónur á tímann auk orlofs. Sá sem er með doktors- próf hækkar um heilar 299 krónur eða tæpar 60 krónur fyrir hvert ár umfram grunnnám. Stundakennarar við Háskóla Íslands eru fjölbreyttur hópur. Þegar hefur verið getið um starfs- menn rannsóknarstofnana skólans. Aðrir eru í aðalstarfi utan HÍ og koma inn sem gestakennarar, jafn- vel aðeins í eina og eina kennslu- stund. Loks er svo hópur fólks sem hefur ekkert annað launað starf en stundakennslu. Oftast eru þetta framhaldsnemar við Háskóla Íslands eða sjálfstætt starfandi fræðimenn sem sinna oft mikilli stundakennslu eða frá einu og upp í jafnvel fjögur námskeið á misseri. Réttlaus hópur Þau laun sem Háskóli Íslands metur sæmandi að bjóða sérfræð- ingum fyrir kennslu á háskóla- stigi dæma sig sjálf. Alvarlegra mál er þó réttindaleysi þessa hóps. Háskóli Íslands borgar ekki stétt- arfélagsgjöld og ekki launatengd gjöld í almenna sjóði stéttarfélaga af launum stundakennara. Það þýðir að þeir hafa engan veikinda- rétt og enga möguleika á að nýta sér þjónustu stéttarfélaga eins og styrktarsjóði, starfsmenntunar- sjóði eða sjúkrasjóði. Það er því ekki fjarri lagi að segja að stunda- kennarar við Háskóla Íslands séu líkt og „stéttleysingjar“ og fari á mis við það sem yfirleitt eru talin sjálfsögð réttindi launafólks. Þann 4. nóvember 2009 var hagsmunafélag stundakennara á háskólastigi – HAGSTUND – stofnað. Nokkur undirbúningur liggur að baki stofnuninni en hlut- verk félagsins er: 1. Að efla samheldni og sam- vinnu meðal félagsmanna óháð sviðum og/eða námsbrautum háskólanna 2. Að vinna að bættum kjörum félagsmanna og gæta hags- muna þeirra 3. Að bæta starfsskilyrði félags- manna og auka gagnsæi og skilvirkni í samskiptum þeirra við háskólann 4. Að hafa samvinnu við kjarafé- lög háskólamanna, sérstaklega þau sem hafa rétt til samnings- gerðar við háskólann 5. Að vera málsvari félagsmanna út á við Skipuð hefur verið vinnustjórn, auk þess sem félagið hefur komið sér upp fréttasíðu þar sem frétt- ir og tilkynningar birtast ásamt greinum og öðrum gagnlegum upplýsingum. Slóðin er: http:// www.kaninka.net/hagstund. Eru allir stundakennarar í íslenskum háskólum eindregið hvattir til að kynna sér félagið og ganga til liðs við kollega sína. Höfundar eru stundakennarar við Háskóla Íslands. Hlúum að fjársjóðnum GROUP RAGNAR SÆR RAGNARSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.