Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 20

Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 20
20 14. desember 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is GEORGE WASHINGTON LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1732. „Leitaðu kynna við mann- kostafólk, ef þú virðir þitt eigið mannorð, því að betra er að vera einn en í slæm- um félagsskap. “ George Washington var hers- höfðingi í meginlandshernum sem sigraði Breta í banda- ríska frelsisstríðinu og var kjörinn fyrsti forseti Banda- ríkjanna. Hann sat tvö fjög- urra ára kjörtímabil. Hann var eindreginn lýðveldissinni og fylgjandi hlutleysi Bandaríkj- anna í alþjóðastjórnmálum. Á þessum degi árið 2003 var tilkynnt um að fyrr- verandi forseti Íraks, Saddam Hussein, hefði fundist í holu skammt frá heimabæ sínum Tikrit. Ekkert hafði sést til Saddams síðan bandaríski herinn réðst inn í Írak í apríl sama ár, en Uday og Qusay, synir hans, voru drepnir af bandarísk- um hermönnum í júlí. Voru 25 milljónir dollara boðnar hverjum þeim sem gefið gæti upplýsing- ar um dvalarstað Saddams, og þegar tilkynnt var að hann hefði fundist fylgdi sögunni að einn úr hans eigin fjölskyldu hefði gefið vísbendingar um ferðir hans. Holan sem Saddam fannst í var svokölluð „köngulóarhola“, tveggja metra djúp og rúmaði einungis eina manneskju. Saddam var vopnað- ur byssu þegar hann fannst en veitti enga mót- spyrnu við handtökuna. Saddam var hengd- ur samkvæmt dómsúrskurði 30. desember árið 2006. ÞETTA GERÐIST: 14. DESEMBER 2003 Saddam Hussein finnst í holu MERKISATBURÐIR 1542 María Stúart verður drottning Skotlands. 1890 Eyrarbakkakirkja er vígð. Altaristafla hennar er eftir Lovísu Danadrottningu, máluð árið 1891. 1911 Roald Amundsen kemur á suðurpólinn. 1934 Golfklúbbur Reykjavíkur er stofnaður undir nafn- inu Golfklúbbur Íslands. 1939 Sovétríkin eru rekin úr Þjóðabandalaginu vegna innrásarinnar í Finnland en það stríð var síðar nefnt Vetrarstríðið. 1989 Í Síle eru haldnar fyrstu lýðræðislegu kosningarn- ar í sextán ár. AFMÆLISBÖRN JANE BIRK- IN leik- og söngkona er 63 ára í dag. GUÐ- MUNDUR ÓLAFSSON leikari er 58 ára í dag. „Það verður engin veisla í dag. Ég eyði bara deginum með fjölskyldunni,“ segir Haraldur Gíslason, tónlistar- maður og deildarstjóri á leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði, sem á 35 ára afmæli í dag. Haraldur er trommari rokksveitar- innar Botnleðju, sem hefur haft hægt um sig undanfarin ár en þó aldrei gefið út formlega dánartilkynningu. Hann og Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari og gítarleikari í téðri Botnleðju, út- skrifuðust báðir sem leikskólakenn- arar frá Kennaraháskóla Íslands fyrir tveimur árum, og lokaverkefni þeirra við skólann var platan Pollapönk, sem notið hefur mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni. Nú hafa félagarnir lagt í nýja plötu, Meira Pollapönk, og stefna á að gefa hana út í vor. „Við erum búnir að semja fimmtán lög sem við erum rosalega ánægðir með. Við höfum líka bætt í bandið, en þeir Arnar Gíslason trommari og Guðni Finnson bassaleik- ari, sem hafa leikið með sveitum á borð við Dr. Spock og Ensími, eru gengnir til liðs við okkur. Þetta er hörkuband og platan verður gott stöff,“ segir Har- aldur. Spurður um umfjöllunarefni Meira Pollpönks upplýsir Haraldur að meðal lagatitla verði „113 Vælubíllinn“ og „Keyrða kynslóðin“, sem fjallar um krakka sem eru keyrð út um allt, í skólann og jafnvel í næsta hús. Ung- viði landsins á því væntanlega von á góðu þegar vorar. Eins og áður sagði starfar Harald- ur sem deildarstjóri á leikskóla. Það er þungt í honum hljóðið þegar talið berst að niðurskurði á þeim vettvangi. „Mér finnst þetta afskaplega kjána- legt. Það var með herkjum að manna tókst leikskólana í góðærinu og núna loksins þegar betur gengur að fá fólk til starfans erum við látin taka til eftir partíið sem okkur var ekki boðið í. For- gangsröðunin er fáránleg. Leikskólarn- ir þurftu meira að segja að skera niður í góðærinu líka og það er borin von að það takist án þess að það bitni á þjón- ustunni. Það er alveg klárt mál,“ segir Haraldur og bætir við að hann finni fyrir miklum stuðningi frá foreldrum og fleirum vegna þessara mála. Botnleðja á þrjár plötur á lista yfir hundrað bestu plötur Íslandssögunn- ar sem tekinn var saman fyrr á árinu og gefinn út í veglegri bók fyrir jólin. Haraldur útilokar ekki að sveitin komi saman á næstunni, en lofar engu held- ur. „Við erum allir uppteknir í öðrum verkefnum, en erum samt góðir vinir. Það væri gaman að gera eitthvað, ein- hvern tímann. Þegar tíminn er réttur þá teljum við í, einn, tveir, þrír, fjór!“ kjartan@frettabladid.is HARALDUR GÍSLASON TÓNLISTARMAÐUR: Á 35 ÁRA AFMÆLI Í DAG Telur í meira Pollapönk AFMÆLI Haraldur Gíslason býst ekki við að fagna afmælisdeginum sérstaklega að öðru leyti en því að verja honum með fjölskyldunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hrafninn eða krummi er eini hröfnungurinn sem verpir hér á landi. Hann er stór og svart- ur og er spörfugl þótt ótrúlegt megi virðast, stærstur fugla í þeim stóra ættbálki. Hrafnar sýna stundum ótrúlegar flug- listir sem eru mikið augnayndi. Varpkjörlendi hans er í klett- um, giljum og hraunum á lág- lendi. Stundum verpa hrafn- ar á mannvirkjum eða jafnvel í trjám. Þetta á sérstaklega við á Suðurlandsundirlendinu þar sem lítið er um náttúrulega varpstaði. Hrafninn er staðfugl og einn fárra fugla sem finnast á hálendinu yfir háveturinn. „Krummi svaf í kletta- gjá, kaldri vetrarnóttu á,“ segir í kvæði og um fáa fugla hefur jafnmikið verið ort og krumma. Hann er og þekkt- ur spádóms- og gáfufugl. Hug- inn og Muninn voru spádóms- fuglar Óðins og Hrafna-Flóki treysti á hrafna til að finna Ís- land. Auðvelt er að laða hrafna að hýbýlum manna með mat- argjöfum á veturna en þeim þarf að gefa á opnum svæð- um. Þeir eru næstum alæt- ur. „Guð launar fyrir hrafninn“ segir máltækið. www.fuglavernd.is FUGL VIKUNNAR: HRAFN Fugl visku og spádóma HRAFN Hrafninn er staðfugl og einn fárra sem finnast á hálendinu yfir háveturinn. MYND/JÓHANN ÓLI HILMARSSON. Ástkær systir mín, föðursystir og mágkona, Guðrún Gunnarsdóttir frá Reykjum í Fnjóskadal, lést á Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík þann 7. desember. Útförin fer fram frá Illugastaðakirkju miðvikudaginn 16. desember kl. 14.00. Sætaferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri kl. 13.00. Tryggvi Gunnarsson Gunnar M. Guðmundsson Þóra K. Guðmundsdóttir Pálína Magnúsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Árnína Sigurveig Guðnadóttir Löngumýri 8, Akureyri, lést að Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 8. desember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 16. desember kl 13.30. Sóley Sigdórsdóttir Davíð Kristjánsson Rósa Sigdórsdóttir ömmu- og langömmubörn. Okkar ástkæri faðir, sonur og bróðir, Níels Ólafsson lést að heimili sínu í Århus í Danmörku þann 1. desember sl. Minningarathöfn auglýst síðar. Hafþór Níelsson Tryggvi Níelsson Ólafur Hafþór Guðjónsson Björg Ólafsdóttir Daniel Ólafsson Guðjón Hafþór Ólafsson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.