Fréttablaðið - 14.12.2009, Síða 40
32 14. desember 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS
Enska úrvalsdeildin:
BIRMINGHAM CITY - WEST HAM UNITED 1-0
1-0 Lee Bowyer (51.).
BOLTON - MANCHESTER CITY 3-3
1-0 Ivan Klasnic (10.), 1-1 Carlos Tevez (27.), 2-1
Gary Cahill (42.), 2-2 Micah Richards (46.), 3-2
Ivan Klasnic (52.), 3-3 Carlos Tevez (76.).
BURNLEY - FULHAM 1-1
0-1 Bobby Zamora (49.), 0-1 Bobby Zamora (50.),
1-1 Wade Elliott (59.).
CHELSEA - EVERTON 3-3
0-1 Petr Cech, sjm (12.), 1-1 Didier Drogba (17.),
2-1 Nicolas Anelka (22.), 2-2 Yakubu Aiyegbeni
(49.), 3-2 Didier Drogba (58.), 3-3 Louis Saha
(62.), 3-3 Louis Saha (63.).
MANCHESTER UNITED - ASTON VILLA 0-1
0-1 Gabriel Agbonlahor (20.).
STOKE CITY - WIGAN ATHLETIC 2-2
0-1 Emmerson Boyce (15.), 0-1 Emmerson Boyce
(17.), 1-1 Tuncay Sanli (36.), 1-2 Maynor Figueroa
(72.), 2-2 Ryan Shawcross (73.).
SUNDERLAND - PORTSMOUTH 1-1
1-0 Darren Bent (21.), 1-1 Younes Kaboul (93.).
TOTTENHAM - WOLVES 0-1
0-1 Kevin Doyle (2.)
LIVERPOOL - ARSENAL 1-2
1-0 Dirk Kuyt (41.), 1-1 Glen Johnson, sjm (50.),
1-2 Andrei Arshavin (58.)
STAÐAN:
Chelsea 16 12 1 3 40-13 37
Man. United 16 11 1 4 34-14 34
Arsenal 15 10 1 4 40-18 31
Aston Villa 16 8 5 3 26-14 29
Tottenham 16 8 3 5 35-22 27
Manchester City 15 6 8 1 29-21 26
Liverpool 16 7 3 6 32-22 24
Birmingham 16 7 3 6 16-16 24
Fulham 16 6 5 5 20-17 23
Sunderland 16 6 3 7 22-22 21
Stoke City 16 5 6 5 15-19 21
Blackburn 16 5 4 7 16-28 19
Burnley 16 5 3 8 20-34 18
Wigan Athletic 16 5 3 8 19-36 18
Everton 16 4 5 7 22-30 17
Hull City 17 4 5 8 17-34 17
Wolves 16 4 4 8 15-28 16
West Ham 16 3 5 8 24-31 14
Bolton 15 3 4 8 20-32 13
Portsmouth 16 3 2 11 14-24 11
N1-deild karla:
Valur-FH 20-23 (9-10)
Mörk Vals (skot): Arnór Þór Gunnarsson 5 (7/1),
Elvar Friðriksson 4 (11), Orri Freyr Gíslason 3
(3), Gunnar Ingi Jóhannsson 3 (6), Ernir Hrafn
Arnarsson 3 (8), Ingvar Árnason 1 (3), Fannar
Friðgeirsson 1 (5).
Varin skot: Hlynur Morthens 17 (40/3) 43%
Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 6/3 (6/3), Örn
Ingi Bjarkason 5 (7), Ólafur Guðmundsson 4
(10), Ólafur Gústafsson 4 (11), Jón Heiðar Gunn-
arsson 3 (4), Ásbjörn Friðriksson 1 (4).
Varin skot: Pálmar Pétursson 13/1 (33/1)
39%.
Fram-Stjarnan 26-34
N1-deild kvenna:
Fram-Víkingur 41-14
Haukar-KA/Þór 33-20
Valur-HK 41-22
Fylkir-KA/Þór 25-23
ÚRSLIT
FH tekur þátt í deildabikarnum eftir góðan baráttusigur á Val,
23-20. Bæði lið voru lengi að finna leiðina í gegnum
vörn andstæðingsins því leikmenn beggja liða
stóðu vaktina vel í vörninni. Vörn heimamanna
var mjög góð framan af og markvörðurinn Hlynur
Morthens varði vel í marki Vals. Gestirnir í liði FH
voru einnig að spila góðan varnaleik og var Pálmar
Pétursson traustur í rammanum. Staðan í hálfleik, 9-10.
Það var erfitt að sjá hvort liðið ætlaði að hirða öll stig-
in því liðin fylgdust að fram á lokamínútu leiksins. Það
var hornamaður FH, Bjarni Fritzson sem náði að skora
áður en flautan gall og gulltryggði gríðarlega mikilvæg-
an sigur FH gegn Val.
Það vantaði mikið í Valsliðið í leiknum og sóknar-
leikurinn var veikburða og hugmyndasnauður. Fannar
Friðgeirsson komst aldrei í takt við leikinn sem og Ernir Hrafn
Arnarsson og munar um minna. Hlynur Morthens, markvörð-
ur Vals, var ástæðan fyrir því að þeir voru inni í leiknum fram
til loka, varði oft frábærlega en það reyndist ekki nóg núna.
FH-ingar voru vel samstilltir og unnu þennan leik á liðsheild og
baráttu. Þeir stóðu vörnina vel og voru skipulagðir. Pálmar Pétursson
átti fínan dag í markinu og sýndi lykilmarkvörslu í lokin.
Eftir leikinn eru FH-ingar jafnir Val og Akureyri að stigum í
öðru sæti deildarinnar með 11 stig, rétt á eftir Haukum sem
sitja á toppnum með fjórtán stig.
„Þetta var alveg frábær sigur og gríðarlega mikilvægur fyrir
okkur. Ég var ánægður með liðsheildina og samstöðuna sem
er að koma alltaf meira og meira í liðið. Ef við ætlum að ná
árangri í þessari íþrótt þá verðum við að spila sem lið en ekki
einstaklingar. Við stóðum allir saman í dag og menn uppskera
eftir því,“ sagði Sigurgeir Árni Ægisson, leikmaður FH, ánægður
eftir leik.
Hlynur Morthens, markvörður Valsmanna, var eðlilega hundfúll
með tapið. „Vörnin var góð og ég var að finna mig vel. En það
virðist allt stoppa á sóknarleiknum. Það er alltaf grátlegt að tapa
svona leikjum. Veit ekki hvað er að en það þarf að skoða það
betur,“ sagði Hlynur eftir leik. - rog
N1-DEILD KARLA: FH TRYGGÐI SIG Í DEILDABIKARINN MEÐ GÓÐUM SIGRI Á VAL Í VODAFONE-HÖLLINNI
Baráttusigur hjá FH-ingum að Hlíðarenda
> Allt í mínus hjá Monaco
AS Monaco steinlá á heimavelli í gær fyrir Lille, 0-4. Eiður
Smári Guðjohnsen var kominn í byrjunarlið Monaco á ný
en hann fann sig engan veginn frekar en fyrri daginn. Fór
svo að hann var tekinn af velli á 62. mínútu. Þá var staðan
0-2 fyrir Lille. Monaco var í toppbaráttu fyrir nokkrum
vikum en leikur liðsins hefur síðan hrunið til grunna og
Monaco er nú í tólfta sæti deildarinnar.
Lille komst upp í þriðja sæti með sigrin-
um stóra.
FÓTBOLTI Helgin í enska boltanum
var skrautleg. Toppliðin Chelsea
og Man. Utd mættu bæði liðum
sem þau hafa ekki verið í vandræð-
um með í fjölda ára. Að þessu sinni
lentu þau bæði í miklu basli.
Aston Villa vann sinn fyrsta
deildarsigur á Man. Utd síðan 1995
en liðin höfðu mæst 27 sinnum í
deildinni eftir það án þess að Villa
næði sigri. Aston Villa komst með
sigrinum upp í þriðja sæti deildar-
innar sem það missti síðan aftur
til Arsenal. Lærisveinar Martins
O´Neill hafa verið í fantaformi
gegn stóru liðunum en þrátt fyrir
það heldur O´Neill sig á jörðinni.
„Þessi sigur gefur okkur mikið
sjálfstraust en það sjálfstraust
gæti auðveldlega fokið aftur út
um gluggann gegn Sunderland á
þriðjudag. Þetta er frábær sigur
og ég vil alls ekki gera lítið úr því
en það ánægjulegasta er að leik-
menn náðu árangri gegn liði sem
þeim hefur ekki gengið vel með,“
sagði O´Neill hæverskur.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, var ósáttur við þann litla tíma
sem var bætt við leikinn og hefur
stungið upp á því að aðrir en dóm-
arar ákveði uppbótartíma. Dóm-
ari leiksins bætti aðeins þremur
mínútum við síðari hálfleik þrátt
fyrir sex skiptingar og tvö löng hlé
vegna meiðsla.
„Hléin tóku rúmar tvær mínút-
ur og síðan allar þessar skipting-
ar. Þessi uppbótartími olli mikl-
um vonbrigðum. Það ættu aðrir en
dómarinn að halda utan um hver
réttur uppbótartími sé. Þetta er í
rauninni fáranlegt. Það er næst-
um komið árið 2010 og tími til að
þessu sé breytt,“ sagði Ferguson
svekktur.
Chelsea spilaði sinn fjórða leik
í röð um helgina án þess að ná
sigri. Everton nældi í 3-3 jafntefli
á Stamford Bridge en þetta voru
fyrstu stigin sem Chelsea tapar á
heimavelli í vetur.
„Hver getur eiginlega haldið því
fram að það sé krísa hjá okkur? Ég
er ekki á því að það sé nein krísa.
Við lékum vel en klúðruðum leikn-
um með því að verjast illa gegn
föstum leikatriðum,“ sagði Carlo
Ancelotti, stjóri Chelsea, en öll
mörk Everton komu upp úr föst-
um leikatriðum.
„Við eigum enn mikla mögu-
leika á að verða meistarar. Það er
mikið eftir af þessu móti og enska
úrvalsdeildin er erfið,“ bætti Anc-
elotti við. henry@frettabladid.is
Villa rotar öll stóru liðin
Aston Villa vann um helgina sinn fyrsta sigur á Old Trafford síðan 1983. Villa er
þar með búið að leggja Man. Utd, Chelsea og Liverpool í vetur. Chelsea missteig
sig gegn Everton en United nýtti ekki tækifærið gegn Aston Villa.
BEÐIÐ UM HJÁLP Drogba var í fínu formi
um helgina en Chelsea tókst samt
ekki að vinna. Liðið hefur ekki unnið í
síðustu fjórum leikjum sínum.
NORDIC PHOTOS/GETTY
SVEKKTUR Sir Alex Ferguson upplifði það í fyrsta skipti á löngum ferli um helgina
hvernig það er að tapa gegn Aston Villa á heimavelli. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Klaufaskapur Glens
Johnson og snilld Andrei Arshav-
in urðu þess valdandi að Arsenal
vann sætan útisigur, 1-2, á Liver-
pool í gær. Arshavin skoraði sig-
urmarkið en hann kláraði Liver-
pool einnig á sama stað í apríl
með fjórum mörkum. Hann kann
því vel við sig í Bítlaborginni.
Liverpool leiddi í hálfleik, 1-0,
en Arsenal var ekki með í fyrri
hálfleiknum. Arsene Weng-
er, stjóri Arsenal, ku hafa orðið
brjálaður í hálfleik og reiðilestur
hans skilaði sér.
Glen Johnson jafnaði leikinn
með skrautlegu sjálfsmarki en
hann lagði boltann í eigið net,
innanfótar. Glórulaust. John-
son mistókst síðan að hreinsa í
sigurmarkinu sem og að koma í
veg fyrir glæsiskot Rússans sem
söng í Netinu.
„Wenger öskraði á okkur í
hálfleik. Ég hef aldrei áður séð
hann svona reiðan,“ sagði Cesc
Fabregas, fyrirliði Arsenal, eftir
leikinn. „Hann var afar svekktur
og sagði að við ættum ekki skil-
ið að spila í treyju Arsenal ef við
ætluðum að spila svona áfram.“
Wenger viðurkenndi að hafa
látið leikmenn sína heyra það en
vildi annars ekkert tjá sig um
hálfleiksræðuna. Rafa Benitez,
stjóri Liverpool, segir að sjálfs-
mark Johnsons hafi komið sínum
mönnum úr jafnvægi.
„Sjálfsmarkið breytti öllu. Þá
fór sjálfstraust leikmanna og við
byrjuðum að gera mistök,“ sagði
Benitez eftir leikinn. - hbg
Liverpool tapaði enn eina ferðina í gær:
Reiðilestur Wengers
kveikti í Arsenal
VONBRIGÐI Steven Gerrard var svekktur og pirraður í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES