Fréttablaðið - 14.12.2009, Qupperneq 46
38 14. desember 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Við pabbi hennar erum að
rifna úr stolti. Það er draumur
hennar að hafa atvinnu af
þessu og ég er viss um að henni
tekst það. Hún er róleg týpa og
niðri á jörðinni svo ég hef engar
áhyggjur af henni.“
Auður Sólmundardóttir er mamma
Karenar Pálsdóttur, sextán ára söngkonu
sem tekur þátt í Eurovision eftir áramót
með laginu „Future“.
„Ég þrái að liggja uppi í rúmi með
tærnar upp í loftið og horfa á DVD.
Það móment kemur bara ekki nógu
oft,“ segir konungur poppsins, Páll
Óskar Hjálmtýsson.
Vinsældir Palla eru með ólík-
indum. Hann hefur selt plöturnar
Allt fyrir ástina og Silfursafnið í
meira en 32 þúsund eintökum og
er búinn að bóka sig á skemmtanir
út árið 2010 – og árið er ekki einu
sinni hafið!
„Síminn stoppar ekki. Ég er
löngu hættur að taka við bók-
unum, ég er að reyna að skera
niður ef eitthvað er. Mig vant-
ar ekki vinnu, mig vantar frí,“
segir Palli, en hann var staddur
í Vestmannaeyjum að æfa fyrir
jólatónleika þegar Fréttablaðið
náði í hann. „Ég er staddur á ein-
hverjum skrýtnum stað, þar sem
mér líður eins og ég sé búinn að
keyra mig út og er að sýna merki
ofþreytu. Það er bara ekki baun
sniðugt. Það er staður sem ég vil
ekki vera á.“
Páll Óskar fagnar stórafmæli á
næsta ári þegar hann verður fer-
tugur og því hyggst hann fagna
veglega. Þá vonast hann til að
senda frá sér plötu, en ætlar ekki
að stressa sig á því, heldur vinna
að henni þar til hún verður góð.
- Á svo ekki að skella sér á
strönd í janúar – taka smá frí?
„Jú. Ég er búinn að teikna upp
árið 2010 í stórum dráttum og inni
í því eru líka verðskulduð frí.“
- afb
Þreyttur Páll Óskar þráir frí
DUGNAÐUR Páll Óskar er bókaður út næsta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þegar ég var í háskóla var ég
oft með námskeið í Keflavík og á
Akureyri. Eftir það var maður oft
að hitta gömlu nemendurna og það
var verið að skora á mann að koma
aftur, svo ég tók bara ákvörðun um
að láta verða af þessu núna,“ segir
Ásta Bærings dansari sem opnar
dansskólann Danscentrum í Reykja-
nesbæ 11. janúar næstkomandi.
Sjálf er Ásta aðalkennari skól-
ans, en hún hóf dansnám í Dans-
listarskóla JSB aðeins fimm ára
gömul og lauk dansaradiplómu
árið 2001. Síðan þá hefur hún starf-
að sem dansari og danshöfundur
í leikhúsum og tekið þátt í söng-
leikjum á borð við Fame, Grease
og Hafið bláa svo eitthvað sé nefnt.
Aðspurð segir hún námið skiptast
í tvær annir og fjölbreytileikann
vera í fyrirúmi, en nemendur læra
ýmsa dansstíla svo sem, jazzdans,
street jazz og hip hop. „So You think
you can dance-þættirnir eru svo lít-
il fyrirmynd að náminu. Allir læra
ákveðna grunntækni, en við viljum
að nemendur geti tileinkað sér mis-
munandi dansstíla,“ segir Ásta. Auk
hennar kenna þær Guðríður Haf-
steinsdóttir og Ósk Björnsdóttir við
skólann, en vegna fjölda stráka sem
hafa skráð sig ætlar hún að bæta
við kennara. „Það eru rúmlega 100
nemendur búnir að skrá sig og þar
af eru rúmlega tuttugu strákar. Ég
er náttúrlega tilbúin að gera allt til
að halda þeim og vil ekki að þeir
flosni upp úr dansnáminu,“ útskýrir
hún og hvetur nemendur til að skrá
sig sem fyrst, en opið verður fyrir
skráningu til 9. janúar á heimasíðu
skólans danscentrum.is. -ag
Suðurnesjastrákar vilja læra dans
FJÖLBREYTT NÁM
Ásta segir So you think you can
dance-þættina vera fyrirmynd að
dansnáminu í Danscentrum sem
hún opnar í janúar í Reykjanesbæ.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÁRÉTT
2. hálfgras, 6. lést, 8. hyggja, 9. svelg,
11. í röð, 12. kryddblanda, 14. skæla,
16. skst., 17. arr, 18. erlendis, 20. tveir
eins, 21. sjúkdómur.
LÓÐRÉTT
1. lífræn sýra, 3. tveir eins, 4. pinku-
lítið, 5. rekkja, 7. æðibunugangs, 10.
dýrahljóð, 13. farvegur, 15. flatormur,
16. nudda, 19. ryk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stör, 6. dó, 8. trú, 9. iðu,
11. lm, 12. karrí, 14. gráta, 16. no, 17.
sig, 18. úti, 20. ðð, 21. asmi.
LÓÐRÉTT: 1. edik, 3. tt, 4. örlítið, 5.
rúm, 7. óðagots, 10. urr, 13. rás, 15.
agða, 16. núa, 19. im.
Auglýsingasími
– Mest lesið
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Hún er skosk og heitir Graeme
Massie.
2 Roman Abramóvitsj, eigandi
enska knattspyrnuliðsins
Chelsea.
3 Jón Ólafsson, tónlistar- og
dagskrárgerðarmaður.
„Hópurinn er hægt og rólega
að komast í form,“ segir Rúnar
Freyr Gíslason sem leikur í Faust
sem verður frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu 15. janúar. Leikritið
krefst mikils líkamlegs styrks og
hafa Rúnar Freyr og samleikarar
hans æft stíft undanfarinn einn
og hálfan mánuð undir styrkri
stjórn leikstjórans Gísla Arnar
Garðarssonar og þrekþjálfarans
Jóhannesar Níels Sigurðssonar.
„Þetta er ansi hressandi eftir
dálítið mörg blaserjakkahlut-
verk sem ég hef verið í, að fá
allt í einu að hreyfa sig almenni-
lega,“ segir Rúnar Freyr. „Að
fá að klifra svolítið, róla sér og
hoppa á trampólíni er bara æðis-
legt. Við byrjum alltaf í fótbolta
á morgnana og tökum svo þrek
og púl. Þetta er trúlega gott fyrir
líkamann og ekki síst sálina.
Maður er alltaf einhvern veginn
hress og kátur.“
Rúnar viðurkennir samt að
verkefnið sé mjög strembið og
að hver dagur sé mikil þrekraun.
„Ég er að sýna í Söngvaseiði og
Fjölskyldunni í Borgarleikhúsinu
fjórar til sex sýningar á kvöld-
in. Svo eru æfingar á Faust alla
daga þannig að maður er orðinn
ansi lúinn. En þetta er samt svo
gaman að ég kvarta ekki.“
Nýlega birtist viðtal í Frétta-
blaðinu við konu hans Selmu
Björnsdóttur sem er önnum kafin
við undirbúning á söngleiknum
Oliver! sem verður frumsýndur
á annan í jólum. Þar voru leidd-
ar að því líkur að Rúnar Freyr
myndi sjá um jólahaldið vegna
anna Selmu. „Ég kasta því bara
til baka. Selma sér um það,“
segir Rúnar og hlær. Hann er að
vonum spenntur fyrir frumsýn-
ingardegi Faust. „Maður verður
bara að fara rólega í jólasteikina
sem Selma ætlar að elda, þannig
að maður sé ekki of þungur á sér
15. janúar.“
freyr@frettabladid.is
RÚNAR FREYR GÍSLASON: FÆR LOKSINS AÐ HREYFA SIG Í FAUST
Lúinn eftir erfiðar æfingar
ERFIÐAR ÆFINGAR Rúnar Freyr og Gísli Örn Garðarsson í ógurlegri teygjuæfingu fyrir
Faust. Björn Hlynur Haraldsson fylgist spenntur með. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ingó Veðurguð
samdi nýjan suðræn-
an smell þegar hann
var úti í Argentínu í
haust við tökur
á Wipe Out.
Lagið, sem
gengur undir
nafninu
Adios, verður væntanlega fyrsta
Veðurguðalagið sem byrjar að
heyrast með vorinu. Útvarpsmað-
urinn Ívar Guðmundsson lætur
vel af laginu, en þeir Ingó deildu
saman hótelherbergi í Argentínu og
fékk Ívar þá að finna smjörþefinn
af Adios.
Stúlknasveitin The
Charlies, sem hét
áður Nylon, er
í skemmtilegu
viðtali í nýjasta
tölublaði tíma-
ritsins Monitor. Í
viðtalinu kemur
meðal annars
fram að fyrir
nokkru bauðst
Steinunni, Klöru
og Ölmu að
láta gera eftir
sér dúkkur. Stúlkurnar höfnuðu
því vegna þess að þeim fannst
hugmyndin kjánaleg, en þær voru
einnig hræddar við hvernig dúkk-
urnar kæmu út.
Talandi um dúkkur, þá var sú sem
Hagkaup lét gera eftir Birgittu
Haukdal ein sú allra eftirminni-
legasta, sérstaklega fyrir þær sakir
að vera alls ekkert lík söngkon-
unni. Annar Íslendingur verður
gerður ódauðlegur á þennan hátt
á næstunni, en Lego hyggst fram-
leiða leikföng byggð
á ævintýramyndinni
Prince of Persia, en
þar leikur Gísli Örn
Garðarsson einn
af vondu köllunum.
Það verður því
spennandi að
sjá hvernig Gísli
kemur út sem
Legokall.
- drg/afb
FRÉTTIR AF FÓLKI