Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 15. desember 2009 11
DÓMSMÁL Maður hefur verið
dæmdur í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi og til
greiðslu 200 þúsunda króna í
skaðabætur fyrir að nefbrjóta
mann á tjaldstæðinu á Flúðum í
sumar sem leið.
Árásarmaðurinn kom fyrir
dóminn við þingfestingu málsins
og játaði sök, en mótmælti fram-
kominni bótakröfu. Kvaðst hann
í umrætt sinn hafa verið áreittur
af fórnarlambinu, sem hann hefði
ekki þekkt. Árásarmaðurinn var
sautján ára þegar hann nefbraut
hinn. Með vísan til játningar
hans og ungs aldurs þótti rétt að
skilorðsbinda refsinguna. - jss
Tveir mánuðir skilorðsbundnir:
Nefbraut mann
á tjaldstæði
MÓTMÆLI Samtökin Nýtt Ísland
standa fyrir mótmælum fyrir
utan húsnæði fimm fyrirtækja
sem lána til bifreiðakaupa í dag.
Safnast verður saman fyrir utan
fyrirtækin og flautað stanslaust í
þrjár mínútur.
„Mótmælin byrja klukkan 12
hjá Íslandsbanka Kirkjusandi.
Bílalestin fer síðan að höfuðstöðv-
um SP Fjármögnunar að Sigtúni
42, þaðan að Lýsingu í Ármúla.
Tryggingamiðstöðin Síðumúla
verður heimsótt og við endum á
Suðurlandsbrautinni hjá Avant.
Aðgerðir eru boðaðar í hádeginu
alla þriðjudaga í vetur eða þar til
„réttlátar leiðréttingar vegna höf-
uðstólshækkunar bílasamninga
bílalánafyrirtækjanna gagnvart
lántakendum verður mætt“ eins
og segir í tilkynningu.
Samtökin Nýtt Ísland:
Vilja réttlátar
leiðréttingar á
bílalánum
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í tíu mánaða fangelsi
í Héraðsdómi Reykjaness fyrir
kynferðisbrot gegn dóttur sinni og
vinkonu hennar. Stúlkurnar voru
tólf ára þegar hann braut gegn
þeim í sumarhúsi árið 2008.
Maðurinn neitaði sök fyrir
dómi. Héraðsdómur taldi sekt
hans sannaða og að hann ætti sér
engar málsbætur. Auk þess að
greiða sakarkostnað var mannin-
um gert að greiða dóttur sinni 450
þúsund í bætur og vinkonu hennar
200 þúsund krónur. - jss
Tíu mánaða fangelsi:
Braut gegn
dóttur og vin-
konu hennar
ALÞINGI Seðlabanki Íslands gerði afdrifarík
mistök þegar hann ákvað að taka svoköll-
uð ástarbréf sem veð fyrir lánafyrirgreiðsl-
um til íslensku bankanna. Þetta sagði Gylfi
Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra,
á Alþingi í gær.
Björn Valur Gíslason, Vinstri grænum,
innti Gylfa eftir skoðun sinni á nýrri úttekt
Ríkisendurskoðunar á störfum Seðlabank-
ans í aðdraganda bankahrunsins. Spurði
Björn Valur hvort Gylfa þætti tilefni til að
rannsaka aðkomu æðstu stjórnenda Seðla-
bankans að þessum ákvörðunum.
Gylfi sagði ljóst að Seðlabankinn hefði
beðið verulegt tjón af lánveitingum til
íslenskra banka. Það væri nú metið á 270
milljarða, kynni að hækka eða lækka, en sé
þó augljóslega stærsta einstaka áfallið sem
íslenski ríkissjóðurinn varð fyrir.
Ekkert sé við það að athuga að Seðla-
bankinn veiti bönkum sem hann þjónustar
lánafyrirgreiðslu. „Það er hins vegar alveg
ljóst að Seðlabankinn gerði afdrifarík mis-
tök þegar ákveðið var hvaða veð voru tekin
voru fyrir lánunum,“ sagði Gylfi. Ástarbréf-
in sem tekin voru að veði séu í dag verðlaus,
en sem dæmi nefnir Gylfi að evrópski seðla-
bankinn, sem einnig lánaði íslensku bönk-
unum, hafi gert kröfu um veð í ríkisskulda-
bréfum og útlánasöfnum bankanna og hafi
litlu sem engu tapað.
Hugsanlegt sé að rannsaka þurfi málið
sérstaklega, en þó sé rétt að bíða niðurstöðu
rannsóknarnefndar Alþingis fyrst. - sh
Efnahags- og viðskiptaráðherra gagnrýnir ótrygg veð fyrir lánum Seðlabankans:
Seðlabankinn gerði afdrifarík mistök
BJÖRN VALUR GÍSLASONGYLFI MAGNÚSSON
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · www.mp.is
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Já, við bjóðum upp
á vildarþjónustu.
Fyrir alla okkar viðskiptavini.
Súsanna Antonsdóttir, viðskiptastjóri
F
í
t
o
n
/
S
Í
A