Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 50
30 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
WALT DISNEY LÉST Á ÞESSUM DEGI
ÁRIÐ 1966.
„Allir draumar geta ræst ef við
höfum hugrekki til að fylgja
þeim eftir.“
Walt Disney fæddist árið 1901 og
varð einn frægasti og vinsælasti
kvikmyndaframleiðandi sögunn-
ar. Fyrirtæki hans skapaði marg-
ar þekktar teiknimyndapersónur,
þar á meðal Mikka mús og Andr-
és önd.
MERKISATBURÐIR
1888 Glímufélagið Ármann er
stofnað.
1953 Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri er tekið í notkun.
1953 Þverárvirkjun er fyrst
gangsett.
1979 Davíð Scheving Thor-
steinsson kaupir bjór í
fríhöfninni við komu til
landsins, en er mein-
að að hafa hann með sér
inn í landið. Þetta leið-
ir til rýmkunar á reglum
og lögleiðingar bjórs á Ís-
landi.
2004 Bobby Fischer fær land-
vistarleyfi á Íslandi.
2004 Íslenska ríkið kaupir tíu
þúsund skopteikning-
ar eftir Sigmund Johan-
son Baldvinsen sem áður
höfðu birst í Morgunblað-
inu.
Á þessum degi árið 1995 dæmdi mannréttinda-
dómstóll Evrópu belgíska knattspyrnumanninum
Jean-Marc Bosman í hag í máli sem hann höfð-
aði gegn félagsliði sínu, knattspyrnusambandi
Belgíu og Evrópu (EUFA), varðandi rétt leik-
mannsins til atvinnufrelsis.
Bosman vildi komast frá Standard Liege til
fransks liðs árið 1990, en samningur hans við
belgíska liðið var útrunninn og vildi félagið fá
upphæð fyrir leikmanninn sem franska félag-
ið var ekki tilbúið að greiða. Fimm árum síðar
var úrskurðað að Bosman hefði verið frjálst að
fara því það samrýmdist reglum um frjálst flæði
vinnuafls. Íþróttir voru skilgreindar eins og hver
önnur atvinnustarfsemi innan Evrópusambands-
ins.
Dómurinn hafði mikil áhrif á knattspyrnuheim-
inn. Félögin áttuðu sig á því að það borgaði sig
að gera lengri samninga við leikmenn og greiða
þeim hærri laun. í kjölfarið kom launaskrið sem
enn sér ekki fyrir endann á.
ÞETTA GERÐIST: 15. DESEMBER 1995
„Bosmann-dómurinn“ kveðinn upp
AFMÆLI
RAGN-
HEIÐUR
GRÖNDAL
söngkona
er 25 ára í
dag.
GÍSLI ÖRN
GARÐARS-
SON leikari
er 36 ára í
dag.
DON JOHN-
SON leikari
er sextugur
í dag.
HERBERT
GUÐ-
MUNDSSON
tónlistar-
maður er
56 ára í
dag.
„Þetta hefur gengið vonum fram-
ar. Börnin hafa mjög gaman af því
heyra þessar sögur, og öfunum þykir
að sama skapi verulega skemmtilegt
að hitta krakkana,“ segir Ólöf Sverris-
dóttir, verkefnastjóri Sögubílsins Ær-
ingja, sem keyrir milli leikskóla borg-
arinnar á vegum Borgarbókasafnsins
með ýmsa sögumenn innanborðs. Fyrir
þessi jól eru það nokkrir afar sem ferð-
ast um með bílnum og segja leikskóla-
börnunum sögur af því hvernig jólaund-
irbúningurinn gekk fyrir sig í þeirra
ung dæmi og fleiru skemmtilegu.
Sögubíllinn Æringi, sem er fagurlega
skreyttur að utan af myndlistarmann-
inum Brian Pilkington, var vígður í
febrúar 2008. Hann keyrir um allt árið
um kring, og fyrir utan að heimsækja
leikskóla tekur hann þátt í ýmsum há-
tíðum, hefur viðkomu í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum á sumrin og svo
mætti lengi telja. Fyrir síðustu jól voru
það ömmur sem ferðuðust með bílnum
á leikskóla, en nú er eins og áður sagði
komið að öfunum.
Sögurnar sem afarnir bjóða börn-
unum upp á eru af ýmsu tagi. Sumir
þeirra teikna myndir og segja sögur
af sjálfum sér og æsku sinni, á meðan
aðrir fara með Jólasveinavísur Jóhann-
esar úr Kötlum, sýna muni sem þeir
hafa tálgað út eða smíðað og margt
fleira.
Afarnir koma úr ýmsum áttum.
Nokkrir þeirra eru virkir í félagsstarfi
aldraðra, og enn aðrir taka þátt í gegn-
um kunningsskap við verkefnisstjór-
ann. „Flestir eru þeir nú reyndar orðn-
ir langafar, en eru þá auðvitað afar um
leið,“ segir Ólöf. „Viðtökurnar eru yf-
irleitt mjög góðar og afarnir ná vel til
barnanna. Það er mjög gaman að fylgj-
ast með því skemmtilega sambandi sem
myndast þarna á milli.“
För afanna með Sögubílnum á leik-
skólana heldur áfram allt fram að Þor-
láksmessu, og því eiga margir af yngstu
kynslóðinni von á skemmtilegri sögu-
stund á næstu dögum.
kjartan@frettabladid.is
SÖGUBÍLLINN ÆRINGI: FERÐAST UM LEIKSKÓLA BORGARINNAR
Afar segja börnunum sögur
SÖGUSTUND Ingi Garðar Magnússon sagði börnunum á leikskólanum Bakkaborg í Breiðholti sögur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Arnór Sigurðsson
frá Hnífsdal, síðast til heimilis á
Dvalarheimilinu Felli í Reykjavík,
lést sunnudaginn 13. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmunda Arnórsdóttir Björn Ástmundsson
Málfríður Arnórsdóttir
Sigurður Arnórsson Sigríður Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
Vigfús Sigurðsson
húsasmíðameistari, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 17. desember kl. 13.00.
Inga Sigrún Vigfúsdóttir Óli Rafn Sumarliðason
Guðfinna Vigfúsdóttir Aðalsteinn Valdimarsson
og afabörnin.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Eriku Önnu Einarssonar
Hraunvangi 1, Hafnarfirði.
Ingvar G. Snæbjörnsson Ingigerður Guðmundsdóttir
Einar F. Snæbjörnsson Ólafía Agnarsdóttir
Fannlaug S. Snæbjörnsdóttir
Guðjón S. Snæbjörnsson Soffía Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær stjúpmóðir mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
Ólafía Pálína
Magnúsdóttir
frá Gilsfjarðarbrekku, síðast til heimilis
að Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést laugardaginn 12. desember. Jarðarförin auglýst
síðar.
Aðstandendur.
ADAM
BRODY
leikari er
þrítugur.
STUART
TOWNSEND
leikari er 37
ára.