Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 54
34 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
ath kl. 21 í Langholtskirkju
Kyrrðarstund með ljóðalestri og
íhugunartónlist: Sigurbjörg Þrast-
ardóttir skáldkona og Björn Hlyn-
ur Haraldsson leikari lesa ljóð en
Davíð Þór Jónsson og Tómas Guðni
Eggertsson leika kafla úr Orgelbuc-
hlein eftir Jóhann Sebastian Bach,
aðventu- og jólasálmaforleiki.
Kammerhópurinn Camerarc-
tica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika rétt fyrir
jólin og verða tónleikarnir
nú í fjórum kirkjum, Hafnar-
fjarðarkirkju, Kópavogskirkju,
Garðakirkju og Dómkirkjunni
í Reykjavík. Verða tónleikarnir
dagana 18.-21. desember en
Garðakirkja á Álftanesi bættist
við tónleikaröðina í fyrra en
þetta er í sautjánda sinn sem
þessir tónleikar eru haldnir og
hafa aldrei fleiri kirkjur hýst
þá en nú.
Í ár verða fluttar tvær af perlum W.A. Mozarts,
það er kvöldlokkan „Eine Kleine Nachtmusik“
fyrir strengi og hinn glæsilegi klarinettukvintett
K 581 en klarinettan var í miklu dálæti hjá hjá
Mozart og þessi kvintett frumfluttur á jólatón-
leikum árið 1789. Í lok tónleikanna er að venju
leikinn sálmurinn „Í dag er
glatt í döprum hjörtum“ úr
Töfraflautunni.
Tónlistarflytjendur á Mozart
við kertaljós í ár verða þau
Ármann Helgason klar-
inettuleikari, Hildigunnur
Halldórsdóttir og Bryndís
Pálsdóttir fiðluleikarar,
Svava Bernharðsdóttir
víóluleikari og Sigurður
Halldórsson sellóleikari.
Tónleikarnir verða sem hér
segir: Í Hafnarfjarðarkirkju
föstudagskvöldið 18. desember, í Kópavogskirkju
laugardagskvöldið 19. desember, í Garðakirkju
Álftanesi sunnudagskvöldið 20.desember og loks
í Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudagskvöldið 21.
desember. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir
og hefjast allir klukkan 21.00. Allir eru velkomnir
og miðar seldir eingöngu við innganginn.
Mozart við kertaljós
TÓNLIST Camerarctica í Dómkirkjunni þar
sem hópurinn endar tónleikaröð sína
þann 21. desember. MYND CAMERARCTICA
> Ekki missa af …
hinum árlegu jólatónleikum
Borgardætra á Café Rosenberg
sem verða dagana 15., 16.,
17. og 18. desember. Með
dætr unum leikur tríóið Þorps-
búar: Eyþór Gunnarsson leikur
á píanó, básúnu og klukkuspil,
Birgir Bragason á kontrabassa,
oud og ukulele og hinn marg-
verðlaunaði Magnús Tryggva-
son Elíassen leikur á trommur.
Á efnisskrá eru jólalög úr
ýmsum áttum, gamanmál og
ýmsar óvæntar uppákomur
sem of langt mál væri að skýra
frá hér. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21 öll kvöldin.
Egill Sæbjörnsson verður með
tónleika ásamt mörgum, kunn-
um tónlistarmönnum í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi
á fimmtudagskvöldið kl. 20.30.
Aðgangur er ókeypis en tónleik-
arnir eru haldnir í tilefni af sýn-
ingu hans Staðarandi og frásögn
sem nú stendur yfir í Hafnar-
húsinu og nýlegum geisladiski.
Tónleikarnir eru í samstarfi við
hljómplötuútgáfuna Borgin. Á tón-
leikunum leikur Egill ýmis lög frá
ferli sínum.
Heimildarmynd um Egil verður
sýnd í Sjónvarpinu þriðjudaginn
15. desember kl. 21.25 og endur-
tekin laugardaginn 19. desember
kl. 13.40. Heimildarmyndin er
gerð af frönsku sjónvarpsstöðinni
Arte og var frumsýnd samtímis í
Frakklandi og Þýskaland i fyrr á
þessu ári. Egill hefur verið virk-
ur í hringiðu myndlistarinnar á
meginlandi Evrópu undanfarin
tólf ár, en sýning hans í Hafnar-
húsinu er fyrsta stóra einkasýn-
ing hans í safni hér á landi. Veg-
leg bók um listamanninn kom út
fyrir skömmu og er hún fáanleg í
Listasafni Reykjavíkur og bóka-
verslunum.
Sýning Egils stendur til 3. jan-
úar 2010.
Egill er einn þeirra listamanna
sem valinn var á Carnegie Art
Award 2010 en hann hefur verið
afkastamikill í sýningahaldi og
gjörningagerð á undanförnum
árum. Fram undan hjá Agli eru
sýningar í virtum listastofnun-
um á borð við Frankfurther Kuns-
tverein, Göttingen Kunstverein og
víðar. - pbb
Egill á útopnu
MENNING Egill Sæbjörnsson, myndlist-
ar- og tónlistarmaður.
Bókmenntir ★★★★
Þegar kóngur kom
Helgi Ingólfsson
Kápan á nýrri skáldsögu eftir
Helga Ingólfsson er líklega sú
eina þar sem söguþráður er kynnt-
ur í nokkru máli, hann er lagður
ofan í fornlegt skjal en í baksýn er
mynd af Reykjavík á síðari hluta
nítjándu aldar: þar er tekið fram
að sagan greini frá örlögum ungr-
ar stúlku og nýfædds barns dag-
inn þegar Kristján níundi kemur
til Íslands sumarið 1874. Kápan
er einhver sú lakasta sem hefur
sést á þessu hausti og gerir því
miður ekki mikið fyrir kynningu
verksins. Saga Helga er býsna
löng, 367 síður og er tvímæla-
laust athyglisverðasta og vandað-
asta sakamálasagan sem kemur á
íslenskan markað fyrir þessi jól
og teygir sig jafnframt inni í aðra
geira með markverðum hætti. það
væri því synd ef hún færi fram
hjá lesendum.
Nú er það vel kunnugt að fjöldi
höfunda leitar til liðinna tíma í
leit að spennandi umfjöllunar-
efni, Helgi hóf feril sinn 1994
með tveimur tengdum sögum
sem gerðust á tímum Rómaveldis.
Hann er sagnfræðimenntaður og
Þegar kóngur kom … ber öll þess
merki að hann hefur sökkt sér
ofan í persónusögu og aldarfars-
lýsingu í heimildum af öllu tagi
þegar hann setti saman söguna.
Rannsókn hans nær ekki aðeins
til einstaklinga innan embættis-
mannastéttarinnar á þessum tíma
í Reykjavík, heldur líka til smæl-
ingjana, vatnsberanna, kotafólks-
ins, strákanna í Lærða skólanum,
hárra og lágra. Skapar skáldið
óhemju fjörlega og lifandi mynd
af Reykjavík vorið og sumarið
1874.
Meginatburðarás sögunnar
hverfist aftur um Sigríði, unga
konu sem uppnefnd er Sigga tólf,
sem er ófrísk og vill ekki segja
hver faðirinn er og örlög þeirra
mæðgina, skólastrákinn Móritz
Halldórsson, son Halldórs Frið-
rikssonar sem er fyrirferðar-
mikill í liði Jóns Sigurðssonar um
þær mundir, og Hjaltalín lækni.
Þá koma einnig við sögu Gestur
Pálsson skáld sem þá er enn þá í
skóla, Matthías Jochumsson, sem
er nýbúinn að kaupa Þjóðólf, lög-
regluþjónninn Jón Borgfirðingur
og fleiri og fleiri. Sagan er galop-
inn gluggi inn í smábæinn Reykja-
vík þetta ár. Helga tekst með mikl-
um ágætum að sýna okkur þorpið,
byggðina í kvosinni og kotbýlin í
kring, bæði við Kirkjugarðsstíg
(Suðurgötu) og ruðningana suður
í Þingholtshverfið. Sagan gerir vel
að koma lesanda fyrir í þessum
bæ á annasömum tíma en jafn-
framt vinnur Helgi af festu við
að keyra söguna fram í samtöl-
um sem mörg eru listavel unnin,
t.d. bæði það sem lagt er í munn
Hjaltalín lækni og eins Gesti Páls-
syni. Hér er líka brugðið upp lif-
andi myndum af nafnkunnum
fátæklingum eins og Sæfinni á
sextán skóm og hirðusemi hans
ofin snyrtilega inn í plottið, en
hann safnaði öllu sem varð á vegi
hans.
Í sögunni er svo svipt hulunni
af ýmsum fyrirbærum í bæjarlíf-
inu, drykkjuskap ungra manna,
lauslæti ungra kvenna af lægra
standi, kostulegum atburðum við
framkvæmd konungsheimsóknar-
innar, slaðrinu í bænum, uppreisn-
arandanum í skólanum, háttum
heldri borgara, t.d. við skotæf-
ingar í Skothúsinu, framgangi við
krufningar, þetta er haganlega
ofin saga og hvik af hugmynda-
fjöri sem hleypir lífi í söguleg-
ar staðreyndir og nýtir þær til
að skapa alíslenska og spennandi
sakamálasögu.
Lesendur getur ekki grunað
fyrr en nánast undir lok sögunn-
ar hver hinn seki er, og eru þeir
raunar tveir, annar hátt settur en
hinn lágt settur, og báðir gera sig
seka um svik sem leiða til dauða
saklausra. Getur hugsast að hinn
óvænta játning í lok sögunnar
lögð í munn merkispersónu sé
svo mikið feimnismál að útgef-
andi skirrist við að gefa verk-
inu það púst á markaði að það fái
almenna athygli?
Rithöfundum hefur gengið mis-
vel, flestum illa, að endurskapa
heim síðari hluta nítjándu aldar,
ekki síst ef þeir hafa freistast til
að leggja orð í munn sögufrægu
fólki. Helga tekst það mikið vel
og þótt sagan taki nokkuð lang-
an krók í kringum konungs-
dagskrána sjálfa, með mörgum
skemmtilegum smærri atriðum,
þá er snöggur endirinn óvæntur.
Þegar kóngur kom er vel samin og
vel undirbyggð sakamálasaga sem
bregður leiftrandi ljósi á Reykja-
vík og bæjarbúa þessa tíma.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Frumlegasta plottið
á þessu glæpahausti, frábærlega
undirbyggð saga með merkilegri
mannlífslýsingu.
Frumlegasti krimminn
Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir ásamt blásarasextett,
í daglegu tali Diddú og
drengirnir, heldur sína
árlegu aðventutónleika
í Mosfellskirkju í kvöld
kl. 20.30. Efnisskrá er
með hefðbundnum hætti,
klassískir tónar og jóla-
lög. Þar verður söng-
konan mætt með sitt
glaða fas og mun blanda
saman hátíðleika og
hispurs leysi og blásara-
sveitin þarf að leika bæði milt og blítt en vísast puðra vel í hornin
sér til svölunar og gestum til hressingar. Miðasala er í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar. - pbb
Drengirnir og Diddú
TÓNLIST Diddú og drengirnir leika í kirkjunni
frægu á Mosfelli í kvöld.
HELGI INGÓLFSSON
Olivier Messiaen
Vingt Regards sur l´Enfant-Jésus
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó/piano