Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 52
BAKÞANKAR
Önnu
Margrétar
Björnsson
32 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hér er ein. Hún heitir
Beta, hún er elskuleg
og er að leita að ein-
hverjum sem dýrkar
að þvælast um græn-
ar grundir og baula
og...ó nei, hún er með
„okkar“- veikina.
Hatturinn fékk á sig
brotsjó vestur af Ferder-
firði og hér er hennar
hátign hífð um borð af
sjómönnum sem voru á
veiðar þarna í grennd.
Flottur
hattur
Ég er alveg að verða búinn
með mínúturnar sem eru
ókeypis.
Skiljan-
lega.
Og ef þú notar fleiri
en þær þá ert
þú búinn að
vera.
Skilið
Hvað gerðist
eiginlega?
Ég var að hoppa
í laufunum með
börnunum.
Það var ótrúlega
skemmtilegt.
Oh, að vera
ungur og
áhyggjulaus.
Og ekki þessi ábyrgðar-
fulli og tillitsami einstakl-
ingur og þú vanalega ert,
eða hvað?
Nú í miðjum jólaundirbúningnum stendur yfir mikilvæg ráðstefna í
Kaupmannahöfn. Á meðan við stressum
okkur yfir heimilisþrifum, jólagjafainn-
kaupum og of mikilli vinnu í aðdraganda
hátíðahalda eru stærstu auðríki heims að
reyna að komast að samkomulagi til þess
að stöðva hlýnun jarðar. Við geispum yfir
fyrsta kaffibolla morgunsins og flettum
yfir fréttir af loftslagsráðstefnunni í dag-
blöðunum. „Hundrað þúsund mótmælend-
ur gengu til bjargar loftslagi.“ „Tólf
hundruð manns handteknir í mótmæl-
um helgarinnar.“ Við geispum aftur.
Mótmæli eru svo þreytandi.
ÞAÐ er ólíklegt að viðræður helstu
ráðamanna heims beri mikinn
árangur. Áherslur eru lagðar á
minni losun gróðurhúsaloftteg-
unda út í andrúmsloftið en stór-
veldi eins og Bandaríkin og
Kína munu ekki geta samið
um slíkar tölur. Hinn geðþekki
Barack Obama getur lítið gert
utan þess að halda innblásnar
ræður sem gætu vakið áhuga
á málefninu. Þetta málefni
ætti þó að eiga erindi við
flesta. Við mannfólkið, sem
höfum nefnilega lifað við
ágætis jafnvægi í veðrum og
vindum undanfarin tíu þúsund
ár, erum að uppgötva að partíið er alveg
að verða búið.
FLÓKIN samfélög okkar byggja að svo
miklu leyti á veðurfari og vissunni um að
uppskera heppnist. Við viljum byggja upp
borgir án þess að eiga óveður eða flóð-
bylgjur á hættu. „Ef loftslagið væri banki
væri búið að bjarga því,“ stóð skrifað á
spjöld mótmælenda í Kaupmannahöfn.
Kreppan er nefnilega hlægileg í saman-
burði.
ÁRLEGA birtast fleiri og fleiri uggvekj-
andi niðurstöður. Við eigum ekki eftir
að sigla rólega inn í snarbilað veðurfar
heldur gæti þetta gerst í einni stórri og
skelfilegri svipan. En það er auðvelt að
hrista svona staðreyndir af sér eða benda
á Obama eða Hu Jintao á meðan maður
nennir ekki að flokka ruslið og setur bíl-
inn snemma í gang fyrir utan á morgnana
af því að það er svo kalt úti.
KANNSKI ætti að leggja meiri áherslu
á að fræða fólk um hverju einstakling-
ar geta áorkað. Minnkum neyslu á kjöti
og mjólkurvörum, hættum gosþambinu.
Endurvinnum ruslið. Og lesum jafnvel
litlu fréttina í blaðinu þegar forsætisráð-
herra Tuvalu biður þingfulltrúana í Kaup-
mannahöfn um grið fyrir landið sitt svo að
það sökkvi ekki í sæinn.
Partíið er alveg að verða búið
POPP er nýtt fylgirit Fréttablaðsins
og kemur út mánaðarlega.
Við viljum að þið sendið okkur
klikkuðustu símamyndirnar ykkar.
Bestu myndirnar birtast í næsta tölublaði og
höfundur bestu myndarinnar fær tvo kassa
af Doritos í verðlaun.
Sendið myndirnar í síma:
696 POPP (696 7677) eða á
popp@frettabladid.is
Við viljum tvífara fræga fólksins!
Er kærastan þín eins og Angelina Jolie eða er
vinur þinn eins og Jack Black? Sendu okkur mynd
til sönnunar og hún gæti birst í næsta tölublaði.