Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 20
20 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Út er komin í fjórðu útgáfu „Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum“ eftir George H. F. Schrader. Bók- in er líkast til eina hrein- ræktaða viðskiptafræði- bókin sem út kemur hér á landi fyrir jól. Schrader var stórefnamaður sem kom hingað til lands árið 1912 og fyrirfór sér á leið frá land- inu þremur árum síðar. Ævi Schraders hefur verið nokkr- um leyndardómi hjúpuð en nú hefur útgefandinn enn grafið upp nýjar upplýsingar um hann. Þýskættaður Bandaríkjamað- ur að nafni George H. F. Schrader eyddi hér síðustu þremur árum ævi sinnar áður en hann fyrirfór sér árið 1915, aðeins 57 ára gam- all. Hann bjó á Akureyri og sinnti margvíslegu menningar- og upp- byggingarstarfi, skrifaði bók um hesta og aðra bók þar sem hann deildi fróðleik sínum úr heimi við- skiptanna í Bandaríkjunum. Það eru „Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum“ sem nú er komin út í fjórðu útgáfu. Ásgeir Jónsson hagfræðingur gefur bókina út og telur líklegt að hún sé eina viðskiptafræðibókin sem út kemur á íslensku fyrir þessi jól. Hinar fjalli allar um hrunið. Hann skrifar jafnframt nýjan inn- gang við útgáfuna, en hann hefur stundað töluverðar rannsóknir til að grafast fyrir um ævi Schra- ders sem hulin hefur verið nokkr- um leyndarhjúp. „Eftir útgáfuna í fyrra fékk ég töluverðar ábending- ar,“ segir Ásgeir, en fyrri útgáfur eru uppseldar, sem og frumútgáf- an frá 1913. Texta bókar Schraders þýddi Steingrímur Matthíasson læknir, sonur Matthíasar Jochums- sonar þjóðskálds. Í bókinni kemur fram að áður en Schrader birtist hér skyndilega árið 1912 hafði hann starfað á verð- bréfamarkaðinum á Wall Street í 35 ár og stórefnast, en hingað kom hann frá Englandi. Í þessari útgáfu kemur jafnframt fram að grunnur- inn að auði Schraders er uppfinning hans á loftventlinum sem enn í dag er notaður nær óbreyttur á bíldekk um heim allan. Þegar Schrader kom hingað hafði hann áður fengið taugaáfall, var plagaður af banvænum sjúkdómi og undir það síðasta var farið að draga verulega af honum. Heilræði Schraders ganga mikið út á sómasamlega hegðun og að missa ekki sjónar á lífsins gæðum í græðgi og peningahyggju. Ráðin standast vel tímans tönn, en sem dæmi má nefna eitt heil- ræði sem átt gæti heima í hvaða samningatæknikennslubók sem er: „Þegar þú átt í ágreiningi, sem þú vilt lagfæra, settu þig í spor þess manns, sem þú átt í ágreiningi við, og reyndu að hugleiða málið frá hans sjónarmiði, mæt honum síðan miðja vegu.“ olikr@frettabladid.is Efnaðist á uppfinn- ingu loftventilsins ■ Vert er að rifja upp hvað Jón Árnason hafði um jólasveina að segja í þjóðsagnasafni sínu, núna þegar karlarnir koma til byggða hver af öðrum. Ein heimild hans (gömul kona) nefndi þessa þrettán: Tífill, Tútur, Baggi, Lútur, Rauður, Redda, Steingrímur og Sledda, Lækjar- æsir, Bjálminn sjálfur, Bjálmans barnið, Litlipungur og Örva- drumbur. Eftir annari sögn voru þeir aðeins átta talsins og heita: Gáttaþefur, Gluggagægir, Potta- sleikir og Pönnu- skuggi, Guttormur og Bandaleysir, Lampaskuggi, Klettaskora. FRÓÐLEIKUR JÓLASVEINARNIR „Það er það að frétta að ég er búinn að opna lögmannsstofu,“ segir Lúðvík Bergvinsson, fyrr- verandi þingmaður Samfylkingarinnar. Lúðvík opnaði stofuna Bonafide í Kringlunni fyrr í mánuðinum. Hann er eini eigandinn en samtals starfa þrír á stofunni. „Bonafide, reyndar í tveimur orðum, er latína og þýðir ‚Í góðri trú‘. Við ákváðum að fá þetta lánað,“ segir Lúðvík. Stofan tekur að sér mál tengd stjórnvöldum og viðskiptum, að sögn Lúðvíks. „Við erum afar ánægð með starfið,“ bætir hann við. Áður en Lúðvík opnaði stofuna þurfti hann að ljúka við að innleysa málflutningsréttindin sín, og til þess varð hann að setjast á skólabekk í tvo mánuði og þreyta þar til gert námskeið. „Það var talsvert strembið nám, það er víst sjötíu prósenta fall í þessu,“ segir Lúðvík, sem náði þó prófinu. En saknar Lúðvík ekkert stjórnmála- vafstursins? „Það má segja sem svo að þetta var eitthvað sem ég ætlaði alltaf að gera. Pólitíkin er skemmtilegur vett- vangur og skemmtileg reynsla, og ég bý að henni, en það er hins vegar alltaf gaman að takast á við ný verkefni.“ Og jólaundirbúningurinn er kominn á fullt hjá Lúðvíki og fjölskyldu. „Já, það má segja það. Undirbúningurinn hefur reyndar lagst þyngra á konuna heldur en mig en krakkarnir eru farnir að fá í skóinn og svona, þótt það komi kannski okkur foreldrunum ekki beint við.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? LÚÐVÍK BERGVINSSON, FYRRVERANDI ALÞINGISMAÐUR Opnar lögmannsstofu í Kringlunni Ósanngirni lífsins „Það var með herkjum að manna tókst leikskólana í góðærinu og núna loksins þegar betur gengur að fá fólk til starfans erum við látin taka til eftir partíið sem okkur var ekki boðið í.“ HARALDUR GÍSLASON, DEILDAR- STJÓRI Á LEIKSKÓLA Fréttablaðið 14. desember. Eðlileg verkaskipting „Ég kom einungis að þeim gerningi að veðsetja hluta- bréfin fyrir hönd þeirra sem á þeim héldu. Aðrir voru að vinna í endurfjármögnuninni í samvinnu við bankann.“ BJARNI BENEDIKTSSON, FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS OG FYRRV. STJÓRNARFORMAÐUR BNT. DV, 14. desember. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Fjölskylduhjálp Íslands fengu í gær afhent 900 kíló af humri frá Vinnslustöðinni í Vestmanneyjum. Humarinn er ætlaður til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Landflutningar-Samskip tóku að sér að flytja humarinn til Reykja- víkur án endurgjalds, geyma hann hjá Samskipum og flytja á dreifing- arstaði Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar. Humrinum fylgja kveðjur frá Vestmannaeyjum með ósk um gleðileg jól og frið á nýju ári. Í til- kynningu er haft eftir Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, fram- kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinn- ar, að margir starfsmenn fyrir- tækisins hafi kynnst atvinnuleysi og erfiðleikum þegar fyrirtækið sagði upp miklum fjölda fólks fyrir rúmum áratug. Þeir eigi því auðvelt með að setja í spor fólks sem á erf- itt með að láta enda ná saman. - sh Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gefur hjálparstofnunum 900 kíló af humri: Bágstöddum gefinn humar GJÖFIN AFHENT Fulltrúar Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar tóku við gjöfinni frá fulltrúum Vinnslustöðvarinnar og Samskipa í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PI PA R\ TB W A S ÍA á einn miða 29. desember 75.000.000 Þeir sem eiga miða í Happdrætti Háskólans geta átt von á 75 milljóna afmælisvinningi í síðasta útdrætti ársins. Þú getur ennþá verið með! HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Fáðu þér miða á www.hhi.is eða í síma 800 6611 Glösin sem gera góð vín betri www.fastus.is 580 3900 Síðumúla 16 Rauðvínsglas 55 cl. 1.295 Hvítvínsglas 40 cl. 1.195 Kampavínsglas 20 cl. 1.095 ÁSGEIR JÓNSSON BÓK SCHRADERS Eftir hrunið í fyrra lagðist Ásgeir Jónsson útgefandi í mikla heimildarvinnu um Schrader. Eftir að þriðja útgáfa kom út í fyrra fékk hann fjölda ábendinga og hefur grafið upp enn meiri upplýsingar um þennan merka mann, sem hvarf efnaður af sviði viðskiptanna til að sinna mannúðarmálum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.