Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 30
15. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hennar
Fréttablaðið spurði Írisi
Kristjánsdóttur vefstjóra, sem
gengst fúslega við því að vera
nörd, hvaða græjur væru
efstar á jólaóskalistanum.
„Ég er gamaldags og guðsnáðar
nörd,“ segir Íris Kristjánsdóttir
vefstjóri. Hún segir mikinn mun
á því að vera nörd og tækjafíkill.
„Tækjafíkill kaupir allt nýtt sem
kemur á markaðinn og spáir ekki
í gæðum eða virkni, bara að eiga
það nýjasta. Nörd spáir í af hverju
hluturinn var hannaður, hvern-
ig hugmyndin á bak við hlutinn
kviknaði og hvort hægt sé að betr-
umbæta hann. Mér finnst mjög
gaman að sjá hvað er alltaf að bæt-
ast við græjuflóruna og hef ótrú-
lega gaman af hlutum sem eiga að
létta okkur lífið eða hjálpa okkur
að sjá það í nýju ljósi. Ég á dálít-
ið af gömlum græjum
líka. Til dæmis
tuttugu ára
gamlan Pac-
man-tölvu-
leik og
23 ára
gam-
alt Fischer
Price-kassettu-
tæki. Dásemd,“
segir Íris.
Spurð um þær
græjur sem efstar
eru á óskalistan-
um fyrir jólin
nefnir hún
fyrst fjarstýrt
kælibox. „Ég er ekki latur gest-
gjafi, en mér finnst þessi græja
bara meiriháttar sniðug. Hún minn-
ir mig á R2D2
ú r S t a r
Wars, og
hver vill
ekki fá
kaldan
drykk
af-
hentan af ekta vélmenni?“
Svokölluð Asus eeetop, sem er
tölva með snertiskjá, er Írisi einn-
ig ofarlega í huga. „Ég slefaði
þegar ég frétti fyrst af þessari
vél. Asus er mitt uppáhald, með
öruggustu vélunum á markaðnum
í dag og bilanatíðnin lág. Hönnun-
in er flott og hún er frábær fyrir
fingralanga og fólk með snertiþörf
á háu stigi,“ segir Íris.
Loks hefur Íris augastað á klæði-
legum rafmagnsgítar, eins og hún
orðar það, en þar er um að ræða
stuttermabol með innbyggðum
gítar. Á gítarhálsinum eru takkar
fyrir hvert grip, og því auðveldlega
hægt að spila mörg af þekktustu
rokklögum sögunn-
ar á bolinn. Með-
fylgjandi er svo lít-
ill magnari sem
hægt er að festa í
belti eða vasa. Íris segist afar
spennt fyrir þessari græju. „Ekki
meiri luftgítar fyrir mig. Loksins
get ég spilað mína eigin þematón-
list hvert sem ég fer, og allir fá að
heyra! Ég þarf bara að drífa mig að
læra gripin fyrst,“ segir Íris.
- kg
R2D2-kælibox og gítarbolur
Vefstjórinn Íris er með græjudellu og á meðal annars nokkuð af gömlum tækjum. Hér
stillir hún sér upp með Fisher-Price kassettutæki og Pacman-tölvuleik frá því fyrir
tveimur áratugum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
●FYRIR NÝBAKAÐA FORELDRA Börn halda áfram að fæðast hér á landi eins og annars staðar, hvað sem
líður öllum kreppum og Icesave-reikningum. Ekki minnkar heldur
mikilvægi þess að sjá eins vel um yngsta fólkið og kostur er. Jólagjaf-
ir til nýbakaðra foreldra geta þannig endurspeglað væntumþykju og
hugulsemi.
Bókin Hvað á ég að gefa barninu mínu að
borða eftir Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur
kemur nú út í nýrri og endurbættri útgáfu, en
hún hefur notið mikilla vinsælda frá því hún
birtist fyrst í bókahillum fyrir tveimur árum.
Bókin býr yfir ráðleggingum og svörum við
flestum spurningum foreldra sem langar að
gefa barninu sínu frá byrjun næringarríkan
og heilsusamlegan mat, og er einnig leiðarvísir fyrir þá sem langar
að læra meira um hollt mataræði en vita ekki hvar þeir eiga að byrja.
Þegar bætast við fjöldinn allur af girnilegum uppskriftum að barna-
mat og hollum mat fyrir alla fjölskylduna og barnaafmælin er ljóst að
fundin er jólagjöf sem ætti að vekja lukku hjá mörgum.
● GEFÐU ÞAÐ SEM
HANA LANGAR Í Stund-
um getur reynst þrautin þyngri
að finna gjöf handa konunni
í lífi sínu. Sumar konur kaupa
sér allt sjálfar sem þær lang-
ar í sama dag og það kemur í
verslanir. Þetta á reyndar við um
bæði konur og karla og alveg
óþolandi að kaupa gjafir handa
þessu fólki. Aðrar konur hafa
afar skýra hugmynd um hvað
þær vilja og svo nákvæmar á
köflum að það er engin leið að
finna þennan eina hárrétta lit
eða nákvæmlega rétta sídd af
eyrnalokkum. Handa
svona fólki er í
raun bara til ein
fullkomin gjöf:
gjafakort! þau er
bæði hægt að fá í
uppáhaldsbúð viðkomandi eða
í stórum verslunarkjörnum, svo
sem Kringlunni, Smáralind eða
Miðborginni. Jafnvel bankarn-
ir hafa tekið gjafakortin upp á
arma sína og þá er hægt að fara
hvert sem er með kortið. Gjafa-
kortin er hægt að fá upp á mis-
háar upphæðir og fyrir þau er
hægt að kaupa allt mögulegt,
jafnvel hægt að fara út að borða
eða í klippingu. Gjafakort í nudd
eða dekur er líka góð gjöf og
svo má líka gefa kort upp á
klukkutíma knús eða þrif.
Oft eru bestu jólagjafirnar þær
sem skilja eitthvað eftir sig og
gagnast viðtakendunum til lang-
frama.
Þegar rætt er við fólk sem er á
og upp úr miðjum aldri lýsir það
oft yfir eftirsjá yfir að hafa aldrei
lært almennilega á neitt hljóðfæri.
Oft og tíðum er ástæðan sú að téðir
einstaklingar „bara drifu sig aldrei
í þetta“ eða eitthvað á þá leið.
Örlítil forræðishyggja á vissu-
lega rétt á sér í þessu tilfelli. Gefðu
byrjendanámskeið í gítar-, píanó
eða trommuleik (eða hvaða hljóð-
færi sem er), í jólagjöf og fylgstu
í návígi með nýrri Björk, Röggu
Gísla eða Lay Low verða til. Það
borgar sig margfalt og er nærandi
fyrir sálartetrið.
Tónlistarkonur
framtíðarinnar
Gefðu henni tónlistarnámskeið fyrir
byrjendur og sjáðu nýja Lay Low verða
til.
Forsíðumynd: Anton Brink Fyrirsætur: Silvia Santana og Ástríður Viðarsdóttir Tökustaður: Gleraugnasalan Laugavegi 65
Bakteygjubrettið
Eykur sveigjanleika
Linar bakverki
Nálastungudýnan
Eykur orkuflæði og vellíðan
Er slakandi og bætir svefn
Stuðningshlífar
Einstök hönnun og gæði
Bak, úlnliðs, ökkla- og hnéhlífar
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Opið virka daga frá kl. 9 -18
og laugardaga til jóla kl. 11-16
y g
Styrkir magavöðvana
Airfree lofthreinsitækið
Betra loft - betri líðan!
Eyðir örverum og ryki
Heilsusamlegar
jólagjafir
Verð frá 9.750 kr.
Verð 7.950
Verð 117.800 kr.
Verð frá 29.990 kr.