Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 24
24 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Væntingar fólks til alþjóðlegu ráðstefnunnar um loftslags- breytingar sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn eru miklar en jafnframt blasir við að verkefni þeirra sem þar funda er gríðar- legt. Það þarf að taka ákvarð- anir sem munu hafa mikil áhrif á lífsstíl og lífskjör almennings um allan heim og þó enn þá meiri á umhverfi og afkomu komandi kynslóða. Aukin hitnun andrúms- loftsins undanfarna öld af manna- völdum og miklar hnattrænar breytingar sem hún getur leitt af sér á tiltölulega skömmum tíma munu raska lífskjörum og tilvi- stargrundvelli manna og fleiri lífvera á hátt sem erfitt er að spá fyrir um. Ráðstefnan þarf að komast að róttækum niðurstöð- um sem víðtæk sátt mun ríkja um — það verður augljóslega ekki auðvelt verkefni. Samt sem áður er nauðsynlegt að einhver árangur verði af þessum mikla fundi. Það eina sem er ljóst er að allar tillögur sem miða að því að takmarka losun gróðurhúsaloft- tegunda munu kalla á mótmæli hagsmunaaðila og einnig af hálfu stjórnmálamanna og vísinda- manna sem eru á launaskrá þess- ara sömu hagsmunaaðila. Á hinn bóginn er hætt við því að niðurstaðan af ráðstefnunni verði samkomulag um aðgerðir sem munu virðast róttækar við fyrstu sýn og eflaust kalla á hörð mótmæli, en ganga eigi að síður of skammt og veita rými fyrir sveigjanlega túlkun. Það virðist t.d. róttæk aðgerð að leggja til 80% niðurskurð á losun gróður- húsalofttegunda fyrir 2050 en jafnframt blasir við mikil óvissa um umhverfisáhrif þótt sú yrði lausnin. Það skiptir nefnilega öllu máli hvort niðurskurður- inn yrði mestur í upphafi eða við lok þessa fjörutíu ára tímabils. 10% niðurskurður á árinu 2010 væri t.d. mun róttækari aðgerð ef hægt væri að koma honum í framkvæmd. Ljóst er að núverandi losun gróðurhúsalofttegunda mun leiða af sér tveggja gráðu hækk- un meðalhita í andrúmsloftinu ef ekkert verður aðhafst. Einn- ig er sennilegt að slík hækkun yrði óafturkræf um langt skeið, jafnvel þúsundir ára. Umhverf- isáhrif af þvílíkri hækkun yrðu ófyrirsjáanleg en ljóst er að hún myndi raska lífi milljóna manns verulega. Skýrasta dæmið er um ríki sem munu hverfa í hafið, eins og Kyrrahafseyjan Tuvalu. Á hinn bóginn hefur alls ekki komið skýrt fram hversu mikill samdrátturinn í losun gróður- húsalofttegunda þarf að vera til þess að forða slíkri niðurstöðu. Samkvæmt rannsókn sem birtist í tímaritinu Nature í apríl síðast- liðnum er sú stærð líklega ekki umfram 1000 milljarða tonna af koltvísýringi. Miðað við þá tölu má einungis nýta 22% af því magni af kolum, olíu og jarðgasi sem nú er aðgengilegt fyrir árið 2050. Ef gengið er meira á þessar orkulindir eru líkur á meiri hitn- un og uggvænlegum umhverfis- áhrifum í framhaldi af því. Gallinn við ráðstefnuna sem núna stendur yfir er að viðræð- urnar snúast ekki um hvernig eigi að hagnýta þessar tiltæku orkulindir – ríkisstjórnir heims gera sér enga von um að mögu- legt sé að ná samkomulagi um að skipta þeim á milli þjóða heims með réttlátum hætti. Þess í stað er sjónum beint að útblæstrin- um sem er afleiðingin af nýtingu þessara orkulinda. Þar er svig- rúmið því miður meira til þess að túlka niðurstöður ráðstefnunnar eins og hentar hverjum og einum. Á endanum eru þetta þó einung- is tvær hliðar á sama peningi; ef birgðir af olíu, kolum og gasi eru unnar úr jörðu þá er þeim líka brennt. Þess vegna er skringilegt að sjá stjórnmálamenn ganga til viðræðna í Kaupmannahöfn með yfirlýstan ásetning um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en hafa jafnframt á teikniborð- inu áætlanir um hagnýtingu orkulinda sem torvelda munu að markmið ráðstefnunnar náist. Á endanum snýst vandinn sem hlýst af losun gróðurhúsaloftteg- unda um orkubúskap mannkyns og hvernig hann eigi að vera. Það geta allir verið sammála um að æskilegt sé að hann sé sjálfbær þannig að orkunotkun okkar rýri ekki möguleika komandi kyn- slóða. Núna er hann það alls ekki þar sem á skömmum tíma hefur verið gengið á milljón ára birgðir af steingervingum til að standa undir orkufreku nútímasamfé- lagi. Á Íslandi sjáum við þessa sömu skammsýni í áformum um að virkja allt mögulegt vatnsafl á landinu á fáeinum árum í þágu fáeinna stórfyrirtækja. Þegar kemur að orkunýtingu virðist bannað að hugsa til langs tíma. Orkunýting og útblástur UMRÆÐAN Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar um loftslagsmál Lokasprettur loftslagsráð-stefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hefst í dag. Ráðherrar tínast til Hafnar hver á fætur öðrum og fyrir lok vik- unnar þarf að innsigla samkomu- lag um aðgerðir gegn loftslags- breytingum. Sjaldan hefur jafnmikið verið undir á einni SÞ-ráðstefnu. Ef ríki heims grípa ekki til raunhæfra aðgerða strax til þess að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda bendir allt til þess að hlýnun lofthjúpsins muni kalla fram hamfaralík- ar breytingar á veðurfari og lífríki jarðar á þessari öld. Hér þarf ekki að ýkja neitt, nóg er að kynna sér niðurstöður Vísindanefndar SÞ um loftslagsbreyt- ingar til að sannfærast um nauðsyn þess að grípa til róttækra aðgerða. Afleiðingar hlýnunar lofts og sjávar geta kallað miklar hörmungar yfir mann- kynið. Frá því á loftslagsráðstefnunni á Balí árið 2007 hafa íslensk stjórnvöld lagt sig fram um að vera hluti af lausninni í samningaviðræðum um aðgerð- ir gegn loftslagsbreytingum. Það var grundvallar- breyting á afstöðu Íslands. Við höfum skuldbund- ið okkur til þess að mæta kröfunni um að hlýnun fari ekki yfir 2°C á þessari öld. Þá tókum við stöðu við hlið Evrópusambandsins í samningaviðræð- unum, af ábyrgð og festu, sem ég er mjög stolt af. Það er ábyrgðarhluti lands sem telst meðal ríkustu þjóða heims – bæði fyrir og eftir hrun – að leggja sitt af mörkum til þess að leysa loftslagsvandann. Við höfum sett okkur losunarmarkmið hér heima og einnig lagt til að endurheimt votlendis reiknist ríkj- um til tekna í baráttunni við loftslagsbreytingar. Næstu dagar munu ráða úrslitum um það hvort leiðtogar rúmlega 190 ríkja búi yfir festu og pólit- ískum kjarki sem dugar til að ná raunhæfu og hald- góðu samkomulagi í Kaupmannahöfn. Ef það bregst er hætt við að niðurstaðan verði grænþvottur, þ.e. að leiðtogarnir setji engar tölur á blað og skuldbindi sig ekki til raunhæfra aðgerða sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, og samningaviðræður sigli í strand. Það má ekki gerast. Höfundur er formaður umhverfisnefndar Alþingis. Grænþvottur í Kaupmannahöfn? ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn SVERRIR JAKOBSSON Í DAG | Á endanum snýst vandinn sem hlýst af losun gróðurhúsa- lofttegunda um orkubúskap mannkyns og hvernig hann eigi að vera. Púff Áhugamönnum um stjórnmál er eflaust í fersku minni þegar Frjáls- lyndi flokkurinn gaf út í sumar dularfulla tilkynningu um að með haustinu myndi flokkurinn gefa út aðra óvænta fréttatilkynningu sem myndi hrista upp í íslenskum stjórnmálum. Flokksmenn játuðu að tíðindin yrðu á sveitarstjórnarstiginu en vörðust að öðru leyti allra frétta. „Þetta verður eitthvað sem mun verða algjör sprengja inn í stjórnmálaumræðuna,“ var haft eftir formanni fjármálaráðs flokksins. Nú er komið fram í miðjan desember og enn er sprengjunnar beðið í ofvæni … Meira af því sama? Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Í tilkynningu frá Júlíusi stendur meðal annars. „Ég mun leggja áherslu á að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í Reykjavík á þessu kjörtímabili.“ Vonandi ekki Hafi einhver verið búinn að gleyma því hafa fjórir meirihlutar verið myndaðir í Reykjavík frá því síðast var gengið til kosninga og jafnmargir gegnt emb- ætti borgarstjóra. Hefði ekki komið til heilt efnahagshrun væri yfirstandandi kjörtímabil í borgarstjórn Reykjavíkur enn í algleymingi sem eitt mesta glundroðaskeið í íslenskri stjórnmálasögu. Ætli fram- bjóðendum í prófkjörum borgarstjórnarflokkanna sé ekki óhætt að setja markið aðeins hærra fyrir komandi kjörtímabil. bergsteinn@frettabladid.is Fjölskylduhjálp Íslands Neyðarkall frá Fjölskylduhjálp Íslands Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að- stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar. Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól. Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl 9-13, miðviku- daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang: fjolskylduhjalp@simnet.is A llt bendir til þess að dagar Hegningarhússins við Skólavörðustíg sem fangelsis séu taldir. Í breyting- artillögum við fjárlög fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að húsið verði selt. Ef þau áform ganga eftir mun Hegningarhúsið bæt- ast í hóp nokkurra annarra þekktra bygginga í borginni sem þarf að finna nýtt hlutverk. Enn er til dæmis óljóst hvaða starfsemi verður í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, sama gildir um Austurbæjarbíó við Snorrabraut og ekkert hefur heyrst lengi af áætlunum um Fríkirkjuveg 11. Síðastnefnda húsið keypti Björg ólf- ur Thor Björgólfsson af Reykjavíkurborg fyrir um tveimur árum og upplýsti þá að þar yrði komið á laggirnar safni um afa hans, Thor Jensen, sem reisti það á sínum tíma. Allar þessar byggingar eiga það sameiginlegt að þau þykja henta illa sínum upprunalega tilgangi. Hegningarhúsið var tekið til notkunar fyrir 135 árum þegar minna jafnvægi var milli refsingar og betrunar í aðstöðu fanga en á okkar tímum. Aðbúnaður í húsinu hefur því lengi þótt heldur ljótur blettur á fangelsismálum landsins. Undanfarin ár hefur það fyrst og fremst verið notað sem móttökufangelsi fyrir fanga við upphaf afplánunar og fyrir gæsluvarðhaldsfanga. Víst er að margir áhugasamir kaupendur munu gefa sig fram þegar ríkið auglýsir Hegningarhúsið til sölu, enda staðsetningin frábær við eina skemmtilegustu götu miðbæjarins. Auðvelt er líka að spá að þar verða veitingamenn fremstir í röðinni. Húsið er sögufrægt, einstaklega verklegt og með myndarlegan bakgarð þar sem er hægt að njóta veitinga í vernduðu umhverfi í miðri borginni. Ekki þarf að sækja fordæmið langt fyrir því að hús geta auð- veldlega gengið í gegnum velheppnuð innri hamskipti án þess að götumyndinni sé raskað. Í kjölfar þess að SPRON fór á höfuðið breyttist næsti nágranni Hegningarhússins við Skólavörðustíg fyrr á árinu úr því að vera fjármálastofnun í sérlega skemmtilegt kaffihús og bókabúð, sem setur mikinn svip á nágrenni sitt. Það er sem sagt auðvelt að gera sér í hugarlund að Hegning- arhúsið muni fljótt og vel geta sagt skilið við fortíð sína og hafið nýtt líf. Því miður hafa það ekki verið örlög Austurbæjarbíós og Heilsuverndarstöðvarinnar, sem var minnst á hér að ofan. Austurbæjarbíó hefur velkst um í kerfinu í all nokkurn tíma, Til stóð að rífa húsið og byggja mjög hraustlegt íbúðarhús á reitnum. All nokkur ár eru liðin frá því borgaryfirvöld bökk- uðu með leyfi sem þáverandi eigandi hússins taldi sig hafa fyrir framkvæmdunum. Austurbæjarbíó komst síðar í eigu Nýsis sem kynnti 2006 áætlanir um að það yrði gert veglega upp og opnað sem menningnarmiðstöð. Af því hefur ekki orðið. Heilsuverndarstöðin hefur nú staðið tóm í alltof langan tíma. Húsið er glæsilega teiknað af Einari Sveinssyni og var fyrsta sérhannaða heilsugæslubygging landsins. Það var sorgardagur þegar það hætti að hýsa heilbrigðisstarfsemi og enn dapurlegra er að ekki hafi enn tekist að finna því nýtt hlutverk. Það allra versta sem getur komið fyrir hús er að vera mannlaus. Það væri jákvætt fyrir bæjarbraginn ef borgaryfirvöld legðu sitt af mörk- um til að líf kviknaði þar innandyra á ný. Sögufrægar byggingar í nýju hlutverki: Hamskipti húsa JÓN KALDAL SKRIFAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.