Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 18
18 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR STYTTA AF OBAMA Þessi stytta af Barack Obama Bandaríkjaforseta á barnsaldri var sett upp í almennings- garði í Djakarta, höfuðborg Indónesíu. Obama ólst þar upp að hluta og gekk þar í skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Ætla má að kröfuhafar sem lýstu kröfum í bú Glitnis fái á bilinu 690 til 860 milljarða króna af þeim 3.436 milljörðum sem sendar voru inn, eða á bilinu 20 til 23 prósent. Þrír vogunarsjóðir eiga saman rúm tíu prósent krafna í þrotabú bankans, eða upp á um 350 millj- arða króna. Fjármálafyrirtækið Burlington Loan Managment, sem skráð er á Írlandi en tengist banda- ríska vogunarsjóðnum Davidson Kempner Capital Management, á hæstu kröfuna, sem hljóðar upp á 150 milljarða króna. Það jafngildir um fjórum prósentum af heildar- kröfum. Hinir tveir eru alþjóðlega félagið York Capital Management og bandaríski sjóðurinn Eton Park Capital Management. Kröfulýsing- ar síðastnefndu félaganna falla undir nokkra undirsjóði. Krafa hvors þeirra hljóðar upp á um hundrað milljarða króna. Sjóðirnir, ásamt Davidson Kemp- ner, áttu allir kröfu í bú Lands- bankans og má gera ráða fyrir að þeir verði jafnframt fyrirferðar- miklir í kröfuhafahópi Kaupþings þegar frestur rennur út til að lýsa kröfu í búið um áramót. Á meðal annarra kröfuhafa eru hefðbundnari fjármálafyrirtæki. Þeirra stærst er breski bankinn Royal Bank of Scotland með kröfu upp á 130 milljarða króna. Þá gerir Deka Bank í Þýskalandi kröfu upp á níutíu milljarða og þýski bank- inn KfW, kröfu upp á 34 milljarða. Aðrir bankar gera öllu lægri kröf- ur í búið. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segir að lýst hafi verið kröfum í búið upp á hundr- uð milljarða af varúðarástæðum. Þar á meðal er hundrað milljarða króna krafa frá Tryggingarsjóði innstæðueig- enda, sem hafi verið lýst til vara ef neyðarlög- in héldu ekki og upp á 127 millj- arða króna frá Glitni í Lúxem- borg. „Krafan frá Lúxemborg er varúðarkrafa sem var send inn til vara ef samkomulag við Seðla- banka Lúxemborgar um uppgjör við dótturfélag Glitnis þar gengi ekki eftir. Líkurnar á að okkur tak- ist ekki að efna þann samning eru nánast engar,“ segir Árni en vill ekki segja til um hvað megi ætla að há krafa falli niður. Ljóst er að hún hljóðar upp á rúma tvo hundr- uð milljarða króna. Skilanefndin fundar með kröfu- höfum á næstu dögum þar sem farið verður yfir kröfuhafaskrána. jonab@frettabladid.is Þrír vogunarsjóðir eiga rúm tíu prósent krafnanna Fjölda varúðarkrafna var lýst í þrotabú Glitnis og mun heildarkrafan lækka um hundruð milljarða. Erlend- ir vogunarsjóðir eru fyrirferðarmestir. Búist er við að þeir sömu verði meðal helstu kröfuhafa Kaupþings. Fjármálafyrirtækið Burlington Loan Management var stofnað á þessu ári í tengslum við kaup á skulda- bréfum Glitnis á eftirmarkaði. Það tengist bandaríska vogunarsjóðn- um Davidson Kempner Capital Management, sem sérhæfir sig í fjárfestingum á skráðum hluta- og skuldabréfamarkaði. Það veðjaði á fall banka og fjármálafyrirtækja í bankahrinunni í fyrra, þar á meðal breska bankans Lloyds í byrjun september, samkvæmt gögnum breska fjármálaeftirlitsins. York Capital Management og Eton Park sérhæfa sig bæði í kaupum á skuldabréfum fallinna fyrirtækja og endurreisn þeirra. Á meðal annarra fyrirferðamikilla sjóða sem gera milljarðakröfur í bú Glitnis eru bandarísku vogunar- sjóðirnir Longacre Capital Partners og Centerbridge Credit Partners. Þá eru í kröfu- skránni kröfur frá innlendum félögum og einstaklingum, svo sem Eftirlaunasjóði starfs- manna Glitnis banka, sem gerir 5,8 milljarða kröfu í búið. Á meðal einstaklinga er Ragnar Önundar- son, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Ein krafa vekur sérstaka athygli. Hún er frá Williams-liðinu í Formúlu 1. Hún hljóðar upp á tvo milljarða króna vegna slita á samningum við liðið. Ekki hefur fengist gefið upp hvers eðlis sá samingur er. Kröfuhafaskrá Glitnis telur 217 blaðsíður og eru lýstar kröfur 8.658 talsins. BÍLL FRÁ WILLIAMS-LIÐINU Formúluliðið Williams gerir kröfu í bú Glitnis upp á tvo milljarða króna vegna rofa á samningi. KENNIR ÝMISSA GRASA Í KRÖFUHAFASKRÁ ÁRNI TÓMASSON Arion banki býður nú viðskiptavinum með erlend og innlend íbúðalán lausnir sem lækka höfuðstól lána og létta greiðslubyrði. Hafðu samband sími 444 7000 • arionbanki.is Skoðaðu hvaða leið gæti hentað þér á arionbanki.is. Nánari upplýsingar fást hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum Arion banka eða í síma 444 7000. ÍS L E N S K A S IA .I S A R I 48 40 9 12 /0 9 SVEITARSTJÓRNIR Grunnskólinn á Hólmavík mun spara 1,4 millj- ónir króna á að kaupa lítið not- aðar tölvur í stað þess að kaupa nýjar eins og til stóð. Um er að ræða öflugar tölvur með 19 tommu skjá og Windows 7 stýri- kerfi á aðeins 35 þúsund krónur stykkið að því er segir í skýrslu Ásdísar Leifsdóttur sveitar- stjóra. „Er um að ræða lítt notað- ar nýlegar tölvur sem keypt- ar voru fyrir fjármálastofnun á síðasta ári og ekki er not fyrir. Með þessu móti eignast skólinn loksins góðan tölvukost þar sem allar tölvurnar eru með nýjustu forritum,“ segir í fundargerð sveitarstjórnarinnar. - gar Eins dauði er annars brauð: Skólakrakkar fá tölvur úr banka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.