Fréttablaðið - 15.12.2009, Page 34
15. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hennar
Gjafabréf í heilsulind Mecca Spa
er ávísun á góða líðan en þar er
boðið upp á nudd og alls kyns
snyrtingu.
Bæði er boðið upp á staðlaða
gjafapakka og pakka að eigin vali
en á meðal staðlaðra pakka má
nefna litla dekurpakkann sem sam-
anstendur af partanuddi, litun og
plokkun, brot af því besta-pakkan-
um með andlitsbaði, fótsnyrtingu
og partanuddi, Gullið með phytom-
er-andlitsbaði, lúxus fótsnyrtingu
og heilnuddi og Mecca Spa lúxus
með lúxus Phytomer andlitsbaði,
lúxus handsnyrtingu, lúxus fót-
snyrtingu og Mecca Spa nuddi. Þá
er boðið upp á dekur á meðgöngu,
hjónadekur og ýmislegt fleira.
Í Mecca spa er einnig að finna
heilsurækt og úrval leikfimi- og
jógatíma en nánari upplýsingar
eru að finna á www.meccaspa.is
- ve
● FJÁRFEST Í AUKNUM SAMVISTUM Gjafabréf í samkvæmis-
dansa er gjöf sem gefur fyrirheit um auknar samvistir á komandi mánuð-
um og árum.
Í flestum dansskólum er boðið upp á námskeið fyrir hjón
og pör á öllum aldri og er bæði hægt að velja um námskeið
sem standa allan veturinn og styttri námskeið þar sem
áhersla er lögð á einn tiltekinn dans. Á lengri nám-
skeiðum lærir fólk yfirleitt dansa á borð
við djæf, tja tja tja, tjútt og vals en á
styttri námskeiðum er farið nánar í
dansa eins og tangó eða salsa.
Að eiga tíma í dans einu sinni í viku
getur verið endurnær-
andi bæði fyrir kropp-
inn og sambandið.
Með tíð og tíma síast sporin
síðan inn og er gaman að
geta tekið snúning með
elskunni þegar við á. -ve
Jólagjöfin í ár er upplifun og ætti dek-
urpakki að falla vel í kramið hjá önnum
köfnu fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ávísun á góða líðan
Fyrir utan demanta eru skór
einir bestu vinir kvenna. Með
fallegt veski í stíl eru svo allir
vegir færir.
Fallegir skór og smekkleg veski
geta varla klikkað sem jólagjaf-
ir. Úrvalið er mikið og valkvíðinn
getur herjað á herramennina en
til þess er afgreiðslufólkið gert að
leiðbeina með valið.
Vissulega getur smekkur
kvenna verið misjafn en þá kemur
skiptimiðinn sterkur inn. Einnig
getur verið skynsamlegt að hlera
hjá vinkonum konunnar hvað hug-
urinn girnist. - sg
Á fínum skóm og
með fallegt veski
Ökklaskór
með hæl frá Miss
Sixty, á 26.990
krónur.
Nettir hælaskór frá Steinari
Waage á 29.995 krónur.
Smart veski
frá Bianco.
Verð er 8.200
krónur.
Göddum settir
bandaskór frá Bianco
á 18.500 krónur.
Stór, vegleg og
falleg taska frá
Miss Sixty. Verð er
18.990 krónur.
Glansandi leðurveski
frá Steinari Waage, á
29.995 krónur.