Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 42
15. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR14 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hennar
● EFTIR BAÐIÐ Gæðalegur sloppur kemur
vel til greina þegar hugað er að gjöf handa
henni. Hvort sem það er einn af þessum
þykku og hlýlegu sem hún getur vafið utan
um sig eða þynnri og léttari sem gott er
að smeygja sér í eftir heita sturtu, henta vel
að sumrinu og frábært er að taka með sér í
ferðalögin.
Dekurgjafir gleðja og næra og
þá sérstaklega ef þeim fylgir
loforð um nudd og góða hvíld.
Góður dekurpakki getur innihaldið
líkamsskrúbb, svampa, freyðibað,
baðbombur, sápur, krem, nudd-
olíur, ilmkjarnaolíur, handklæði
og naglasett svo dæmi séu tekin.
Mælt er með því að kaupa pakkann
í verslun sem selur mildar vörur
sem fara vel með húðina en þannig
má forðast ofnæmi og ertingu. Eins
er ráð að halda sig við aðeins einn
ilm við val á sápum og kremum.
Pakkanum ætti að fylgja loforð
um dekurdag og er upplagt að taka
einn af hátíðisdögunum frá, láta
renna í freyðibað, kveikja á kertum
og vera síðan tilbúinn með nuddolí-
urnar á eftir.
Margir kaupa gjafabréf í
dekur sem er góðra gjalda vert
og ávísun á fagmannleg vinnu-
brögð. Gjafir til heimadekurs
eru þó óneitanlega persónu-
legri auk þess sem dekrið
má endurtaka að vild og
því um að ræða gjöf sem
endist. - ve
Láttu renna í freyðibað fyrir elskuna og kveiktu á kertum.
Ilmkjarnaolíur virkja skynfærin til hins ýtrasta en þær má bæði bera á húðina og
anda að sér.
Svampar og grófir húðburstar hreinsa burtu dauðar húðfrumur og gera húðina
silkimjúka. Á eftir er gott að eiga ilmandi krem. NORDICPHOTOS/GETTY
Góðar nuddolíur skipta sköpum og þá
sérstaklega ef loforð um nudd fylgir
með.
Endurnærandi
heimadekur
Með þessu tæki er
hægt að veita fyrir-
taks axlarnudd.
N
O
RD
ICPH
O
TO
S/G
ETTY
●HRYLLINGUR HITTIR Í
MARK Í gegnum kvikmyndasög-
una hafa hryllingsmyndir og as-
ískar bardagamyndir verið þær
tegundir kvikmynda sem gefið
hafa kvensöguhetjum einna mest
vægi. Eitthvað á þá leið hljómar að
minnsta kosti ein af mörgum fem-
inískum útleggingum á þeirri um-
ræðu. Sé tekið mið af því er margt
vitlausara en að splæsa í eins og
eina góða horrormynd handa
konunum í lífi þínu í jólagjöf, sér-
staklega þeim sem orðnar eru
átján ára gamlar.
Til dæmis er einhver rosalega
notalegur sjarmi yfir gömlum hryllingsmyndum eins og Exorcist og
Rosemary‘s Baby og Hitchcock-safninu eins og það leggur sig. Kvenfólk-
ið getur þá um leið skemmt sér yfir flottum klæðaburði nostalgíunnar,
svo gripið sé til enn einnar steríótýpunnar. Hryllingurinn ætti að hitta
hryllilega vel í mark.
Úr Hitchcock-myndinni Psycho frá 1960.