Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 70

Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 70
50 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1. Í Kaupmannahöfn í Danmörku. 2. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. 3. Á vefmiðlinum Eyjunni.is. LÁRÉTT 2. fugl, 6. hvort, 8. sægur, 9. skraf, 11. ullarflóki, 12. óhemju, 14. titill, 16. samtök, 17. sönghópur, 18. dvelja, 20. tveir eins, 21. titra. LÓÐRÉTT 1. tilraunaupptaka, 3. 950, 4. undir- búningspróf, 5. traust, 7. fuglategund, 10. atvikast, 13. pappírsblað, 15. illgresi, 16. for, 19. til. LAUSN LÁRÉTT: 2. álft, 6. ef, 8. mor, 9. mas, 11. rú, 12. ósköp, 14. herra, 16. aa, 17. kór, 18. una, 20. ff, 21. riða. LÓÐRÉTT: 1. demó, 3. lm, 4. forpróf, 5. trú, 7. fashani, 10. ske, 13. örk, 15. arfi, 16. aur, 19. að. „Þar sem ég er að reyna að temja mér hollara líferni er ég byrjaður að venja komur mínar á Maður lifandi í Borgartúni. Best er dýrindis grænmetis-la- sagne með kókos. Í sveitta pakk- anum vinnur Tívolí á Laugavegi þar sem það er yfirleitt enginn þar nema norskir túristar.“ Haukur Viðar Alfreðsson í Morðingjunum. Ásamt því að flytja fréttir af veðrinu hefur veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdótt- ir hlaupið fimm maraþon á síðustu fjórum árum. „Ég byrjaði að skokka og stunda lík- amsrækt þegar ég var um sextán ára gömul og eftir það fór ég að æfa hlaup. Það fer langur tími í undirbúning fyrir hvert hlaup og undanfarið hef ég verið að æfa með þjálf- ara ásamt nokkrum öðrum hlaupurum. Ég hljóp síðast maraþon í Frankfurt í októb- er og hljóp það á þremur og hálfum tíma,“ segir Elísabet sem hefur tvisvar hlaupið í New York og einu sinni í Kaupmannahöfn og Berlín. Aðspurð segir hún erfitt að hlaupa heilt maraþon og segir síðustu fimm til tíu kílómetrana vera andlega erfiða en það ger- ist sjaldan að fólk gefist upp og ljúki ekki hlaupinu. Elísabet hefur sinnt starfi veðurfrétta- manns í rúmt ár og til að byrja með stóð hún í skugganum af sjálfum Sigga stormi. Hann kvaddi hins vegar áhorfendur Stöðv- ar 2 nokkuð skyndilega og þegar Elísabet er innt eftir því hvort það hafi ekki verið erf- itt að taka við af Sigga segir Elísabet svo ekki vera. „Það breyttist ekki mikið en mér fannst leiðinlegt að missa hann af skjánum, hann var skemmtilegur karakter sem sagði skemmtilega frá.“ Og spurð hvort Íslendingar geti átt von á hvítum jólum í ár segir Elísabet að erfitt sé að spá fyrir um það að svo stöddu. „Það fer kólnandi í vikunni og ætti að snjóa norð- austanlands um helgina. Það er smá úrkoma í kortunum suðvestanlands eftir helgi og ágætis líkur á að hún falli sem snjókoma. Spár geta snögglega breyst en ég vona að við fáum hvít jól,“ segir Elísabet að lokum. - sm Arftaki Sigga storms hleypur maraþon HLEYPUR MARAÞON Veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdóttir hefur hlaupið fimm maraþon á síðustu fjórum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum því Los Angel- es er engin sérstök leikhúsborg,“ segir Stefán Karl Stefánsson. Hann hefur nú leikið í fimmtíu sýningum af söngleiknum How the Grinch Stole Christmas í Pantages Theatre. Stefán leikur aðalhlut- verkið, sjálfan Trölla, en tíma- bilið hjá honum er hvergi nærri búið, enn eru eftir þrjátíu sýning- ar. „Þetta hafa verið þrjár sýning- ar á dag, stundum fjórar þannig að þetta er mikil keyrsla, ég kvarta hins vegar ekki, þetta er bara ver- tíð hjá manni,“ segir Stefán. Og þar sem Stefán er í höfuð- borg kvikmyndastjarnanna og annars frægðarfólks hefur tölu- verður fjöldi þeirra komið með fjölskyldurnar sína og horft á söngleikinn. Má þar meðal ann- ars nefna hjónakornin Gwen Stef- ani og Gavin Rossdale sem komu ásamt syni sínum, Cheryl Hines úr Curb Your Enthusiasm-sjónvarps- þáttunum og svo var Ben Still- er, einn þekktasti gamanleikari heims um þessar mundir, meðal gesta um helgina. „Brad Pitt og Angelina Jolie hafa síðan boðað komu sína hingað ásamt krakka- skaranum þannig að það er alltaf eitthvað um svona heimsóknir,“ segir Stefán sem tók sig síðan til, „ruddist“ inn í beina útsendingu hjá latínskri sjónvarpsstöð í Los Angeles og bauð sjálfum Tiger Woods að koma á sýninguna. „Þeir eiga eitthvað sameiginlegt, Trölli og Tiger,“ segir Stefán og hlær en eins og flestir ættu að vita hefur töluvert gengið á í einkalífi kylfingsins eftir að upp komst um stanslaust framhjáhald hans. Og þau verða eflaust ekki hátíðleg jólin hjá hjónakornunum. Stefán viðurkennir að sýning- in sé frábær auglýsing fyrir sig sem leikara, hún hafi fengið mikla athygli og hann finni fyrir því að fólk úr bransanum fylgist vel með. „Ég er bara að hamra járnið á meðan það er heitt því það er fljótt að kólna í Hollywood,“ segir Stefán en nú er að renna upp sjónvarps- þáttatímabilið í Bandaríkjnum þar sem nýir þættir fara í fram- leiðslu hjá stóru sjónvarpsstöðv- unum. „Maður verður bara að vera duglegur og harka en þetta krefst þess að maður sé með stáltaugar og hafi góða fjölskyldu og vini á bakvið sig.“ freyrgigja@frettabladid.is STEFÁN KARL STEFÁNSSON: BAUÐ TIGER WOODS Á SÝNINGU Í BEINNI Stefán Karl sýnir fyrir stjörnurnar í Hollywood Ben Stiller, Gwen Stefani og Gavin Rossdale eru meðal þeirra sem hafa séð sýningu Stefáns Karls, The Grinch, í Pantages Theater. Sjálf Angelina Jolie og Brad Pitt hafa boðað komu sína og svo bauð Stefán Tiger Woods að sjá leiksýninguna í beinni á latínskri sjónvarpsstöð. Á MEÐAL STJARNANNA „Ég er eiginlega í sjokki, ég vissi ekki að þetta yrði svona mikið,“ segir rithöfundurinn Þórarinn Leifsson. Á laugardaginn birtist við hann tveggja blaðsíðna viðtal í bókmenntakálfi danska dagblaðsins Politiken vegna barnabókar hans, Leyndarmálið hans pabba. Einnig var heilsíðu teikning eftir hann birt í blaðinu „Ég hélt að þetta myndi fá hálfsíðu. Þetta var eins og köld vatnsgusa framan í mig því það er mjög óvenjulegt að barnabók fái svona mikla umfjöllun. Ég yrði sátt- ur við svona umfjöllun einu sinni á tíu árum,“ segir Þórarinn sigri hrósandi. Í greininni er hann sagður Roald Dahl Íslands en Roald er þekktast- ur fyrir ævintýrin um Willy Wonka og Jóa og baunagrasið. Áður hafði Þórarni verið líkt við danska skáld- ið Ole Lund Kirkegaard. Þórarinn segir að þessi góða umfjöllun hafi mikla þýðingu fyrir sig. „Bókasafn ömmu Huldar (nýj- asta bók Þórarins) kemur út í Dan- mörku á næsta ári og þetta hjálp- ar vægast sagt mjög mikið við að kynna þá bók.“ Leyndarmálið hans pabba fjallar um systkini sem komast að því að pabbi þeirra er mannæta. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum kynnti Þórarinn hana með óvenjulegum hætti á bóka- messu þegar hann bauð gestum og gangandi upp á fingramat sem líktist mannakjöti. Vakti það að vonum gríðar- lega athygli á meðal við- staddra. - fb Í sjokki yfir grein Politiken POLITIKEN Stór grein um Þórarin Leifs- son og nýjustu bók hans birtist í danska blaðinu Politiken um helgina. Samkvæmt niðurstöðum áhorfsmælinga Capacent Gallup hefur áhorfið á gamanþáttaröðina Marteinn í leikstjórn Bjarna Hauks og sýnd er á RÚV hreinlega hrunið. Fyrsti þátturinn byrjaði í þrjátíu pró- sentum hjá stærsta aldurshópnum, 12-80 ára, en samkvæmt síðustu mæling- um mældist þátturinn með 21 prósents áhorf. Svipað er upp á teningnum þegar skoðaður er aldurshópurinn 12-45 ára en þar mældist Marteinn fyrst með 24 prósent en er nú með 16. Þetta áhorfshrun á sér kannski eðli- legar skýringar því á svipuðum tíma var fyrsti þátturinn af Wipeout Ísland frumsýndur. Mikið hefur verið lagt í auglýsinga- herferðina og sérhvert mannsbarn ætti að vita að þættirnir eru sýndir á Stöð 2. Þetta virðist hafa borgað sig því rúm þrjátíu prósent sáu Haffa Haff sigra með afgerandi hætti. Nú styttist óðfluga í að lokahluti Vaktarinnar bresti á því kvikmynd- in Bjarnfreðarson verður frum- sýnd annan í jólum. Eins og fyrr er það lag eftir Bubba Morthens sem varðar leiðina. Nú er komið að Utangarðsmannalaginu Híró- síma með sinni grundvallarspeki: Þið munið öll, þið munið öll – deyja! Annars sér Pétur Ben um tónlist í myndinni og leggur meðal annars til lokalag myndar- innar. Það heitir einfaldlega Lokalagið. - drg/fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.