Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 2

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 2
2 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR varmadaela.is • S: 823-9448 Huginn Þór, er þetta ekki bölvaður barningur hjá þér? „Ef horft er til þess að ung stúlka samdi 1001 ævintýri á jafn mörgum nóttum til að bjarga lífi sínu er þetta hreinn barnaleikur hjá mér!“ Huginn Þór Grétarsson rithöfundur hefur gefið út sjö barnabækur hjá Óðinsauga síðasta árið og segist vera með yfir eitt hundrað slíkar í bígerð. VERSLUN „Vintage“-kjólaverslunin Gleymmérei er rekin af þremur systrum á Seyðisfirði sem elska gamla kjóla. Seyðfirskar konur hafa tekið versluninni vel og eru margar farnar að klæðast kjólum frá liðnum árum dag hvern. Kjólaáhuginn er þeim systrum í blóð borinn. „Við ólumst upp við það að mamma okkar, Guðborg Sigtryggsdóttir, geymdi kjólana sína eins og gull en á rigningar- dögum fengum við að taka þá fram og prófa,“ segir Sigurveig Gísladóttir. - ve / sjá Allt Netkjólabúð Seyðisfirði: Rekin af sam- stilltum systrum SYSTURNAR Áhuginn á kjólum er systr- unum í blóð borinn. LÖGREGLUMÁL Meindýraeyðir með vasaljós og hávaði úr spennumynd í kraftmiklu hljómkerfi varð vist- manni sambýlis í Fossvogi tilefni til þess að tilkynna um vopnaburð og skothvelli í næsta húsi undir hádegi í gær. Vopnuð sérsveit handtók í kjölfarið karl og konu sem höfðu ekkert til saka unnið. Vel á annan tug lögreglumanna tók þátt í aðgerðunum og vopnaðir sérsveitarmenn sátu um húsið nokkra hríð áður en ákveðið var að hafa samband við Jón Hilmar Hallgrímsson, sem inni var ásamt stúlku um tvítugt. Jón Hilmar varð við beiðni lög- reglu um að koma út úr húsinu. Hann var íklæddur hvítum buxum og hvítum bol, og neitaði af þeim sökum að hlýða sérsveitar- mönnunum þegar þeir skipuðu honum að leggjast á jörðina. „Ég sagði við þá: Ég er ekki að fara að leggjast í drulluna strákar, hvað er að ykkur? Þá réðust þeir bara á mig. Ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ segir Jón Hilmar. Jón Hilmar er lemstraður eftir atganginn, með sár á enninu og bólginn á fæti. „Ég get ekki farið á hlaupabrettið næstu vikuna,“ segir hann. Auk þess séu bux- urnar hans rifnar og hyggst hann sækja bætur vegna þess. Jóni finnst lögreglan hafa gengið of hart fram. „Ég hef alveg komið við sögu lögreglu áður, en það er langt síðan. Ég er með nokkur tattú og er ekki í skátun- um, en mér fannst sérsveitin fara fullharkalega að mér,“ segir Jón. Meira en áratugur sé síðan hann hlaut dóm. Eftir að lögreglan hafði leit- að af sér allan grun í húsinu, og síðan sleppt fólkinu, lá atburða- rásin nokkuð ljós fyrir: Vistmaður á sambýli í næsta húsi hafði séð meindýraeyði sniglast í garðin- um með eitthvað í höndunum sem honum þótti líkjast byssu en var í raun vasaljós. Meindýraeyðirinn var að leita að rottum. Þegar svo heyrðust háværir skothvellir úr öflugu heimabíókerfi Jóns Hilm- ars lét vistmaðurinn starfsmann sambýlisins vita, og sá hringdi á lögregluna. „Þetta er fyllilega í samræmi við okkar verklag og vinnureglur að öllu leyti,“ segir Stefán Eiríks- son lögreglustjóri um vinnubrögð lögreglunnar. Þegar tilkynnt sé um vopnaða menn sé nauðsynlegt að bregðast með mikilli varúð. „Í flestum tilfellum reynist þetta nú vera orðum aukið eða einhver mis- skilningur – þannig er reynslan hjá okkur eins og í öðrum löndum – en við höfum engar forsendur eða heimildir til að gefa nokkurn afslátt af okkar viðbrögðum því við vitum aldrei hvenær alvöru- útkallið kemur.“ stigur@frettabladid.is Byssa reyndist vasa- ljós meindýraeyðis Sérsveitarmenn skelltu Jóni Hilmari Hallgrímssyni í jörðina og handjárnuðu hann eftir að vistmaður sambýlis hafði tilkynnt um vopnaðan mann á heimili hans. Vopnið var vasaljós meindýraeyðis og skothvellirnir komu úr sjónvarpi. Í JÁRNUM Jóni Hilmari var skellt í jörðina og hann hand- járnaður eftir að hann neitaði að leggjast sjálfviljugur í götuna í skjannahvítum fötum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON JÓN HILMAR HALLGRÍMSSON SJÓSLYS Maður fórst er báti hlekkt- ist á við eyjuna Skrúð utan við Vattarnes milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar í gærmorgun. Félagi mannsins komst um borð í gúmmíbát og var bjargað í land. Að sögn Guðjón Más Jónsson- ar, formanns svæðisstjórnar björgunarsveitanna á Austur- landi, hvarf báturinn út af tilkynningar skyldu áður en björg- unarsveitunum var gert viðvart um slysið fyrir klukkan níu um morguninn. Bátar í grenndinni og um sextíu björgunarsveitarmenn af Austurlandi tóku þátt í leit og aðgerðum auk þess sem tíu kafar- ar komu á staðinn allt sunnan úr Höfn í Hornafirði norður í Húsa- vík. Maðurinn í björgunarbátnum fannst fljótlega. Að sögn Guðjóns taldi hann félaga sinn enn vera í bátnum sem hafði hvolft og fannst um 3,6 sjómílur undan Vattarnesi. Kafarar leituðu í sjónum þar í kring töldu of áhættusamt að leita í bátnum vegna erfiðra haf- strauma. Því var báturinn dreg- inn inn á Fáskrúðsfjörð á lygnari sjó. Þar fundu kafarar manninn látinn í bátnum. Guðjón segir að svo virðist sem báturinn hafi steytt á skeri. Mennirnir tveir voru að flytja hann frá Vopnafirði til Reykja- víkur. Annar tveggja skipverja bjargaðist er fimmtán tonna bátur steytti í skeri: Fórst á sjó við Fáskrúðsfjörð Slysið í gær er fyrsta banaslys á sjó við Ísland í tvö ár. - gar Slysstaðurinn Reyðarfjörður Eskifjörður Fáskrúðsfjörður Vattarnes Skrúður Flak bátsins fannst 3,6 sjómílur undan Vattarnesi. UMHVERFISMÁL Stálin stinn mætt- ust í gær í Kaupmannahöfn, bæði inni á loftslagsráðstefnunni og fyrir utan. Mótmælaganga kom að höllinni undir hádegið og hluta mótmælenda lenti saman við lög- reglu og voru nokkur hundruð handtekin. Innan dyra var allt á suðu- punkti. Þróunarríkin komu í veg fyrir að texta með hugmyndum að lokasamningi yrði dreift og töldu hann draga taum iðnríkjanna. Forseti ráðstefnunnar sagði af sér og forsætisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen, tók við. Allt er þó enn óvíst um útkomuna. Afríkuríkin mættu ekki á boðað- an blaðamannafund í gærkvöldi. Loftslagsráðstefnunni lýkur á morgun. - kóp / sjá síðu 22-24 Loftslagsráðstefnan: Slagsmál úti og inni var deilt LÖGREGLUMÁL Talverðar tafir urðu á umferð um Vesturlandsveg neðan Grafarholts eftir að þrír bílar lentu þar í aftanákeyrslu. Einn einstaklingur var fluttur á spítala með sjúkrabíl. Talið var að hann væri lítillega meiddur á baki og háls. Bílarnir voru hins vegar mikið skemmdir samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu og þurfti að draga tvo þeirra með krana af vettvangi. Talsvert lak niður af olíu úr bíl- unum og urðu því nokkrar tafir á umferð á meðan slökkvilið hreins- aði hana upp. - gar Umferðartafir við Grafarholt: Einn meiddist í aftanákeyrslu ÍRAN, AP Íranar gerðu í gær tilraun með endurbætta gerð langdrægs flugskeytis, sem hægt væri að skjóta á Ísrael og hluta Evrópu. Tilraunin eykur enn á spennu milli Írans og Vest- urlanda, sem hafa með litlum árangri reynt að fá Írana til að draga úr kjarnorkuáformum sínum. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir málið alvarlegt og auki líkur á frekari refsiaðgerð- um gegn Íran. Flugskeytið er af gerðinni Sajjil-2 og dregur um 2.000 kílómetra. Þar með er Ísrael innan skotlínu þess, ásamt herstöðvum Bandaríkjahers við Persa- flóa og hluta Suðaustur-Evrópu. Íran hefur ítrekað heitið hörðum viðbrögðum ef Ísrael eða Bandaríkin tækju upp á því að ráðast á kjarnorkustöðvar í Íran. Ahmad Vahidi, varnarmálaráðherra Írans, segir nýja flugskeytið hafa mikinn fælingarmátt gegn árásum erlendra ríkja. Nýja flugskeytið fari hraðar en eldri gerðin og því eigi að vera erfiðara að skjóta það niður með eldflaugavarnarkerfum. Íranar hafa jafnan harðneitað ásökunum Banda- ríkjanna og annarra Vesturlanda um að þeir hygg- ist koma sér upp kjarnorkuvopnum, þrátt fyrir upp- byggingu kjarnorkuvinnslu. Kjarnorkuna segjast þeir eingöngu ætla að nota í friðsamlegum tilgangi til að framleiða rafmagn. - gb Íranar ögra leiðtogum Vesturlanda með tilraunaskoti langdrægs flugskeytis: Eykur enn á spennuna TILRAUNASKOT Íranar skjóta upp nýja flugskeytinu Sajjil-2. NORDICPHOTOS/AFP Forsætisráðherra segir af sér Liviu Negoita, forsætisráðherra Rúm- eníu, sagði af sér til að gefa Traian Bas- escu, nýendurkjörnum forseta, frjálsar hendur til að veita þeim sem hann kýs nýtt stjórnarmyndunarumboð. RÚMENÍA SPURNING DAGSINS DÓMSMÁL Ákæra var þingfest í gær á hendur Hauki Þór Har- aldssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra rekstrarsviðs Landsbankans, fyrir fjárdrátt sem nemur 118 milljónum króna. Haukur neitaði sök við þingfest- inguna. Hauki er gefið að sök að hafa dregið sér 118 milljónir úr sjóði á vegum Landsbankans með því að millifæra féð inn á reikning í eigin eigu tveimur dögum eftir bankahrunið í fyrra. Sjálfur hefur Haukur sagst hafa verið að reyna að forða fjármunum bankans frá því að brenna upp við hrunið. - sh Fjárdráttarákæra þingfest: Landsbanka- maður neitar DANMÖRK Harðfiskur og annar þjóðlegur matur Færeyinga trufl- ar starfsemi danskra pósthúsa fyrir jól hver. Starfsmenn þar óttast þá tíð þegar Færeyingar senda brottfluttum ættingjum og vinum matvæli að gjöf. Færeyski Sósíalurinn hefur eftir dönskum miðli að til þess komi að flokkun hjá póstinum falli niður, ef gat kemst á fær- eyskan matarpakka. Lars Kaspersen hjá Post Dan- mark, segir að það versta við jólin sé þegar lyktin af þurrkuð- um fiski berst um allt pósthúsið. - kóþ Brottfluttir Færeyingar: Harðfiskurinn truflar Dani
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.