Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 4
4 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
3.490kr.
EFNAHAGSMÁL Mælt er með bland-
aðri leið skattahækkana og aðhalds
hjá hinu opinbera í nýrri skýrslu
sem Viðskiptaráð Íslands gaf út í
gær um fjármál hins opinbera. Á
kynningu ráðsins á skýrslunni kom
fram að með skattahækkunum og
aðhaldi í óbreyttu skattkerfi mætti
ná sama árangri og stefnt er að hjá
stjórnvöldum með víðtækum skatt-
kerfisbreytingum og hækkunum
skatta.
Finnur Oddsson, framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs, segir forsvars-
menn ráðsins hafa saknað þess
að fram færi umræða af „meiri
dýpt“ þegar til stæðu einhverjar
umfangsmestu breytingar á skatt-
kerfi landsins sem lengi hafi verið
gerðar. „Stefnan nú jafngildir því
nánast að skipta um bát í hauga-
sjó án þess að vita í raun hvort
sá bátur sem farið er í sé sjófær,“
segir hann. „Ákvarðanir okkar í
fjármálum hafa áhrif á trúverð-
ugleika okkar út á við og veruleg
áhrif á samkeppnishæfi atvinnu-
lífsins í heild. Við þurfum að forð-
ast að fólk og fjármagn flýi og
komum því fram með hugleiðingar
okkar nú.“
Í skýrslunni er bæði farið yfir
þær ráðstafanir skattamála sem til
stendur að ráðast í samkvæmt fjár-
lögum ársins 2010 og tillögur Við-
skiptaráðs um aðrar leiðir.
Fram kemur í skýrslu viðskipta-
ráðs að útþensla ríkisins hafi óvíða
verið meiri en hér síðustu ár.
Þannig hafi opinber útgjöld aukist
fimmfalt hér á landi miðað við það
sem gerst hafi að meðaltali í ríkj-
um Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar (OECD) síðustu þrjátíu
ár. Þar nemi hækkunin fimm pró-
sentum, en 25 prósentum hér. „En
aðlögunin nú fer fyrst og fremst
fram í gegnum einkageirann,“
segir Finnur.
Í kynningu Viðskiptaráðs á
skýrslunni segir hins vegar að í
þeirri stefnu sem mörkuð hafi verið
felist takmarkaður niðurskurður
útgjalda og veruleg aukning skatt-
heimtu. „Þessi leið er að mati Við-
skiptaráðs afar misráðin og dreg-
ur úr sjálfbærni ríkisfjármála til
framtíðar. Við núverandi aðstæð-
ur er heppilegra að stjórnvöld velji
hagnýtar leiðir sem byggja á raun-
sæi og varðstöðu um heildarhags-
muni,“ segir þar.
Meðal tillagna ráðsins er endur-
skoðun á útgjaldaliðum ráðuneyta
og tekjuöflun í gegnum lífeyrissjóði
og með sölu ríkiseigna, efling fjár-
lagaferlisins og fjölmargir fleiri
þættir. olikr@frettabladid.is
FINNUR ODDSSON OG TÓMAS MÁR SIGURÐSSON Finnur er framkvæmdastjóri Viðskipta-
ráðs Íslands og Tómas Már formaður. Þeir kynntu í gær, ásamt Frosta Ólafssyni aðstoðar-
framkvæmdastjóra, nýja skýrslu ráðsins um fjármál hins opinbera. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hægt að ná árangri
í óbreyttu skattkerfi
Viðskiptaráð Íslands varar við víðtækum skattkerfisbreytingum sem óvíst sé að
skili tilætluðum árangri. Ráðið leggur í nýrri skýrslu til skattahækkanir og sam-
drátt hjá ríkinu. Opinber útþensla hafi hvergi í OECD verið meiri en hér síðustu ár.
SKATTABREYTINGAR 2009/2010
Skattur Ársbyrjun 1. júlí 2010
Fjármagnstekjuskattur 10% 15% 18%
Virðisaukaskattur 7/24,5% 7/24,5% 7/14/24,5%
Tekjuskattur fyrirtækja 15% 15% 18%
Tryggingagjald 5,34% 7% 8,6%
Tekjuskattur 24,1% 24,1/32,1% 24,1/27/33%
Meðalútsvar 13,1% 13,1% 13,1%
Nýir skattar - - 5,6 ma.kr.
Auðlegðarskattur - - 1,25%
Heimild: Viðskiptaráð Íslands
STJÓRNSÝSLA Skjöl sem safnast hafa
upp á 22 árum hjá embætti Ríkis-
saksóknara voru í gær ferjuð úr
húsakynnum Ríkissaksóknara við
Hverfisgötu í þrjá flutningabíla.
Bílarnir munu síðan flytja skjölin
til Ísafjarðar, þar sem þau verða
framvegis geymd á vegum Þjóð-
skjalasafns.
„Þetta er búið að valda okkur
vandræðum lengi og þrengja að
okkur auk þess sem þetta eru alls
ófullnægjandi geymsluaðstæður,“
segir Valtýr Sigurðsson ríkis-
saksóknari. Gögn frá árunum 1981
til 2003 verða send til Ísafjarðar,
en verða embættinu þó áfram
aðgengileg. - sh
Skjalasafn Ríkissaksóknara til tuttugu ára flutt í betri geymslur:
Þrír bílar af skjölum til Ísafjarðar
MIKIÐ AF SKJÖLUM Valtýr, sem hér tekur á honum stóra sínum, segist ekki með
vissu geta sagt til um magn skjalanna. Stjórnvöld veittu fimm milljónir til þess verk-
efnis að flytja skjölin vestur og hirða um þau þar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
minnkaði veiðikvóta fyrir þorsk
og bannaði alveg veiðar á nokkr-
um tegundum hákarla, en heim-
ilaði hins vegar meiri veiðar á
ansjósu.
Sjávarútvegsráðherrar
Evrópusambandsríkjanna tóku
ákvarðanir um þetta í gær,
þegar kvótar fyrir næsta ár
voru afgreiddir.
Umhverfisverndarsinnar
gagnrýndu kvótasamkomu lagið
og segja að þrátt fyrir minni
kvóta á sumar tegundir markist
ástand flestra fiskistofna af við-
varandi ofveiði.
- gb
Evrópusambandið:
Niðurskurður
fiskveiðikvóta
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi, hinn
umdeildi en vinsæli forsætisráð-
herra Ítalíu, er enn á sjúkrahúsi
en útskrifast hugsanlega í dag.
Hann meiddist illa í andliti
þegar maður réðst á hann á úti-
fundi á sunnudag, en í gær reyndi
annar maður að ráðast á hann
á sjúkrahúsinu. Sá komst upp á
sömu hæð og Berlusconi liggur
á á sjúkrahúsi í Mílanó, en var
stöðvaður áður en hann komst
inn í stofuna. Berlusconi á erfitt
með að borða, en ekki er talið
að meiðsli hans verði honum til
trafala þegar frá líður. Læknar
hafa þó ráðlagt honum að hafa
hægt um sig næstu tvær vikurn-
ar að minnsta kosti. - gb
Berlusconi enn á sjúkrahúsi:
Hefur hægt um
sig næstu vikur
SILVIO BERLUSCONI Annar maður reyndi
að ráðast á hann í gær. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
3°
-2°
0°
1°
-2°
-4°
-5°
-1°
23°
4°
15°
2°
22°
-6°
2°
15°
-5°
Á MORGUN
Fremur hægur vindur
fram eftir degi.
-2
LAUGARDAGUR
Stormur með A-
ströndinni.
-1 -2
-3
-4
-1
2
1
3
0
3
3
4
3
3
4
5
3
5
-3
5
7
5
9
4
2
3
5
4
6
3
2
HVÍT JÓL? Það
kólnar á landinu
þegar nær dregur
helgi og því er ekki
loku fyrir það skot-
ið að jólin verði
hvít að þessu sinni,
að minnsta kosti
á hluta landsins.
Það fer væntan-
lega að snjóa
norðaustanlands á
laugardaginn.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
GENGIÐ 16.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,1368
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,95 126,55
205,62 206,62
183,26 184,28
24,623 24,767
21,774 21,902
17,606 17,71
1,4036 1,4118
199,06 200,24
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Mistök urðu til þess að á síðu 10
í blaði gærdagsins birtist mynd af
Franek Rozwadowski, sendifulltrúa
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á
Íslandi, í stað myndar af Mark Flanag-
an, yfirmanni sendinefndarinnar AGS
á Íslandi.
LEIÐRÉTTING
Í SEÐLABANKANUM Franek Rozwadow-
ski og Mark Flanagan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LANDSPÍTALI Alþingi heimilaði í
gær undirbúning útboðs vegna
leigu ríkisins á nýjum Land-
spítala við Hringbraut. Einnig
veitti þingið ríkinu heimild til
að stofna hlutafélag um bygg-
ingu nýja spítalans og til að veita
félaginu lóðarréttindi við Hring-
braut.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi
að ekki hefðu verið færð nægi-
lega góð rök fyrir því að reisa
nýtt sjúkrahús við Hringbraut.
„Ég tel að sú staðsetning sem
hefur verið ákveðin og liggur
fyrir sé ekki sú heppilegasta,“
sagði Jón en kvaðst hins vegar
telja mikilvægt að undirbúa
framkvæmdir vegna nýs spítala.
- pg
Hf. stofnað um Landspítala:
Nýtt hlutafélag
leigi ríkinu nýja
Landspítalann
FÉLAGSMÁL Stjórn VR samþykkti
í gær vantraust á Bjarka Stein-
grímsson sem varaformann
stjórnar félagsins.
„Ástæðurnar eru trúnaðar-
brestur og samstarfsörðugleik-
ar. Að mati stjórnar tók stein-
inn úr þegar hann hélt ræðu á
útifundi á Austurvelli hinn 5.
desember síðastliðinn þar sem
hann lítilsvirti ekki eingöngu
störf eigin félags heldur verka-
lýðshreyfingarinnar í heild
sinni,“ segir í yfirlýsingu stjórn-
arinnar, sem kveður Bjarka
ítrekað hafa í nafni félagsins
talað gegn ákvörðunum stjórn-
arinnar.
„Þá hefur Bjarki dylgjað um
meint leynimakk innan félags-
ins, farið með ósannindi og
sakað samstjórnendur sína um
blekkingar.“ - gar
Varaformanni VR vikið frá:
Sagður ljúga og
lítilsvirða VR