Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 6

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 6
6 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR Glösin sem gera góð vín betri www.fastus.is 580 3900 Síðumúla 16 Rauðvínsglas 55 cl. 1.295 Hvítvínsglas 40 cl. 1.195 Kampavínsglas 20 cl. 1.095 SVEITARSTJÓRNIR „Við höfnum algjör- lega þeim hugmyndum sem settar hafa verið fram um hækkanir fast- eignaskatta, útsvars og stórfellds niðurskurðar á þjónustu til að leysa rekstrarvanda sveitar félagsins og vísum í því sambandi til boðaðra aðgerða ríkisstjórnar um auknar skattaálögur,“ segja bæjar fulltrúar minnihluta Á-listans á Álftanesi. Fulltrúar Á-listans telja rangt að segja skuldir og skuldbinding- ar Álftaness vera 7,4 milljarða króna. Nær sé að tala um að skuld- ir og skuldbindingar sveitarfélags- ins séu um fjórir milljarðar. Það sé meðal annars vegna þess að ekki sé tekið tillit til hagræðingar af leiguskuldbindingum og þess að í það stefni að þær lækki um fjöru- tíu prósent um áramótin og skuld- bindingar falli þannig úr tæpum þremur milljörðum í um 1,7 millj- arða. „Af þessum fjórum milljörð- um má rekja einn milljarð beint til efnahagshrunsins á Íslandi,“ segja þeir og bæta við að eignir sveitar- félagsins séu vanreiknaðar um allt að ríflega tvo milljarða króna vegna vanmats á lóðum og lönd- um. Meðal skuldbindinga er samn- ingur við Fasteign ehf. um leigu á íþróttamannvirki og sundlaug. Leigan hefur nú verið lækkuð og á að nema um 155 milljónum króna á næsta ári. Fulltrúar Á-listans benda á að samningurinn við Fast- eign hafi verið samþykktur sam- hljóða í bæjarstjórn á árinu 2006. Skýrsla frá ráðgjafafyrirtæki hafi sýnt að sveitarfélagið réði við fjár- festinguna og bæjaryfirvöld metið það svo að ný sundlaugarmann- virki, sem séu senn skólamann- virki og til almenningsnota, myndu styrkja búsetu á Álftanesi og auð- velda uppbyggingu í nýjum miðbæ. Hluti af fjárfestingunni kæmi því til baka með nýjum tekjum. - gar Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Álftaness segja skýrslu gefa ranga mynd: Segja óþarft að hækka álögur SIGÐURÐUR MAGNÚSSON Fyrrverandi bæjarstjóri Álftaness segir skuldir bæjarins ofmetnar og tekjur og eignir vanmetnar í nýrri skýrslu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SVEITARSTJÓRNIR Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélags- ins Álftaness eru 495,3 prósent af heildartekjum árið 2009 og 626,2 prósent að frátöldum bókfærðum tekjum vegna sölu byggingarrétt- ar. Þetta kemur fram í skýrslu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. „Sveitarfélagið Álftanes er komið í greiðsluþrot. Það getur ekki staðið við sínar skuldbind- ingar og hefur verið synjað um frekari lánafyrirgreiðslu hjá viðskiptabanka sínum,“ segir í helstu niðurstöðum skýrslunnar. „Beiðni sveitarfélagsins til Lána- sjóðs sveitarfélaga um lán vegna lausafjárskorts hefur ekki skilað árangri og tilgreinir lánasjóður- inn að aðkoma sjóðsins að málinu verði í samvinnu við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga,“ er síðan bætt við. Eftirlitsnefndin segir hallann á rekstri sveitarfélagsins árið 2008 hafa verið 832 milljónir króna og að í ár sé gert ráð fyrir að hall- inn verði 238,3 milljónir – en 568,6 milljónir ef frá eru taldar bók- færðar tekjur vegna sölu á bygg- ingarrétti. Skuldir og skuldbindingar Álfta- ness eru um 7,4 milljarðar króna, að sögn eftirlitsnefndarinnar. Eins og haft var eftir Kristjáni L. Möller sveitarstjórnarráðherra í Fréttablaðinu í gær nema svokall- aðar skuldbindingar utan efna- hags tæplega þremur milljörðum, að mestu vegna langtímasamn- inga við Fasteign hf. sem leigir Álftnesingum sundlaug og íþrótta- mannvirki. „Sé miðað við sömu skatttekjur sveitarfélagsins árið 2010 og reiknað er með árið 2009 [1.174 milljónum] þurfa rekstrarútgjöld að minnka um tæplega 900 millj- ónir króna til að eiga fyrir öllum rekstri málaflokka og næsta árs afborgunum,“ segir eftirlitsnefnd- in sem upplýsir jafnframt að áætl- uð greiðslubyrði lána árið 2010 sé 626,3 milljónir króna, þar af samtals 430 milljóna kúlulán hjá Arion banka og Lánasjóði sveitar- félaga. „Þrátt fyrir 832 milljóna króna halla á rekstri sveitarfélagsins árið 2008 hefur sveitarfélagið ekki gripið til viðhlítandi rekstrar- hagræðingaraðgerða til að koma rekstrinum í jafnvægi,“ segir í skýrslunni og útlitið er ekki málað björtum litum: „Þrátt fyrir að gripið verði nú þegar til verulegrar rekstrarhag- ræðingar, hækkunar fasteigna- skatts og álagi á útsvar verði beitt er vandséð að Sveitarfélagið Álftanes geti orðið sjálfbært nema til komi verulegur utanaðkomandi stuðningur.“ Skýrslan hefur nú verið gerð aðgengileg á heimasíðu Álfta- ness. Í kvöld klukkan átta munu forystumenn sveitarfélagsins fara yfir stöðuna á íbúafundi í íþrótta- húsinu. gar@frettabladid.is Lokað var á Álftanes í bönkum og sjóðum Arion banki og Lánasjóður sveitarfélaga synjuðu Álftanesi um meira lánsfé og sveitarfélagið er komið í þrot. Áætlað er að Álftanes þurfi að borga 626 milljónir króna af lánum á næsta ári – þar af er 430 milljóna kúlulán. Íbúafundur í kvöld. KVÖLD Á ÁLFTANESI Um 2.500 manns búa á Álftanesi og deila þar með sér 7,4 milljarða króna skuldabyrði. Sé skuldunum deilt á þá 1.234 Álftnesinga sem kusu í síðustu bæjarstjórnarkosningum 2006 eru þær um sex milljónir á mann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar minni- hluta Sjálfstæðisflokks í bæjar- stjórn Árborgar sögðu sig frá sam- starfi við meirihlutann um gerð fjárhagsáætlunar næsta árs og greiddu atkvæði gegn áætlun inni þegar hún var samþykkt í gær- kvöldi. „Samkvæmt áætlun meirihlut- ans verður eigið fé neikvætt um 264 milljónir. Í raun er því lögð fram hér áætlun þar sem stefnir í tæknilegt gjaldþrot bæjarsjóðs um mitt næsta ár þegar eigið fé bæjarsjóðs verður uppurið,“ segir í bókun sjálfstæðismanna. „Fjár- hagsáætlun meirihlutans gerir ráð fyrir 629 milljóna króna tapi af rekstri árið 2010. Tapið er svip- að og á yfirstandandi ári en það er áætlað 640 milljónir.“ Sjálfstæðismenn segja uppsafn- að tap fyrir árin 2008 til 2010 sam- kvæmt fjárhagsáætluninni vera 2.480 milljónir króna eða yfir tvær milljónir á hverjum degi. „Það er ekki auðvelt verkefni sem bíður næstu bæjarstjórnar því fyrr frek- ar en síðar þarf að ná jafnvægi í rekstri. Ekki er útlit fyrir greiðslu- þrot á árinu 2010 miðað við að það takist að fá 530 milljónir í ný lán á árinu. Meiri óvissa er með 2011 og hvernig unnt verður að tryggja fjármagn og forðast greiðsluþrot bæjarsjóðs,“ segja sjálfstæðis- menn og vísa ábyrgð á stöðunni á hendur meirihluta Samfylking- ar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna sem starfað hafi frá því í desember 2006. - gar Sjálfstæðismenn sögðu sig frá samstarfi um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn: Telja Árborg stefna í tæknilegt þrot RÁÐHÚSIÐ Á SELFOSSI Sjálfstæðismenn í Árborg segja sveitarfélagið hafa tapað nær tveimur milljörðum á tveimur árum og að enn eigi að bæta við tapið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Telur þú að breytingar á lofts- lagi kunni að ógna lífsskilyrðum á Íslandi? Já 47,7% Nei 52,3% SPURNING DAGSINS Í DAG Á ríkið að fara í skaðabótamál við einstaklinga vegna banka- hrunsins? Segðu þína skoðun á visir.is BRASILÍA, AP Læknar í Brasilíu hafa fundið allt að 50 saumnál- ar í líkama tveggja ára drengs. Sumar þeirra eru allt að fimm sentimetra langar. Svo virðist sem nálunum hafi verið stungið í líkamann einni og einni í einu, því hann hefði ekki getað gleypt þær. Læknar vonast til þess að geta fjarlægt flestar þeirra, en sumar er ekki hægt að hreyfa vegna þess að þær eru rétt hjá eða í mikilvægum líf færum. Móðir drengsins kom með hann á sjúkrahús í bænum Ibotirama í síðustu viku eftir að hann hafði kvartað undan verkjum og kastað upp. - gb Tveggja ára drengur í Brasilíu: Alþakinn nál- um innvortis KJÖRKASSINN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.