Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 11

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 11
FIMMTUDAGUR 17. desember 2009 11 NEYTENDAMÁL Neytendasamtökin hafa á vef sínum, ns.is, tekið saman nokkrar jólagjafir sem þau mæla með. „Við ákváðum að velja sex eða sjö gjafir. Þær höfðu þá ýmist komið vel út úr gæðakönnun eða eru á hlutfallslega góðu verði,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður samtakanna og rit- stjóri Neytendablaðsins. Hún segir svokallaða hálkugorma klárlega vera jólagjöfina í ár. Á vef samtakanna er líka sagt upplagt að lauma endurskinsmerki í pakk- ann til að auka enn á öryggið. Þá mæla Neytendasamtökin með íslenskum lopa, en verð á honum hafi almennt ekki hækk- að í verslunum. Adidas Supernova Glide-hlau- paskórnir eru sagðir hafa fengið góða einkunn í gæðakönnun samtakanna fyrr á árinu og svo megi mæla með svansmerktum rúmfötum og handklæðum. Svansmerkið er sagt tryggja að varan hafi verið framleidd á eins umhverfisvænan hátt og hægt sé. Samtökin mæla líka með Nivea hrukku-augnkremi sem könnun hafi sýnt að geri örlítið meira gagn en önnur, auk þess að vera á hag- stæðu verði. „Það er hins vegar ekki nema fyrir þá allra hugrökkustu að gefa eiginkonunni eða tengdamömmu slíka gjöf,“ segir líka í umsögn. Samtökin klykkja svo út með því að mæla með Neytendablaðsáskrift í jólagjöf, þannig megi auka neytendavitund þess sem þiggur. - óká BRYNHILDUR PÉTURSDÓTTIR Brynhildur, sem ritstýrir meðal annars Neytendablaðinu, segir hálkugorma, nýja tegund mannbrodda, vera jólagjöfina í ár. Neytendasamtökin mæla með nokkrum jólagjöfum á vef samtakanna: Nýir mannbroddar í pakkann FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N ÖRYGGISMÁL Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Snorri Olsen tollstjóri undirrituðu í gær samstarfs- samning milli Tollstjóraembætt- isins og Landhelgisgæslu Íslands. Tilgangur samningsins er að efla og styrkja samstarf stofnananna á ýmsum sviðum. Samningurinn tekur meðal annars til miðlunar upplýsinga milli stofnananna, samnýtingar á tækjabúnaði, samstarfs á vett- vangi og sameiginlegra eftirlits- verkefna, námskeiða og þjálfunar starfsmanna og starfsmanna- skipta. - shá Gæslan og Tollurinn: Efla og styrkja samstarfið SAMSTARF Í HÖFN Georg Lárusson og Snorri Olsen undirrituðu samstarfs- samning í gær. MYND/LHG Styrkja Mæðrastyrksnefnd BSRB ákvað að senda ekki vinum og velunnurum jólakort þetta árið heldur að nýta peningana til góðgerða. Ákveðið var að veita Mæðrastyrks- nefnd Reykjavíkur styrk að upphæð 300 þúsund krónur. FÉLAGSMÁL FÉLAGSMÁL KPMG á Íslandi og Geðhjálp hafa undirritað styrktar samning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálp- ar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals þrem milljón- um króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál. Geðhjálp gætir hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vanda- mála, aðstandenda þeirra og ann- arra sem láta sig geðheilbrigðis- mál varða. - shá Tveggja ára samningur: KPMG styrkir Geðhjálp Opið í útibúinu í Kringlunni til klukkan 21 í kvöld Komdu og kynntu þér úrræði vegna húsnæðis- og bílalána Að undanförnu höfum við kynnt úrræði með það að markmiði að auðvelda viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins. Má þar nefna höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun fyrir einstaklinga á: verðtryggðum húsnæðislánum erlendum húsnæðislánum bílalánum og bílasamningum Úrræðin henta viðskiptavinum misvel og við viljum hjálpa þér að vega og meta kosti þeirra og galla. Þess vegna bjóðum við viðskiptavinum að setjast niður með starfsfólki okkar í kvöld og fara ítarlega yfir þau úrræði sem eru í boði. Ekki verður opið hjá gjaldkerum. Allir viðskiptavinir Íslandsbanka velkomnir.  Starfsfólk okkar í Þjónustuverinu verður einnig við símann til kl. 21 í kvöld. Síminn er 440 4000. Viðskiptavinir athugið: Fresturinn til að sækja um höfuðstólslækkun hefur verið framlengdur til 1. mars 2010. Ryksugur - fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir. Hátúni 6a . 105 Reykjavík Sími 552 4420 . www.fonix.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.