Fréttablaðið - 17.12.2009, Qupperneq 18
18 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Róbert Magnússon er einn
af helstu sérfræðingum
heims í nanórannsóknum.
Í nýrri grein í bandarísku
blaði eru rannsóknir hans
sagðar geta lagt grunninn
að framtíðarhagsæld
Bandaríkjanna. Milljónir
dala hafa verið lagðar í nýja
rannsóknarstofu hans sem
verður opnuð í janúar.
Róberti Magnússyni, prófessor í
rafmagnsverkfræði og yfirmanni
nanórannsókna við Texasháskóla í
Bandaríkjunum, er nýverið hamp-
að í blaðinu Star-Telegram. „Fram-
tíðarhagsæld landsins gæti byggt
á þeim vísindum sem fá Róbert
Magnússon til að eyða milljónum
dala í uppsetningu rannsóknarstofu
sinnar,“ segir þar.
„Í Texas er nú lögð mikil áhersla
á nanótækni. Og ég hef verið að
vinna við ákveðna hlið á þeim
málum í hátt í tuttugu ár. Svo fóru
þessir nanóflokkar sem maður er
búinn að vera bjástra við lengi að
skila árangri,“ segir Róbert, en
einn þáttur sem hann hefur unnið
að snýr að tækni við lyfjafram-
leiðslu. „Við erum að reyna að setja
á markað efnanema og ýmislegt
annað sem lofar góðu.“
Háar tölur í smárannsóknum
Aðdraganda núverandi starfa rekur
Róbert til vorsins 2007. „Þetta fór
í gegn um margar nefndir og stórt
fyrirtæki sem heitir Texas Instru-
ments og fjármagnar þennan
„endowed chair“ [einkafjármögn-
un rannsókna innan háskóla, innsk.
blm.],“ segir hann, en fyrirtækið
leggur tvær milljónir dala í sjóð og
fimm prósent árlegs arðs renna til
rannsóknanna. „Heildarpakkinn er
svo fimm milljónir dala sem fara í
að setja upp sérhæfðar rannsókn-
arstofur hér og þær opnum við í
janúar,“ segir Róbert, en fimmtán
manns starfa við rannsóknirnar.
Róbert er meðal fremstu vísinda-
manna heims á sviði nanótækni.
Star-Telegram segir spár gera ráð
fyrir að á næstu fimm árum komi
árlegt söluandvirði framleiðsluvara
sem byggja á nanótækni til með að
nema 2,5 billjónum dala. (Talan er
nær óskiljanleg, 2.500 milljarðar
dala, eða 315 þúsund milljarðar
íslenskra króna.)
Róbert starfaði áður við háskól-
ann í Texas, en hafði flutt sig til
Connecticut þegar kallið kom um
að koma á legg rannsóknarstofunni.
„Ég var ráðinn þangað deildarfor-
seti rafmagnsverkfræðideildar og
sinnti því starfi í fimm ár, en var
samt alltaf í rannsóknum líka, með
stofu, fólk og fjárráð. Ég var því
ekki alveg steindauður stjórnandi
heldur hélt mér við.“
Róbert segir að fræðin séu eitt og
hagnýting þeirra annað. „Við höfum
alltaf sinnt mikilli teoríu, en erum
núna komin með mjög góða fram-
leiðslugetu líka og getum gert mun
meira af tilraunum en áður. Sér í
lagi síðan í vor og getum nú sann-
reynt fræðin. Í kenningunum þarf
ekki annað en tölvur og blöð, það
er hins vegar mun erfiðara þegar
kemur að því að sannreyna þær.“
Nanófata Bakkabræðra
Fyrir utan mælingar sem snúa
að efnanemum í lyfjaiðnaði og
Róbert segir að megi nú gera með
mun lægri tilkostnaði en áður eru
margvísleg önnur not könnuð fyrir
nanótækni. Til dæmis skoðar teymi
Róberts hvernig framleiða megi
sólarorkuselluplötur sem fram-
leiði meiri orku miðað við flatar-
mál en aðrar slíkar. „Við erum
með ágætis fræðilegar niðurstöður
í þeim efnum og getum örugglega
framleitt prótótýpur sem fram-
leiða meira rafmagn en hefðbundn-
ar, en svo á eftir að koma ljós hvort
fjöldaframleiðsla er hagkvæm,“
segir hann, en að auki snúa rann-
sóknirnar að margvíslegum þáttum
samskiptakerfa, svo sem um hvern-
ig stýra megi ljósflæði og samstilla
gagnasendingar yfir ljósleiðara.
„Við vinnum að nýjum útfærslum
á því að pólera ljós, en pólering á
ljósi er nytsamleg í mörgum tækj-
um og ég er að sækja um einkaleyfi
á nýrri útfærslu á því,“ segir hann,
en einnig er unnið að svokallaðri
ljósgeymslu og því að hægja á ljósi.
Bakkabræður voru því kannski
ekki alveg úti að aka þegar þeir
reyndu að bera sólarljósið í kofann,
þótt þeir hefðu líkast til þurft hjálp
Róberts til að ná árangri. „Ég er
með nýja útfærslu af fötu Bakka-
bræðra,“ segir hann og hlær.
Rannsóknir borga sig
Róbert fór beint til Bandaríkjanna
úr menntaskóla og nam verkfræði,
en á þeim tíma segir hann að ekki
hafi verið hægt að nema verkfræði
nema til hálfs við Háskóla Íslands.
„Ég fékk ágætisnámsstyrk og
fór svo til Flórída þar sem frænka
mín Kristín Eyfells og maður henn-
ar bjuggu. Hann var prófessor við
háskólann og þar fékk ég ókeypis
fæði og húsnæði og lauk BS-prófi.“
Síðan fór Róbert til Georgia Tech í
Atlanta og kláraði þar doktorsnám í
rafmagnsverkfræði. Hann hefur þó
ekki verið alveg óslitið í Bandaríkj-
unum því hann sneri hingað heim
árið 1979 og starfaði hjá RARIK
við að skipuleggja orkukerfið hér
í fimm ár.
„En svo leiddist mér bara þessi
sterkstraumsbransi. Ég nennti
þessu ekki,“ segir hann og hlær, en
í kjölfarið fór hann aftur til Amer-
íku sem prófessor. „Ég hef verið
hér óslitið frá 1984.“
Róbert er stoltur af vinnu sinni
og efast ekki um gildi þess að efla
framþróun vísinda og tækni. „Ef
við náum almennilegum tökum á
þessu getur heimurinn orðið miklu
betri. Möguleikar nanótækni eru
svo miklir. Reyndar var ég að
hlusta á umfjöllun National Public
Radio þar sem var sagt að taka ætti
0,2 prósent af vergri heimsfram-
leiðslu og leita að „breakthrough
technology“. Ef það er eitthvað sem
kemur til með að bjarga heiminum
þá er það tæknin.“
FRÉTTAVIÐTAL: Íslenskur frumkvöðull í nanófræðum
Í VINNUGALLANUM Róbert Magnússon, prófessor í rafmagnsverkfræði við University of Texas í Arlington í Bandaríkjunum, stýrir
rannsóknarstofu í nanótækni sem risafyrirtækið Texas Instruments fjármagnar. Róbert heldur góðum tengslum við Ísland en
hann hefur nú búið óslitið í Bandaríkjunum í um aldarfjórðung. Á árum áður var Róbert hjá RARIK.
TÆKNIN HAGNÝTT Hér getur að líta efnagreiningartæki sem Resonant Sensors
Incorporated (RSI), félag sem Róbert Magnússon stofnaði, er að setja á markað.
MYND/RÓBERT MAGNÚSSON
FRÉTTAVIÐTAL
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
oka@frettabladid.is
Komi eitthvað til með að bjarga
heiminum þá er það tæknin
HEIMSINS MINNSTI EGGJABAKKI
Ljóseindagildra framleidd á
rannsóknastofu Róberts. Ljós
sem fellur á flötinn festist þar
um stund en fer svo sína leið.
„Svipuð tækni nýtist til að
auka ljósgleypni sólarsellu,“
segir hann og kveður frum-
gerðina hér að ofan líta út
eins og eggjabakka þar sem
þvermál hvers eggs er um
100 nanómetrar. Athugið að
einn míkrómetri er þúsundasti
hluti úr millimetra, en 1.000
nanómetrar eru í hverjum
míkrómetra. „Það þarf ansi
litlar pútur í svona eggjafram-
leiðslu!“ segir Róbert.
M
YN
D
/RÓ
B
ERT M
AG
N
Ú
SSO
N
Nanótækni snýst um örsmáa
hluti, en nanó er stærðareining og
vísar til þess að einhver hlutur sé
ekki nema nokkrir nanómetrar að
stærð.
Á Vísindavef Háskóla Íslands
kemur fram að einn nanómetri
sé einn milljarðasti úr metra.
„Þvermál vetnisatóms er einn
tíundi úr nanómetra og fjarlægð
milli atóma í kristal er á bilinu 0,2
til 0,6 nanómetrar. Því er talað um
að hlutir gerðir úr nokkrum atóm-
um, til dæmis 10-10.000, séu á
nanóskala. Flóknar sameindir eru
því einnig í þessu stærðarþrepi.“
Þar af leiðir að nanóvísindi
og nanótækni kanna eiginleika
þessara örsmáu kerfa, en þau
munu oft sett saman atóm fyrir
atóm á yfirborði efnis með oddi
smugsjár (e. scanning tunnelling
microscope). „Þjóðverjinn Gerd
Binnig og Svisslendingurinn Hein-
rich Rohrer fengu Nóbelsverðlaun-
in í eðlisfræði árið 1986 fyrir upp-
götvun smugsjárinnar og má af því
sjá hversu nýja og mikilvæga hluti
hér er um að ræða. Á síðasta ára-
tug lærðu menn að nota smugsjá
til þess að raða saman atómum í
alls konar form á yfirborð málma,“
segir á vísindavefnum. Þar er jafn-
framt vísað til þess að á átjándu
öld hafi iðnbyltingin gerbreytt
umhverfi okkar og að undir lok
síðustu aldar hafi breytingar hafist
vegna upplýsingarbyltingarinnar
sem ekki sjái fyrir endann á.
„Á þessari öld gæti vel farið svo
að nanótæknibyltingin hefjist. Þá
eins og nú mun vaxa þörfin fyrir
eðlisfræðinga, efnafræðinga og líf-
fræðinga menntaða á þessu sviði
auk nýrra greina innan verkfræði.
Margar tækniframfarir framtíðar
munu byggjast á lífvísindum og
eðlisvísindum og getu þeirra til að
skilja og framleiða flókin kerfi úr
einföldum byggingasteinum.“
HVAÐ ERU
NANÓVÍSINDI
OG NANÓTÆKNI?
Hollráð um eldvarnir
oryggi.is
Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim!
Reykskynjarar bjarga mannslífum
Á hverju heimili ættu að vera reykskynjarar,
slökkvitæki og eldvarnateppi.
Fleiri hollráð og netverslun með öryggisvörur
er að finna á oryggi.is.
PPII
PPAAA
RRRRRR
\\\\\\\\\\\\
TTTTTTTTTTBBBBB
WWWWWW
AAAA
••
SSÍÍ
AAA
•
9
2
2
5
4
5
44
9
2
2
5
9
2
2