Fréttablaðið - 17.12.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 17.12.2009, Síða 22
22 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR John Kerry, öldungadeildarþing- maður frá Bandaríkjunum og fyrr- um forsetaframbjóðandi Demó- krataflokksins, segist handviss um að Bandaríkjaþing muni sam- þykkja frumvarp sem taki veru- lega á loftslagsmálum. Deilir hann þeirri skoðun með Al Gore, fyrr- verandi varaforseta, sem viðraði hana fyrr í vikunni. Spurður út í andstöðu á þinginu við slíkt frumvarp, sagðist hann viss um að þingmenn skildu nauð- syn frumvarpsins og það yrði sam- þykkt í vor. Kerry segist ekki í neinum vafa um að koma verði á kerfi þar sem útblástur koltvísýrings er verð- lagður. Hann geti þó ekki lofað að slíkt verði inni í frumvarpinu, enn séu ólíkar hugmyndir uppi um leiðir. Hann segir alla hljóta að sjá að það sé Bandaríkjunum í hag að verða óháð með orku. „Við eyðum milljörðum dollara á dag til að kaupa svart efni frá útlöndum, sem við brennum síðan og þurfum að eyða fjármunum í að hreinsa upp mengun.“ Mun skynsamlegra væri að nýta innlenda orkugjafa, það hlytu allir að sjá. Kerry sagðist skynja að grund- völlur samkomulags væri fyrir hendi. Hann sagði gríðarlega mik- ilvægt að samið yrði um fjárstuðn- ing til aðgerða strax. Hans ráð til Obama væru að forsetinn ætti þó að búa sig undir að kerfi til lang- tímastuðnings í loftslagsmálum yrði komið á fót. Kaldhæðnislegt væri ef þriðji heimurinn myndi endurtaka þau mistök sem við skiljum nú að vest- ræn ríki hafi gert í fortíðinni. Sú yrði þó raunin fengju þau engan stuðning. Viss um að Bandaríkin samþykki loftslagsfrumvarp: Verðleggja þarf útblástur KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ skrifar frá Kaupmannahöfn kolbeinn@frettabladid.is Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn Hugo Chavez, forseti Venesúela, hélt ræðu, líkt og fjölmargir þjóðar- leiðtogar, í gær. Chavez var ánægður með mótmælendur fyrir utan ráð- stefnuhöllina og nýtti ræðutíma sinn að hluta til að koma boð- skap þeirra á framfæri. Það voru fyrst og fremst tvö slagorð sem heilluðu forsetann: „Breytið kerfinu, ekki loftslaginu!“ og „Ef loftslagið væri banki væri búið að bjarga því.“ Chavez sagði þetta orð að sönnu. Hann sagði vofu á ferð í Kaup- mannahöfn, vofu sem enginn þyrði að nefna en væri alltumlykjandi. Þetta væri vofa kapítalismans sem sósíalisminn einn gæti bjargað. Forseti Venesúela: Færði boðskap fólksins í salinn Mikil spenna var í aðalfundar- salnum í Bella Center í gær. Full- trúar þróunarríkjanna, G77, voru gríðarlega óánægðir með hvern- ig haldið var á málum. Þeir komu hver á fætur öðrum í pontu um fundarstjórn og nýr fundarstjóri átti í erfiðleikum með að greiða úr flækjunni. Það tókst þó á endanum og örlítið meiri bjartsýni ríkti í lok dags en í gærmorgun. Fulltrúar Afríkuríkja höfðu fundað alla nóttina aðfaranótt mið- vikudags þegar texti fór á kreik sem geymdi uppkast að lokasamn- ingi. Textinn hleypti illu blóði í fulltrúana, sem fannst fráleitt nóg að gert fyrir þróunarríkin. Textinn bæri allt of mikinn keim af hagsmunum hinna ríkari þjóða. Fulltrúarnir létu vel í sér heyra og gerðu ljóst að slíkur samning- ur yrði aldrei samþykktur. Ljóst er að þróunarríkjunum er alvara með því að standa fast á sínum kröfum. Verði ekki fallist á þær telji þau sig óbundin samn- ingum um takmörkun útblást- urs gróðurhúsalofttegunda þegar Kyoto-bókunin rennur út árið 2012. Þau hyggist rétta efnahag sinn við með iðnfyrirtækjum með tilheyr- andi útblæstri. Fyrst og fremst er það sendi- nefnd Bandaríkjanna sem stend- ur í vegi fyrir auknum fjárfram- lögum. Eftir því sem fundað var, aðfaranótt miðvikudags, ríkti nokkur bjartsýni. Símtal frá Obama sem ítrekaði fyrri afstöðu Bandaríkjanna gerði hana að engu og hleypti meri kergju í Afríku- þjóðir. Kínverjar, Indverjar og Brasilíumenn hafa einnig gagn- rýnt afstöðu Bandaríkjamanna. Þá urðu forsetaskipti á ráðstefn- unni í gær þegar Connie Hedegård sagði af sér, að sögn til að hleypa þjóðhöfðingja með meiri vigt að stjórninni. Lars Lokke Rasmussen, forsætisráðherra Dana, gerði enga lukku fyrsta dag sinn í embætti. Í ljós kom að hann var ekki betur inni í málum en svo að hann skildi ekki skammstafanir og honum gekk erfiðlega að halda utan um umræðuna. Honum til afbötunar skal nefnt að skammstafanir hér eru í hundraða tali. Í lok dagsins virtist aðeins hafa hægst um. Það er þó enn með fullu óvíst hver niðurstaðan verður. Enn halda menn í vonina um að það náist að búa til ramma að samn- ingi sem staðfestur verði í Mexíkó á næsta ári. Kergja í viðræðum og óvissa um samning Kergja hljóp í viðræður í gær og jafnvel var búist við að G77-ríkin gengju af fundi. Aðeins hefur ræst úr. Forseti ráðstefnunnar sagði af sér. Obama ítrekar að Bandaríkin geti ekki gefið meira eftir. Haldið er í von um niðurstöðu. Umhverfisráðherra, Svandís Svavars- dóttir, tók í gær við viðurkenningu fyrir Íslands hönd frá regnhlíf- arsamtökum kvenna, Women and Gender Constituency.Verðlaunin voru veitt Íslandi og Gana fyrir að tryggja aðkomu kvenna að úrbótum í loftslagsmálum. Svandís hélt í gær erindi á málstofu um konur sem afl til breytinga. Svandís segir að hugsunin sem felist í þeirri yfirskrift sé mikilvæg. „Kynjajafnrétti er alla jafna mikil- vægt en þegar við stöndum frammi fyrir svo miklum breytingum eins og nú verða að eiga sér stað, til að vinna bug á loftslagsbreytingum og þeirri vá sem þær skapa, verða konur að eiga jafnan aðgang að því að koma að úrlausnum, hvort sem lýtur að stjórnmálum, fjármagni eða lausn vandamálanna,“ segir Svandís. Hún segir málstofuna hafa gengið vel og mikil þátttaka hafi verið í umræðum, ekki síst frá þróunar- löndunum. „Þetta eflir yfirsýn yfir það sem er að gerast í heiminum í þágu kynjasjónarmiða varðandi loftslagsmál.“ Svandís segir íslensku sendi- nefndina hafa unnið þarft verk í því að koma orðunum Gender Equ- ality, kynjajafnrétti, í fyrsta skipti inn í samning um loftslagsmál, en það hafi tekist nú. Ísland fékk viðurkenningu á loftslagsráðstefnunni: Þykir hafa tryggt aðkomu kvenna ÚR AÐALSALNUM Mikill hiti var í umræðum í gær og fulltrúar G77-ríkjanna komu hver á fætur öðrum í pontu um fundarstjórn sem þeir voru ósáttir við. NORDICPHOTOS/AFP BJARTSÝNN Kerry sagðist bjartsýnn á að það tækist að ná samkomulagi um grund- vallaratriði í Kaupmannahöfn sem yrði að alþjóðasamningi næsta sumar. N O R D IC PH O TO S/ A FP HUGO CHAVEZ GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000 Ein gjöf sem hentar öllum Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina. Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans. N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 39 89 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.