Fréttablaðið - 17.12.2009, Síða 40
40 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Óskir á aðventu
UMRÆÐAN
Anna Sigríður Pálsdóttir, Arnfríður
Guðmundsdóttir, Baldur Kristjánsson,
Hjalti Hugason, Pétur Pétursson, Sigrún
Óskarsdóttir, Sigurður Árni Þórðarson
og Sólveig Anna Bóasdóttir skrifa um
íslenskt samfélag
Aðventan er töfrandi tími. Í svörtu skammdegi göngum við í ævintýra-
heim ljósa, tóna og fjölmargs annars
sem rýfur hversdaginn, boðar þá
hátíð sem fer í hönd, kveikir tilhlökk-
un í brjósti þeirra ungu og minnir
okkur sem komin erum til ára á gamla
eftirvæntingu.
Aðventan er þó einnig brothættur
tími sem getur gengið okkur úr greip-
um. Það er ætíð hætta á að hún snúist í
andhverfu sína. Þá koðna tákn hennar
niður í glys, glaum og glamúr. Kyrrð
víkur fyrir skarkala, hvíld fyrir kapp-
hlaupi, athygli beinist frá hinu innra að
hinu ytra. Vöxtur og uppbygging þoka
þá fyrir samanburði, samkeppni, lúxus
og bruðli eins og við þekkjum frá liðnum
tíma þenslu og útrásar. Þegar aðventan
snýst þannig verður hún auðveldlega
tími kröfu og kvíða.
Aðventan er tími sem við erum hvött
til að taka frá og helga með sérstökum
hætti undirbúningi en umfram allt von.
Séum við Íslendingar í þörf fyrir eitt-
hvað á þeim tímum sem við lifum nú
er það einmitt vonin. Mörg okkar hafa
kynnst vonbrigðum og vonleysi á undan-
gengnu ári.
Gefðu mér …
En hvers vonum við? Það er samvisku-
spurning sem okkur ber öllum að leita
svara við sem einstaklingar og sem þjóð.
Hvers vonum við til lengri og skemmri
tíma? Samviskuspurning er þetta vegna
þess að svarið afhjúpar gildismat okkar,
sýnir hvað það er sem við teljum gæfu
okkar grundvallast á og festum traust
okkar við, það sem við álítum að veiti
okkur hamingju.
Ætli vonir okkar sem einstaklinga
séu ekki svipaðar þegar grannt er skoð-
að þótt ólíkt sé bæði sinnið og skinnið?
Vonum við ekki öll sem erum foreldrar
að börnum okkar vegni vel; vonum við
ekki öll að við og þau sem standa okkur
næst megum njóta lífsgæða; að við sjálf
verðum þeim vanda vaxin að reynast
gott fólk sem getur tekist á við vanda
lífsins af æðruleysi, heiðarleika og sam-
hygð með öðrum?
Hitt er óljósara hvers við vonum sem
blekkt þjóð í vanda. Kann að vera að við
Íslendingar vonum það eitt að krossi
hrunsins verði sem fyrst létt af okkur,
að byggingarkranarnir megi sem fyrst
fara að hreyfast, að tími stórfram-
kvæmda muni sem fyrst renna upp, að
allt falli í sömu skorður og fyrir hrun,
jafnvel að þensla megi að hefjast að
nýju, að lífshættir ársins 2007 megi
verða mögulegir sem allra fyrst? Ein-
hvern tíman var sungið: „Gömlu, góðu
dagana gefðu mér …“ Lýsir sú hending
væntingum íslenskrar þjóðar í rúst-
unum eftir útrásina? Leitum við þess
vegna skjótvirkra lausna í nýjum og
stærri álverum, öflugri orkuverum og
öðrum stórframkvæmdum − töfralausn-
um?
Heilsurækt dyggðanna
Á þjóðfundinum 14. nóvember reyndu
fundarmenn að skilgreina gildismat
sitt og þar með þjóðarinnar. Heiðar-
leiki hafnaði þar í fyrsta sæti, virð-
ing kom númer tvö, því næst jafnrétti
og réttlæti, kærleikur og ábyrgð. Það
er óvíst að þessi listi lýsi raunverulegu
gildismati íslensku þjóðarinnar. Og það
er ljóst að hann lýsir ekki eiginleikum
okkar. Við erum ekki heiðarleg, rétt-
lát, ábyrg og kærleiksrík þjóð. Við leit-
uðum þvert á móti auðfengins, verald-
legs gróða meðan tækifæri gafst og það
er ekkert sem bendir til annars en við
gerum það enn. Gildaskrá þjóðfundar-
ins er fyrst og fremst óskalisti. Okkur
dreymir um heiðarleika, virðingu, jafn-
rétti, réttlæti og allt hitt sem talið var.
Og það er gott! En vonum við aðeins
að aðrir reynist heiðarlegir, réttlátir,
ábyrgir og trausts verðir eða ætlum við
að keppa eftir að lifa svo sjálf á þessari
aðventu og inn í framtíðina?
Aðventan er öðrum þræði föstutími,
tími iðrunar og yfirbótar, tími til prófa
sig sjálfan eða sjálfa, að keppa eftir og
æfa sig í einmitt þeim dyggðum sem
þjóðfundurinn skilgreindi. Aðventan
er tími ábyrgðar. Öxlum þá ábyrgð!
Þá getum við horft vongóð fram á við,
vænst hér „gróandi þjóðlífs með þverr-
andi tár“ eins og sungið verður við
upphaf nýs árs, nýrrar framtíðar.
Höfundar eru guðfræðingar.
ARNFRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
HJALTI HUGASON
ANNA SIGRÍÐUR
PÁLSDÓTTIR
BALDUR
KRISTJÁNSSON
PÉTUR PÉTURSSON SIGRÚN
ÓSKARSDÓTTIR
SIGURÐUR ÁRNI
ÞÓRÐARSON
SÓLVEIG ANNA
BÓASDÓTTIR
Okkur dreymir um heiðarleika, virð-
ingu, jafnrétti, réttlæti og allt hitt sem
talið var. Og það er gott! En vonum
við aðeins að aðrir reynist heiðarleg-
ir, réttlátir, ábyrgir og trausts verðir
eða ætlum við að keppa eftir að lifa
svo sjálf á þessari aðventu og inn í
framtíðina?
Faxafeni 8 108 Reykjavík
Sími: 534 2727 www.alparnir.is
SNJÓBRETTAPAKKAR
SOFTSHELL BUXUR
KERRUPOKAR
NOTAÐ UPP
Í NÝTT
DÚNÚLPUR
M/LOÐKRAGA NORD BLANC
UNDIRFATNAÐUR
Termo Deluxe
TANGIR
YUMA GÖNGUSKÓR SKÍÐAPAKKAR
MEÐ 20% AFSLÆTTI
SNJÓBRETTA- OG
SKÍÐAHJÁLMAR
Pakki 1
TILBOÐ: Kr. 43.188
Bretti 108 og 110
Skór 35 og 37
JR. bindingar
Pakki 2
TILBOÐ: Kr. 59.268
Bretti 125 til 155cm.
Skór 39 til 46
SR. bindingar
Dömu og herra,
Treyja 5.995.-
Buxur 4.995.-
Verð frá: 9.995.- á börn
Verð frá 12.995.- S.M.L
Vatnsheldar
Dömur frá kr. 24.995
Herra frá kr. 29.995.-
Kerrupoki/svefnpoki. 100cm
Fyrir þau allra minnstu
-8 til +5
Verð: 5.995.-
Hinar sívinsælu
Softshell buxurnar komnar
aftur fyrir gönguferðina,
skíðaferðina og
allt í öllu...
Vatnsheldar í strets
Verð: 19.995.-
Fjölnota tangir
í tösku, flott jólagjöf
Stór: 4.995.-
Lítil: 3.995.-
Tökum notuð heilleg
Carving skíði í stærðum 60 til 170
upp í bestu skíði fyrir þig
GÓÐAR JÓLAGJAFIR
Göngustafapar:
3-skiptur með hertum oddi
Svamphandfangi
Verð 9.995.-
Jólatilboð
7.995.-
Hitabrúsar í öllum
stærðum 0,5. 0,7. 1L
GÖNGUSTAFIR OFL.
Vibram botn og gúmmíkantur
Simpatex vatnsvörn
Stærð 38 til 44
Verð: 34.995.-
Jólatilboð 29.995.-
Göngusokkar frá 1.995.-