Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 48
17. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● sængur og sængurver
Ein stærsta rúmaverslun lands-
ins var opnuð í Holtagörðum
fyrir nokkru. Þar fást meðal
annars koddar, sængur og
rúmfatnaður í góðu úrvali, auk
þess sem nokkuð er um vörur
sem hafa verið sjaldséðar á
íslenskum markaði.
Rúmaverslunin Dorma var nýver-
ið opnuð í Holtagörðum. Þar starf-
ar Garðar Haukur Guðmundsson,
sem hefur verið viðloðandi geir-
ann í rétt rúman áratug og segir
úrvalið í sængum, koddum og rúm-
fatnaði aldrei hafa verið meira en
nú. Til marks um það bjóðast við-
skiptavinum Dorma vörur sem
hafi hingað til verið illfáanlegar
hérlendis.
„Sem dæmi um það get ég
nefnt að utan venjulegra sængur-
stærða og barnastærða erum við
með lengri einbreiðar sængur en
gengur og gerist, eða 140x220, og
svo tvíbreiðar sængur í stærð-
inni 2x220. Fólk getur svo fengið
utan um sængurnar sængurfatnað
sem fæst hér í góðu úrvali. Í þess-
um töluðu orðum erum við einmitt
að taka upp úr 40 feta gámi fullum
af rúmfatnaði gerðum úr bómull-
arsatíni í öllum regnbogans litum,
þar með talið rauðu, gráu, svörtu
og klassískt hvítu. Þetta er þriðja
sendingin á jafnmörgum mánuðum
sem sýnir hversu mikil eftirspurn
er eftir vörunni, en þess má geta
að sænguverasett kosta frá 2.900
krónum sem eru ótrúleg verð á
gæðavörum.
Ekki er nóg með að verslun-
in státi af sjaldséðum vörum hér-
lendis heldur gefst viðskiptavinum
kostur á að kaupa íslenska hönnun
sem eingöngu er seld í Dorma.
Sængurnar og koddarnir í verslun-
inni eru þannig seldir undir merkj-
um Dorma, hannaðir í samráði við
íslenska sérfræðinga og fylltir með
síberískum gæsadúni sem keyptur
er í Danmörku. „Hvort tveggja er
saumað sérstaklega með þvotta-
vél og þurrkara í huga, áklæðið er
því úr 100 prósent bómull og mjög
sterkt. Þetta er þéttofið og þar af
leiðandi með glansandi áferð og
mjúkt,“ útskýrir Garðar og bætir
við að sængurnar séu hólfaðar
niður.
Inntur eftir því hvort frekari
nýjunga sé að vænta á næstunni,
segir Garðar stefnt að því að bæta
frekar við framboðið í versluninni
í þeim tilgangi að koma til móts við
ólíkar þarfir neytenda ásamt því
að skapa fyrirtækinu sérstöðu á ís-
lenskum markaði. „Áhersla er svo
auðvitað lögð á að bjóða upp á gæði
á góðu verði.“
Uppfyllum ólíkar þarfir
„Þetta er bara mjög skemmtilegur og lifandi bransi og maður kynnist nýju og áhugaverðu fólki á hverjum degi,“ segir Garðar,
starfsmaður hjá Dormu, en hann hefur verið viðloðandi þennan geira í rétt rúman áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
●SÆNGURDAGURINN MIKLI 29. febrúar 2008 var dagsetningin
á fyrsta sængurdeginum í Bretlandi, eða 1st National Duvet Day upp á
engilsaxnesku. Viðburðurinn var meðal annars auglýstur á Facebook af vef-
síðunni duvetday.org, og gekk út á að hvetja fólk til að taka sér frí úr vinnu
eða skóla í einn dag og minnka þannig kolefnislosun út í umhverfið. Sam-
kvæmt upplýsingum á vefsíðunni tóku um 80.000 manns þátt í framtak-
inu. Aukinheldur er fólk hvatt til að taka sér einn slíkan frídag á fjögurra ára
fresti, sem þýðir að næsti sængurdagur verður árið 2012.
Hugtakið sængurdagur á rætur sínar að rekja til breska almannatengsla-
fyrirtækisins August One Communications. Árið 1997 hóf fyrirtækið að
bjóða starfsfólki sínu upp á að taka sér einn skilyrðislausan frídag á ári.
„Við byrjuðum að bjóða upp á sængurdaga vegna þess að við gerðum
okkur grein fyrir að allir upplifa daga þar sem þeir geta ekki hugsað sér að
fara í vinnuna,“ útskýrði Katherine Nicholls, mannauðsstjóri fyrirtækisins á
sínum tíma. „Áður hefði fólk hringt sig inn veikt á slíkum dögum, en það
sem er svo frábært við sængurdagana er að fólk þarf ekki að þykjast eða fá
samviskubit yfir því að taka sér frí.“
Fleiri fyrirtæki munu hafa fylgt fordæminu, en líklega er best að hafa samráð við viðkomandi yfirmann eða
skólayfirvöld áður en fólk tekur sér óundirbúinn sængurdag.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439
● GSM FORTÍÐAR Hvít lök geta haft víðtækara hlutverk en að vera
undirvoð í rúm. Þau geta líka verið notuð til merkjasendinga. Á árum áður,
þegar fjarskipti voru með frumstæðum hætti og engir GSM-símar komn-
ir til sögunnar voru lök stundum notuð sem skilaboðatæki. Ef ná þurfti í
einstakling sem var við vinnu langt frá bæ, en þó í sjónmáli, var stundum
breitt hvítt lak á áberandi stað. Ef bæjarhóll var fyrir hendi var hann kjör-
inn fyrir slík fjarskipti, annars steinn, gluggi eða þekja. Sá sem var úti á
akrinum vissi þá að hann þyrfti að koma heim vegna áríðandi símtals
eða af öðrum ástæðum. Þetta var kallað „að breiða á“.