Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 49

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 49
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2009 3sængur og sængurver ● fréttablaðið ● Fjölskyldufyrirtækið RB rúm stendur við Dalshraun í Hafn- arfirði. Þar fást falleg rúmföt á allar tegundir rekkjuvoða og rúmin sjálf líka. Húsgagnabólstrun Ragnars Björnssonar ehf. stendur á göml- um grunni í Hafnarfirði en fyr- irtækið hefur búið til rúm fyrir Íslendinga í sextíu og sex ár. Fyrirtækið hefur frá upphafi haft að markmiði að uppfylla þarf- ir viðskiptavina sinna ásamt því að vera í fararbroddi við þróun og framleiðslu springdýna. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og nú er það dóttir Ragnars, Birna, sem rekur fyrirtækið. „Ég byrjaði á kústinum og hef unnið mig upp, er lærður bólstrari og hef verið hérna síðan 1981,“ segir Birna og er auðheyrt að hún er stolt af arf- leifð sinni. Sem er ástæða til því fyrirtækið hefur um árin selt þús- undir rúma og dýna til ánægðra viðskiptavina um land allt. Í dag hefur fyrirtækið fært út kvíarnar og selur nú flest það sem þarf í og umhverfis rúmin sjálf líka. Birna segist hafa fundið fyrir því að það sé í tísku í dag að velja íslenskt og þar komi RB rúm sterk inn. Og hún fagnar því enda hefur hagur verslunarinnar verið samofinn fjölskyldu hennar í fjömörg ár og ekki má gleyma því að með hverju rúmi skapast störf á Íslandi. „Við getum hannað rúmin hvern- ig sem fólk vill, gert það sem fólk biður okkur um,“ segir Birna og bætir því við að allir fylgihlut- ir með rúmum, kistur, gaflar og þess háttar sem er til í búðinni séu búnir til hjá fyrirtækinu. „Nema sængurverin og rúmfötin sem eru til í miklu úrvali hjá okkur og við flytjum inn. Þó er silkidamaskið saumað hérlendis og það er hægt að fá í öllum stærðum og gerðum.“ Þegar ekki vinnst tími til að búa um rúmið er rúmfatakista mikið þarfaþing og aðspurð segir Birna að þær séu mjög vinsælar. „Svo erum við líka með náttborð og gafla í stíl við þá,“ segir hún. Þá er líka hægt að fá draumapúð- ann sinn saumaðan í þeirri stærð og lögun sem óskað er. „Við erum með allar stærðir af púðum en svo getum við líka búið til það sem fólk vill.“ Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðunni www.rbrum.is. Rúmfatakistur og allar tegundir rekkjuvoða Birna Ragnarsdóttir selur fjölbreytt úrval sængurfata í fjölskyldufyrirtækinu RB rúm. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Púðar geta oft sett punktinn yfir i-ið þegar leitað er eftir heildar- mynd stofu eða svefnherberg- is. Fallegur púði gerir fallega ábreiðu enn betri og lífgar upp á sófasettið. Að sama skapi geta ljótir púðar gert illt verra en þó má oft hafa gaman af þeim, sérstaklega þegar húmorinn er hafður að leiðarljósi eins og hönnuðir þessara púða sem hér fylgja hafa greinilega haft. Hér má sjá púða í formi búks og handleggs fyrir einmana konur sem langar í kærasta til að knúsa, sushi-púðar fyrir þá sem vilja leika við matinn sinn og leggja- púðar fyrir karlmenn sem vilja hvíla höfuðið í skauti einhvers. Svo er það auðvitað hestshausinn úr Godfather-myndunum, en varla getur það verið þægilegt að vakna upp við slíkan ófögnuð á hverjum morgni. - sg Pínlegir púðar „Hizamakura“ eða kjöltupúði kallast þessi stórfurðulegi koddi sem er japönsk uppfinning. NORDICPHOTOS/AFP Hestshausinn úr Godfather-myndinni var þessum púðahönnuði innblástur. Hver þarf kærasta þegar maður á kær- astapúða? Sushi er gott á bragðið en einnig er gott að liggja á því. Hafnarfirði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.