Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 54
17. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● sængur og sængurver
Rúmfatalagerinn heitir ekki
svo út af engu. Þar er lager
af rúmfötum sem alltaf er í
stöðugri endurnýjun. Vala
Karen Guðmundsdóttir er
innkaupastjóri vefnaðarvöru
fyrir allar verslanir Rúmfatalag-
ersins á landinu og veit allt um
nýjungar í heimi sængurfata.
„Það er alltaf eitthvað nýtt og
skemmtilegt að gerast í sængur-
fatadeildinni. Stór mynstur í rúm-
fatnaði hafa verið áberandi á sýn-
ingum erlendis og eru að skila sér
hingað, röndótt hefur gengið mjög
vel líka,“ segir Vala Karen og held-
ur áfram. „Meirihlutinn af okkar
rúmfatnaði kemur frá Jysk í Dan-
mörku, þessu stóra danska batt-
eríi sem við erum hluti af og það
verður að segjast eins og er að
það er ansi duglegt að koma með
ný mynstur og nýja liti. Jysk-búð-
irnar í heiminum skipta hundruð-
um, fyrirtækið framleiðir sæng-
urföt í þær allar og því getum við
boðið svona gott verð eins og raun
ber vitni.“
Rúmfatalagerinn kaupir einn-
ig inn sængurverasett beint frá
Kína sem saumuð eru eingöngu
fyrir íslenskan markað að sögn
Völu Karenar. „Settin okkar eru úr
bómullarsatíni og damaski og eru
gæðaleg og vönduð,“ segir hún og
nefnir að meðal annars séu tvö sett
seld saman í nokkurs konar möppu
sem henti vel sem brúðargjöf eða
jólagjöf handa pari. „Þetta eru
damasksett, virkilega fín og þau
eru til í hvítu og kremuðu, þessu
klassíska sem alltaf gengur.“
Vala Karen segist þora að full-
yrða að engin verslun á Íslandi sé
með annað eins úrval af sængur-
verasettum og Rúmfatalagerinn.
„Hér er hægt að velja alveg frá því
ódýrasta og upp í dýr og fín rúm-
föt. Ég held að fólk þekki þetta.
Því kemur það til okkar þegar það
vantar sængurverasett, hvort sem
er í ódýrari kantinum eða dýrari
og vandaðri.“ Hún bendir á úrval
ungbarnasetta og gleymir ekki að
geta um barna- og unglingaverin
með Hello Kitty, Bangsímoni og
Spiderman, né heldur rúmfatnað-
inn með merkjum ensku fótbolta-
liðanna Manchester og Liverpool.
Vala Karen kveðst hafa verið
handavinnukennari í Álftanesskóla
áður en hún gerðist innkaupastjóri
en eiga þó líka fortíð í Rúmfata-
lagersbúðunum, bæði í Holtagörð-
um og í Hafnarfirði. Spurð hvort
hún hafi ekki orðið yfirgripsmikla
þekkingu á taui og vefnaðarvöru
svarar hún að bragði. „Jú, ég þyk-
ist hafa einhverja þekkingu á þessu
og svo er ég alltaf að læra meira og
meira. Þetta er mjög skemmtilegt
og fjölbreytt starf.“
Ný og skemmtileg mynstur
„Hér er hægt að velja alveg frá því ódýrasta og upp í dýr og fín rúmföt,“ segir Vala Karen innkaupastjóri allrar vefnaðarvöru í
Rúmfatalagernum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANOTN
● VALLI OG POTTER Á E-BAY
Ótrúlegustu hlutir eru til í heiminum,
og næsta víst að þeir fást á vefsvæð-
inu www.e-bay.com. Fréttablaðið gerði
stikkprufu á því hvað er í boði af sæng-
urfötum á þessari heimsfrægu vefsíðu.
Þar var meðal annars hægt að kaupa
sængurföt frá 1991 með myndum
af Valla, eða Hvar er Valli? Verðið á
sængurfötunum var um 19 doll-
arar. Einnig var hægt að fjárfesta
í gamaldags litríku bútasaums-
sængurveri í frábæru ásigkomu-
lagi á 19,99 dollara. Svo má nefna
Harry Potter-rúmfötin sem þegar
var búið að bjóða 5,95 dollara í
en enn er opið fyrir fleiri boð ef
áhugi er fyrir hendi. Nú er bara
að stökkva til, eða hvað?
● VER MEÐ MILLIVERKI Sængurver með
hekluðum milliverkum hafa löngum þótt eiguleg enda
mikil vinna verið í þau lögð.
Þegar slíkt sængurver er búið til er byrjað á að setja
milliverkið í áður en hliðarsaumar eru saumaðir. Fimm-
tíu sentimetrar eiga að vera niður að milliverki frá efri
brún versins og reikna þarf með tveimur sentimetrum
í innafbrot.
Verið er tekið í sundur með því að klippa svolítið upp
í jaðar efnisins og rífa það að jaðrinum hinum megin og klippa hann sundur.
Milliverkið er fyrst þrætt í og síðan handsaumað í með varpspori frá röngunni.