Fréttablaðið - 17.12.2009, Síða 70
50 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Ari Kristinsson formaður Sambands
íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Ágúst Guðmundsson Forseti BÍL
Ásdís Thoroddsen f.h. Félags sjálf-
stæðra kvikmyndaframleiðenda
Björn Brynjúlfur Björnsson formaður
Íslensku kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar.
Friðrik Þór Friðriksson formaður
Samtaka kvikmyndaleikstjóra
Hjálmtýr Heiðdal formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna
Randver Þorláksson formaður Félags
íslenskra leikara
Á laugardag mun Þjóðfræði-
stofa blása til þjóðfræðiþings,
útgáfuhófs og menningardag-
skrár. Auk þess að miðla af
rannsóknum verður leikin tónlist,
sýndar kvikmyndir og haldið
upp á nýjar útgáfur. Þá munu
höfundar lesa upp úr nýútgefn-
um ritum. Jólaspjallið verður
haldið í Bragganum á Hólmavík
en Café Riis býður upp á létt
jólahlaðborð á vægu verði. Á
dagskrá eru Kristinn Schram, for-
stöðumaður Þjóðfræðistofu, sem
segir frá starfseminni á árinu;
Óli Gneisti Sóleyjarson þjóð-
fræðingur segir frá nýútkominni
bók sinni, Eve Online, sem gefin
er út af Þjóðfræðistofu, Jón Þór
Pétursson þjóðfræðingur segir frá
doktorsrannsókn sinni og rann-
sóknarverkefni Þjóðfræðistofu
um íslenska matarhefð; Katla
Kjartansdóttir, verkefnastjóri á
Þjóðfræðistofu, segir frá sam-
tímasöfnun á leikjum íslenskra
barna; Sigurður Atlason, fram-
kvæmdastjóri Strandagaldurs,
kynnir samstarfsverkefni um
jólaendurminningar Stranda-
manna; Jón Jónsson, menning-
arfulltrúi og þjóðfræðingur og
flytur jólahugvekju. Söngflokk-
urinn Fúmm fúmm fúmm flytur
jólalög og höfundar lesa upp úr
verkum sínum: Vilborg Davíðs-
dóttir les úr Auði og Eiríkur Örn
Nordahl úr Gæsku. Þá verður
sýnd heimildarmyndin Leitin að
Gísla Suurinpojka.
- pbb
Dagskrá í Bragganum á Hólmavíkath. kl. 20 í Friðrikskapellu
við Valsheimilið.
Tónlistarveisla í skammdeginu sem
gleður sálu og hjörtu: Tónlistarhóp-
urinn Mandal: Bára Grímsdóttir,
Chris Foster, Helga Jónsdóttir og
Arnór Hermannsson, halda tón-
leika í kvöld. Lögin eru bæði gömul
við nýjar útsetningar og ný, samin
af Báru og Helgu. Einnig verða flutt
ensk jólalög úr þorpum frá heima-
héraði Chris í Suður-Englandi. Lögin
eru útsett af Mandal á ýmsan hátt,
allt frá einni rödd upp í fjórar radd-
ir og leikið verður á gítar, langspil,
bouzouki og kantele.
MENNING Óli Gneisti kynnir
rannsókn sína á útrásarsögunni
Eve Online.
> Ekki missa af
Kristjana Stefánsdóttir
söngkona heldur tónleika
í kvöld ásamt tríói skipuðu
þeim Kjartani Valdemarssyni
á píanó, Gunnari Hrafnssyni
á bassa og Pétri Grétarssyni á
trommur. Tónleikarnir hefjast í
forsal Borgarleikhússins kl. 22.
Þetta eru árlegir jólatónleikar
kvartettsins sem hafa nú verið
færðir inn í Borgarleikhúsið.
Fullt hefur verið út úr dyrum
undanfarin ár á tónleikum
kvartettsins og mikil jóla-
stemning. Þekktir gestir úr
Borgarleikhúsinu munu taka
lagið með Kristjönu og tríóinu.
Á sunnudag verða jóla-
tónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur í Áskirkju og
þar verða fluttir þrír af
Brandenborgarkonsertum
Bachs, nr. 2., 4., og 5. Á
tónleikunum kveður Rut
Ingólfsdóttir fiðluleikari,
sem leitt hefur allt starf
Kammersveitarinnar frá
upphafi 1974, sveitina og
leikur einleikinn í nr. 5.
Aðrir einleikarar á tónleikunum
eru ekki af verri endanum: Ásgeir
H. Steingrímsson á trompet,
Martial G. Nardeau og Guðrún S.
Birgisdóttir á flautur, en þau leika
á japanskar tréflautur, sem eru
smíðaðar í nútímastillingu og með
klöppum, en hafa mýkri og þýðari
tón en hinar hefðbundnu málm-
flautur. Matthías Birgir Nardeau,
sonur þeirra, leikur á óbó, Una
Sveinbjarnardóttir á fiðlu og Javi-
er Núnes á sembal. Javier Nunes
lauk einleikaraprófi frá Tónlistar-
háskólanum í Den Haag og kemur
fram víða í Evrópu bæði sem ein-
leikari og í barokksveitum. Javier
býr nú og starfar í Palma á Mall-
orca og lék þar á tónleikum með
Skálholtskvartettinum sumar-
ið 2008. Íslensku einleikararnir
eru tónlistaráhugamönnum allir
kunnir fyrir áralangt framlag sitt
til flutnings á tónlist.
þetta er ekki í fyrsta sinn sem
kammersveitin leikur Branden-
borgarkonsertana: Í tilefni af 25
ára afmæli Kammersveitarinn-
ar voru á tvennum jólatónleikum
1998 fluttir allir Brandenborg-
arkonsertar Bachs, sex að tölu.
Jaap Schröder leiddi hljómsveit-
ina og voru konsertarnir teknir
upp til útgáfu. Sú útgáfa Smekk-
leysu, SMC3, hlaut mikið lof bæði
hér á landi og í hinu virta tímariti
Grammophone. Kammersveitin
hlaut Íslensku tónlistarverðlaun-
in fyrir þessa upptöku.
Þetta er 36. árið sem Kamm-
ersveitin efnir til jólatónleika
skömmu fyrir jól. Hefðin frá upp-
hafi hefur verið að leika eingöngu
tónlist frá barokktímanum á þess-
um tónleikum. Þeir hefjast kl. 16.
pbb@frettabladid.is
Brandenborgarkonsertar
fluttir á sunnudaginn
MENNING Kammersveit Reykjavíkur kveður á jólatónleikum sínum í Áskirkju Rut Ingólfsdóttur sem hefur stýrt sveitinni frá upp-
hafi, þjóðhátíðarárið 1974. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Öllum er ljóst að skera þarf niður
útgjöld ríkisins. Það gildir jafnt
um menningarmál sem aðra
málaflokka. Okkur undirrituðum
þykir hins vegar ótækt hve hart
er gengið að kvikmyndagerð-
inni umfram aðrar listgreinar
og raunar umfram aðrar starfs-
greinar þessa lands.
Samkvæmt síðustu fregnum
verður framlag til Kvikmynda-
miðstöðvar lækkað um 140 millj-
ónir frá framlagi síðasta árs, sem
er tæplega fjórðungs lækkun. Sé
hins vegar miðað við samning
þann sem kvikmyndagerðin undir-
ritaði ásamt þremur ráðherrum
við hátíðlega athöfn í Ráðherra-
bústaðnum árið 2006 er lækkunin
rúmur þriðjungur. 140 milljónir
jafngilda tveggja ára framlögum
úr Sjónvarpssjóði. Varla er það
vilji Alþingis að leggja af þær
vinsælu og almennt vel heppn-
uðu þáttaraðir sem framleiddar
eru fyrir atbeina sjóðsins.
Opinbert framlag nemur aldrei
meira en helmingi kostnaðar við
hvert einstakt verkefni. Niður-
skurður um 140 milljónir nemur
því a.m.k. helmingi hærri upp-
hæð til greinarinnar eða a.m.k.
280 milljónum.
Erfitt er að finna þá listgrein
sem leggur jafnmikið til þjóð-
arbúsins og kvikmyndagerð-
in. Rök hafa verið að því leidd
að ríkið fái allt sitt framlag til
baka og vel það. Þau rök virðast
ekki hafa sannfært þá sem ráða
Íslandi nú.
Því skal svo haldið til haga að
verðmætasköpun í kvikmynda-
gerðinni er tvenns konar: í bein-
um tekjum og í menningarauði.
Íslenskar kvikmyndir eru hið
raunverulega þjóðarleikhús –
myndirnar eru teknar upp um
land allt og þær fara auðveldlega
fyrir augu allra, hvar á landinu
sem fólk býr.
Þær hafna gjarnan í sjón-
varpinu, þar sem þær hafa löng-
um verið helsta leikna innlenda
efnið, einkum á stórhátíðum.
Enn fremur eru þær fluttar til
útlanda, sýndar í kvikmyndahús-
um og í sjónvarpi víða um heim.
Kunnugir telja að fátt sé betri
landkynning en íslenskar kvik-
myndir. Þær eru hin óbeina aug-
lýsing sem gagnast betur en bein
sölumennska. Á tímum niður-
lægingar Íslands er meiri þörf á
slíku en nokkru sinni fyrr.
Við skorum á ráðamenn þjóðar-
innar að beita skynsemi og draga
enn úr niðurskurði á framlögum
til Kvikmyndamiðstöðvar.
Opið bréf til ráðamanna:
Kvikmyndahaustið?
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Meiri hamingja
Tal Ben-Shahar
Mannasiðir
Egill “Gillz” Einarsson
Heitar laugar á Íslandi
Jón G. Snæland
Núl núll 9
Þorgrímur Þráinsson
Jólasyrpa 2009
Walt Disney
Svörtuloft
Arnaldur Indriðason
Ef væri ég söngvari
Ragnheiður Gestsdóttir
Vigdís
Páll Valsson
Horfðu á mig
Yrsa Sigurðardóttir
Karlsvagninn
Kristín Marja Baldursdóttir
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
09.12.09 – 15.12.09