Fréttablaðið - 17.12.2009, Qupperneq 72
52 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 17. desember 2009
➜ Tónleikar
20.00 Tónlistarhópurinn Mandal held-
ur jólatónleika í Friðrikskapellu við Vals-
heimilið að Hlíðarenda.
20.00 Gunnar Þórðarson og Svavar
Knútur halda tónleika ásamt strengja-
sveit í Fríkirkjunni í Reykjavík.
20.00 Orgeljól í Lágafellskirkju.
Douglas Brotchie organisti flytur
verk eftir m.a. Bach og D. Zipoli.
Einnig kemur fram á tónleikun-
um Sigrún Jónsdóttir söngkona.
20.30 Snorri Helgason heldur
útgáfutóneika í Þjóðleikhús-
kjallaranum við Hverfisgötu.
Einnig koma fram Ríó tríó og
Sigríður Thorlacius ásamt Heið-
urspiltum. Húsið verður opnað
kl. 20.
20.30 Esther Jökulsdóttir ásamt
karlatríói og hljómsveit flytur lög Mahal-
iu Jackson á tónleikum í Laugarneskirkju
við Kirkjuteig.
20.30 Egill Sæbjörnsson verður með
tónleika í Listasafni Reykjavíkur við
Tryggvagötu. Enginn aðgangseyrir.
22.00 Kristjana Stefánsdóttir og tríó
verða með jólatónleika í Borgarleikhús-
inu við Listabraut.
➜ Opnanir
21.00 Ljóðskáld Nýhils og list-
menn Crymo opna sýningu og
verða með ljóðalestur hjá gallerí
Crymo að Laugarvegi 41a. Allir
velkomnir.
➜ Markaðir
Jólamarkaður og opin vinnustofa
í Hönnunarsafni Íslands að Lyng-
ási 7-9 (efri hæð) í Garðabæ kl.
14-18. Fyrir markaðnum standa
Lúka Art & Design.
Það er mikið að gera hjá
þeim Abba-bræðrum þessa
dagana: bandið verður tekið
inn í Frægðarhöll rokks og
rólsins í Ameríku á Waldorf
Astoria hinn 15. mars en
þá eru 25 tilskilin ár liðin
frá því hljómsveitin átti lag
í fyrsta sæti vestanhafs.
Hljómsveit Benny, BAO,
var tilnefnd í vikunni til
Grammy-verðlauna í Sví-
þjóð sem besta dansbandið
og á miðvikudag var til-
kynnt að söngleikur þeirra,
Kristín frá Dúfulandi,
verði settur á svið öðru
sinni í Sænska leikhúsinu í
Helsinki í ársbyrjun 2012.
Sænska leikhúsið hefur gengið í
gegnum gagngera endurnýjun og
verður söngleikurinn eftir vest-
urfarasögum Vilhelms Moberg
opnunarverkið en fyrsta bindið af
þeirri sögu er einmitt gefið út öðru
sinni í íslenskri þýðingu nú fyrir
jólin. Miðasala til hópa hefst næsta
vor. Verkið var frumflutt í Malmö
1995 og gekk í tvö ár, þar og í
Stokkhólmi. Milljón áhorfendur
sáu sýninguna sem útheimti stóra
hljómsveit og kór. Fyrir sviðsetn-
inguna í Helsinki verður hljóm-
sveit skipuð 25 hljóðfæraleikur-
um og hefur verið stytt en það tók
þrjár og hálfa klukkustund í upp-
haflegu sviðsetningunni. Sænska
leikhúsið hefur tryggt sér sýning-
arréttinn á finnsku, rétt í Eystra-
saltslöndum og Rússlandi. Hafa
samningaviðræður staðið í fimm
ár. Þá er talið að í undirbúningi
sé flutningur á enskri útgáfu í
London en hún var flutt í konsert-
formi í Carnegie Hall í New York
í haust. Mun áætlað að gefa þá
versjón út á diskum á næsta ári.
Var það annar flutningur á verk-
inu vestanhafs en sænska útgáf-
an var flutt í Minnesota þar sem
sögurnar gerast 1997. Hafa Björn
og Benny lagt mikla fjármuni í að
koma verkinu á framfæri í ensku-
mælandi löndum í kjölfarið á
sigurgöngu Mamma Mia, bæði á
sviði og í kvikmynd.
Undirritun samninga við sænska
leikhúsið gaf blaðamönnum tæki-
færi til að tala við þá félaga en þeir
eru ekki mikið fyrir viðtöl. Þeir
hyggjast dvelja í Helsinki meðan
æfingar standa yfir. Anders Eljas
mun stýra hljómsveitinni en hann
hefur unnið með þeim síðan í Ástr-
alíutúrnum 1977, útsetti Chess með
þeim í frumútgáfunni, bæði á disk-
um og í London og í sænsku svið-
setningunni 1997. Lars Rudolfson
sem vann með þeim þá og áður að
frumuppfærslunni af Kristínu mun
leikstýra og Robert Wagner mun
gera leikmynd en hann er virtur
leikmyndahönnuður vestanhafs.
Á blaðamannafundinum við-
urkenndu þeir að enn er rætt um
framhaldsmynd af Mamma Mia.
Þeir segjast aðallega njóta þess að
vera afar, en Benny á fimm barna-
börn og Benny þrjú. Með eftir-
gangsmunum viðurkenna þeir að
alltaf séu ný verkefni í undirbún-
ingi: Björn er að reisa sér hljóð-
ver og einbýlishús á Gotlandi,
en Benny rekur enn sitt stúdíó í
Stokkhólmi. Mamma Mia frels-
aði þá úr fjárhagsþrengingum en
myndin er tekjuhæsta söngva-
mynd í kvikmyndasögunni. „Það
er talað um að gera eitthvað fyrir
börnin,“ segir Benny og tekur í
vörina, segir blaðamaður Helsinki
sanomat í lýsingu á fundinum.
Í janúar verður opnaður Abba-
heimur með 25 sýningarsölum í
Earls Court í London. Þar gefst
gestum kostur á ferð um heim með
áður óbirtu efni frá ferli bandsins,
gestir geta troðið upp með holo-
gröfum af þeim fjórmenningum og
þeim er boðið upp á hljóðblöndun í
margrása upptöku Mikaels Tretow
sem vann með þeim alla tíð. Öll
þátttaka gesta er skráð og aðgengi-
leg á vef til síðari tíma skemmtun-
ar. Þannig að seta þeirra í frægð-
arhöll heimsins mun styrkjast enn
um sinn. pbb@frettabladid.is
ABBA HORFIR TIL FRAMTÍÐAR
Dr. Bergsveinn Birgisson held-
ur fyrirlesturinn „Menning og
metafórur“ á vegum Hugvísinda-
stofnunar, Hugsýnar − félags um
hugræn fræði og tölvunarfræði-
deildar Háskólans í Reykjavík í
dag kl. 16 í stofu 130 í Öskju.
Í fyrirlestrinum verður sjónum
beint að líkingum eða metafórum
og þeirri nýju sýn á líkingar sem
rekja má til hugrænna vísinda
(e. cognitive science). Rætt verð-
ur um skilgreiningu hugtakslík-
inga (conceptual metaphors) og
um hið gagnvirka samband milli
líkinga og menningar almennt.
Greint verður frá því hvernig sýn
hugrænna vísinda á líkingar getur
breytt viðhorfi okkar til þeirra
sem heimilda um mannlega hugs-
un og tilfinningar, og sem sögu-
legra heimilda. Þetta verður að
lokum tekið fyrir í dálítilli rann-
sókn á dróttkvæðri vísu frá um
900 e.Kr.
Bergsveinn Birgisson (f. 1971)
er dr. art í norrænum fræðum
frá Háskólanum í Björgvin og rit-
höfundur. Síðasta skáldsaga hans
heitir Handbók um hugarfar kúa
– skáldfræðisaga. - pbb
Menning og metafóra
MENNING Bergsteinn skoðar hvernig við
notum líkinguna í dag. MYND
M
YN
D
IM
A
G
E FO
R
U
M
TÓNLIST Abba, hinn 9. febrúar
1974 fyrir ríflega 35 árum þegar
augu Evrópu tóku fyrst eftir
bandinu. Með átta plötum
og þremur söngleikjum varð
heimurinn allur heillaður af
popplögum þeirra Björns og
Bennys og er enn.
Smásögur fyrir Ipod-kynslóðina eru nú fáanlegar hjá
breska fyrirtækinu Spoken Ink. Það heldur úti vef-
síðu fyrir þá sem vilja hlaða niður smásögum fyrir
farartæki eins og poddinn, síma og heimatölvur.
Kunnir enskir leikarar lesa. Úrvalið er mikið og hafa
hjónin sem fyrir síðunni standa unnið að safninu í
eitt og hálft ár. Smásöguformið hentar vel, segja þau,
fyrir okkar tíma þar sem áheyrilegt efni verður að
vera stutt og hnitmiðað og henta fyrir skamma hlust-
un. Hafa lifandi höfundar reynst tiltækinu hliðhollir
og efni liðinna skálda hefur nýst vel, einkum það sem
komið er úr höfundarrétti. Áhugasamir geta sótt á
síðu þeirra: www.spokenink.co.uk. - pbb
Smásögur fyrir Ipodinn
BÓKMENNTIR
Smásögum dreift
af vefsíðu fyrir
upptekinn nútíma-
mann, til dæmis
eftir Ian McEwan.
„Stórvirki í íslenskum þýðinga-
bókmenntum sem mun
lengi lifa.“
JÓN VIÐAR JÓNSSON / DV
„… þau verða ekki
mikið stærri tíðindin
á íslenskum bókamarkaði
á þessu ári.“
EIRÍKUR GUÐMUNDSSON / VÍÐSJÁ