Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 74

Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 74
54 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR Íslendingar þurfa að horfast í augu við sig sjálfa. Þeir voru ekki neyddir til að dansa með í góðærinu. Við erum það sem við hugsum og við þurfum að hugsa málin upp á nýtt. Njörður P. Njarðvík gaf nýlega út ljóðabókina Hlustaðu á ljósið og segir hrunið sem slíkt afskaplega óljóðrænt. Enda kemur það ekki beint við sögu í bókinni, en þar er hvatt til uppbyggingar og sjálfsskoðunar. Samlíðunar og heiðarleika. Í Hlustaðu á ljósið má lesa mynd- ir úr náttúrunni, hugleiðingar um eilífðina og verund málleysingj- anna. Þar eru ljóð ort á Þræla- strönd Afríku jafnt sem Vest- fjörðum. Höfundur lítur inn á við og hvetur lesanda til að gera slíkt hið sama, að leita þess sem máli skiptir. Njörður lýsir bók sinni þannig að hún sé niðurstaða þess sem honum þykir mikilverðast, þar sem dregin er saman staða mannsins í náttúru og mannlegri tilveru. „Í fyrsta hluta eru Sumarljóð við sjóinn, um náttúru og dýr, einkum fugla, en þar er engin manneskja. Síðasti flokkurinn kallast á við þann fyrsta og fjallar um vatnið. Eðli þess og hvað þessi undirstaða alls á jörðinni gerir, en Þales, upphafsmaður grískrar heimspeki, leit svo á að vatn væri grundvöllur alls,“ segir Njörður. Hann telur að maðurinn geti ekki þrifist án tengsla við nátt- úruheiminn. Eðli mannsins fylgi náttúrunni. „Skelfilegasti staður sem ég hef komið til er New York. Þar sem maðurinn hefur tekið sig út úr náttúrunni og umkringt sig með dauða. Malbik og steinsteypa. Hvernig á maðurinn að geta þrif- ist í malbiki og steinsteypu? Við erum hluti lífskeðjunnar, eins og taóisminn segir, við erum hluti af lífsorkunni, þessum skapandi mætti sem streymir um alheim- inn. Farfuglar fljúga ekki af því þá langi til þess. Það er bara þeirra eðli,“ segir hann. Séð í gegnum fátæktina En í bókinni eru einnig ljóð frá Tógó á vesturströnd Afríku, þar sem Njörður hefur verið með annan fótinn síðustu ár. „Þegar við síkvartandi Íslend- ingar förum suður til Afríku þá veltir maður því fyrir sér hvort við höfum misst sjónar á lífinu. Fyrst sér maður bara eymd og fátækt, en síðan sér maður í gegn- um það og inn í sjálft fólkið. Þetta fátæka fólk býr yfir mikilli reisn. Ég held ég hafi tvisvar séð mann í skítugum fötum í Tógó. Fólkið þar er hreint, ber sig vel, það brosir og er gestrisið og gott fólk, sem illa hefur verið farið með,“ segir höfundur. Njörður hefur verið virkur í góðgerðarsamtökunum Spes og því kunnugur á Tógó. Spurður nánar um staðinn og stjórnarfar á Þrælaströndinni, segir hann að á þrettán árum hafi hann hitt fimm forsætisráðherra þar úti. „Enginn þeirra hefur skipað sig seðlabankastjóra.“ Horfumst í augu við okkur Njörður hefur skrifað á þriðja tug bóka, sem margar hverjar hafa verið þýddar á erlend mál. Frá mörgum nýju ljóðanna stafar friður og ró, sem fer ekki alveg saman við það sem hefur sést af Nirði upp á síðkastið. Hann hefur til dæmis gengið fram og heimtað að hér verði stofnað nýtt lýðveldi. Hann skýrir þetta misræmi með því að flest ljóðin hafi verið skrif- uð fyrir bankahrunið. En mörg þeirra passa við nýja tíma. Í þriðja hluta bókarinnar, Þú hittir sjálfan þig fyrir, má til dæmis finna sígildar vangaveltur tengd- ar sjálfsskoðun ein- staklingsins. „Ef maður fer að hugsa almennilega um ástandið þá er þetta hrun afleið- ing af okkar eigin hugsunargangi. Búdda segir að við séum það sem við hugs- um. Allt sem við erum sprett- ur af hugsun- um okkar, og með hugsun- um sköpum við heiminn. Það sem ger- ist hjá okkur kemur innan frá. Við þurfum að horfast í augu við okkur sjálf og hætta að vera ginningarfífl. Það var enginn sem neyddi okkur til að gera það sem við gerðum. Við dönsuðum með eins og fábján- ar. Hugsunarlaust,“ segir Njörður og rifjar upp Spaugstofuna, þegar hún fjallaði um dótistana. „Ef við höldum að tilgangur lífsins sé að safna í kringum okkur drasli e ð a a ð tilgangur inn sé fótbolti, til hvers erum við þá að lifa? Samkennd það sem öllu skiptir Njörður kveður tilganginn fel- ast í samlíðun, frekar en sókn eftir vindi. „Dalai Lama segir að það sé ekki nauð- synlegt að iðka trú. Trúariðkun er engin trygging fyrir góðri manneskju, en það sem er alveg nauðsyn- legt er samkennd,“ segir hann. Samkennd og virðing. „Allt of marga í okkar fámennu þjóð skortir virðingu fyrir öðrum og sjálfum sér. Á þjóðfundinum um daginn var talað um heiðar- leika en heiðarleiki án sjálfsvirð- ingar er ómögulegur.“ Án þessa sé útséð með árangur af lýðræði og samfélagi. Gott dæmi séu dónalegir þingmenn sem gjamma í sífellu. „Íslendingar kunna ekki að ræða saman. Það er eins og allar samræður eigi að vera hanaat. Og hver er árangurinn af hanaati?“ Niðurstaðan Það getur enginn verið sáttur við sjálfan sig nema búa að innri friði, segir Njörður. Allt kemur innan frá, allt byrjar þar. „En við erum svo grunnhyggin að við höldum að við getum leyst andleg vandamál með ytri aðgerð- um. Við læknum ekki þunglyndi með plástri. Þegar fjörutíu pró- sent af umferðarslysum eru vímu- slys, sem aldrei eru skrásett sem slík, þá ætla menn að fara að leysa það með því að tvöfalda veg!“ Hann segir í lokin að Íslending- ar eigi að stofna nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá, byrja með autt blað. Maður í brunarústum byggi sér nýtt hús. „Við höfum beðið ósigur fyrir okkur sjálfum. Ef maður missir vald á lífi sínu hvað gerir maður þá? Maður játar vanmátt sinn og byrjar upp á nýtt.“ Hrunið kom að innan NJÖRÐUR PÉTURSSON NJARÐVÍK Mundar hér nýútkomna bók sína, Hlustaðu á ljósið, en svo vill til að myndin á veggnum er einmitt sú sem prýðir kápu bókarinnar. Verkið heitir Jökull og er eftir Guðmund Ármann Sigurjónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tveir stubbar skima fram úr skálmunum Hann hefur útbúið sér ofurlítinn fleka og ýtir sér áfram á hnúunum Gangstéttin er sæmilega greiðfær en rauð mold Afríku erfiðari Ég held hún sé úr blóði segir hann og brosir Hann biður ekki um neitt en bíður þarna á gatnamótunum á hverjum morgni Þannig urðum við málvinir Mig munar lítið um að lauma að honum litlum seðli - eins konar aðgöngumiða að afsökun ÚR SUMARLJÓÐ- UM VIÐ SJÓINN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.