Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 76

Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 76
56 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Tónlistarmennirnir Danger Mouse og James Mercer úr indípoppbandinu The Shins leiða saman hesta sína og gera saman plötuna Broken Bells. Platan á að koma út 8. mars næstkomandi en fyrsta lagið sem heyrist verður sett á heima- síðuna Brokenbells.com á mánudaginn, „The High Road“. Hugmyndin kviknaði fyrir fimm árum þegar kapparnir hittust baksviðs á Hróars- kelduhátíðinni. Félagarnir segja að músíkin sé ólík öllu sem þeir hafi áður gert, þetta sé melódísk tónlist en mjög tilraunakennd. Allt er handspilað á plötunni og allar tölvur og slík tól fjarverandi. Þeir kalla Broken Bells-dæmið tveggja manna hljómsveit og gera allt sjálfir á plötunni. Kappar í Broken Bells TILRAUNAKENNT Broken Bells. Nú hefur tímaritið Rolling Stone fylgt eftir lista sínum yfir bestu plötur áratugarins með lista yfir 100 bestu lögin. Ekkert íslenskt lag er á þessum lista en eins og kunnugt er voru þrjár íslensk- ar plötur á listanum yfir bestu plöturnar. Það er alls kyns vin- sældapopp og rokkslagarar sem spekingar Rolling Stone velja á listann, en besta lagið er Crazy með Gnarls Barkley. Í öðru sæti er Jay-Z með 99 Problems og Beyoncé er með Crazy in Love í þriðja sæti. Síðan kemur Out- kast með Hey Ya!, M.I.A. með Paper Planes, The White Stripes með Seven Nation Army, Yeah Yeah Yeahs með Maps og Amy Winehouse með Rehab. Jálkarnir í U2 ná níunda sæti með Beauti- ful Day og Eminem er í tíunda sæti með Stan. Crazy er besta lagið GNARLS BARKLEY Rolling Stone finnst Crazy besta lag áratugarins. Þó að ég hafi engar opinberar tölur séð um það ennþá sýnist mér að fjöldi útgefinna platna á Íslandi sé svipaður í ár og undanfarin ár og það þrátt fyrir kreppuna og margumræddan samdrátt í sölu á tónlist í heiminum. Það verður að teljast nokkuð merkilegt þó að það stefni í að seld eintök verði eitthvað færri í ár en í fyrra. Það sem vekur ekki síður athygli er að það virðast vera kynslóða- skipti í plötuútgáfunni. Undanfarin ár hafa Sena, Smekkleysa, Geimsteinn, Zonet og 12 Tónar verið umsvifamestu útgáfurnar, en í ár er landslagið gjörbreytt. Sena er að sönnu enn stærst, en titlum hjá henni hefur fækkað eitthvað og stór hluti af heildinni eru safnplötur og endurútgáfur. Smekkleysa er enn sterk í klassíkinni og gefur út listamenn eins og Björk, Sigurrós og Gus Gus, en að öðru leyti hefur hún stigið til baka. 12 Tónar, Zonet og Geimsteinn hafa svo allar dregið verulega saman seglin. Það eru hins vegar nokkrar nýjar og nýlegar útgáfur sem koma sterkar inn á árinu og bera hitann og þungann af nýsköpun á markaðn- um. Borgin kemur sterk inn á sínu fyrsta starfsári með níu plötur þar á meðal titla eins og Hjálma og Hjaltalín. Kimi og undirmerkið Brak eru samtals með fjórtán plötur þar á meðal Morðingjana og Kimono, Record Records eru með fjóra mjög sterka titla þar á meðal Sykur og Bloodgroup, Kölski er með þrjár, t.d. Diktu, jafnmargar og Paradísar- borgarplötur sem gefa m.a. út fyrstu plötu Deathmetal Supersquad. Ekki má gleyma Dimmu sem hefur verið til í allmörg ár og er orðin aðalútgáfan í djassinum og er með nokkrar mjög flottar útgáfur í ár, t.d. með Árna Heiðari Karlssyni og Sigurði Flosasyni. Og svo eru það minni útgáfur og allir einyrkjarnir og þeir sem eingöngu gefa út staf- rænt, en á Gogoyoko er t.d. töluvert af íslenskri tónlist sem ekki er komin í fast form. Góðu fréttirnar eru að það er ekki bara fjöldinn sem er svipaður – gæðin hafa heldur ekki minnkað. Kynslóðaskipti í tónlistarútgáfu BLOODGROUP Ein þeirra sveita sem eru á mála hjá Record Records. > Í SPILARANUM Elíza Newman - Pie in the Sky Minningartónleikar um Rúnar Júlíusson 2. maí 2009 Bjarni Hall - The Long Way Home Steve Sampling - Milljón mismunandi manns Kimono - Easy Music for Difficult People ELÍZA NEWMAN KIMONO > Plata vikunnar Dikta - Get It Together ★★★ Fín plata frá Diktu en nær ekki að halda athygli allan tímann. Rödd Hauks Heiðars er eftir- minnileg í ballöðunum. Davíð Berndsen hefur gefið út sólódisk undir listamannsnafninu Berndsen, Lover in the dark. Þar má finna hressandi hljóð- gervlavætt eitíspopp. Þó að diskurinn sé skráður á Berndsen á vinur Davíðs, Sveinbjörn Thorarensen (Hermigervill), stóran hlut í disknum og spilar á alla hljóðgervlana á honum. „Við kynntumst úti í Hollandi þegar við vorum báðir í S.A.E. skólanum (Sound Audio Engineering),“ segir Davíð, sem vinnur nú sem hljóðmaður á RÚV. „Við þekktumst ágætlega en urðum ekki bestu vinir fyrr en ég spurði hann hvort hann þekkti Blade Runner sándtrakkið eftir Vangelis. Þá sagði hann bara: Það er uppáhaldsplatan mín! Þegar við kom- umst að því að mömmur okkar hétu báðar Eydís small þetta svo allt endanlega saman!“ Aðalkallinn sá um þetta Davíð og Sveinbjörn deila gríðarlegum áhuga á tón- list níunda áratugarins. „Hann kynnti mig fyrir heimi hljóðgervlanna. Ég átti alltaf bara eitthvað drasl og spilaði eiginlega meira á gítar. Þegar ég var kominn með synta fórum við að vinna þetta saman. En þegar platan var tilbúin kom í ljós að hann spilaði á alla syntana, enda lætur maður náttúrlega aðalkallinn bara sjá um þetta. Hann er svoddan herforingi og vill hafa stjórn á þessu.“ Sveinbjörn er nú fluttur til Belgíu og reynir að meika það sem tónlistarmaður, en hann hefur verið stórtækur á íslensku senunni í ár. Auk þess að spila á plötu Berndsen gaf hann út í sumar hina frábæru plötu Hermigervill leikur vinsæl íslensk lög. En hvað er það við eitís-tónlistina sem er svona æðis- legt? „Ég er náttúrlega fæddur 1985 og pabbi hlustaði svo mikið á svona músík að það sogaðist inn. Þegar ég byrjaði að fikta í syntum þá mundi maður eftir öllum þessum sándum. OMD eru í miklu uppáhaldi. Ég er nýlega búinn að kynnast þýska bandinu Twins, sem var með smellinn Face to Face. Ég hlusta mikið á Ultravox, Falco, Human League og bara allt þetta dót. Ég þyrfti eiginlega að fara að hlusta á einhverja aðra músík því ég er búinn að vera með þetta á repeat í tvö ár meðan ég hef verið að gera plötuna!“ Eðlilega er Davíð vel að sér í þróun hljóðgervla og segir að þetta fari allt í hringi. Það sem er svalt í dag er hallærislegt á morgun. „Núna er fólk að nota synta í allt og það er mikil eftirspurn í gömlu synt- unum frá því um 1980. Þeir hafa hækkað rosalega á Ebay. Ég á svo sem engar rosalegar græjur og ekk- ert af því sem ég á kostaði meira en hundrað þúsund kall. Draumurinn er Roland Jupiter 8.“ Ekki áhugi fyrir að vera umdeildur Berndsen hefur farið ótroðnar slóðir við að vekja athygli á sér. „Tölvuleikjamyndband“ við lagið Lover in the dark hefur vakið lukku, en í sumar sló myndband við lagið Supertime í gegn, og það vakti deilur fyrir að vera blóðugt og sýna bílslys í áður óséðu ljósi. „Ég hef nú engan áhuga á að gera eitt- hvað álíka aftur, enda hef ég engan áhuga á að vera umdeildur,“ segir Davíð. „En það er æðislegt hvað þetta myndband hefur gengið vel. Það hefur spreð- ast út um allar trissur eins og vírus á netinu. Ég er búinn að fá hvílíkt mikið af aðdáendabréfum frá ólíklegustu stöðum. Það er svo fyndið hvaðan þessi bréf koma, til dæmis mjög mikið frá Brasilíu, Pól- landi og Litháen. Ég er svo næs að ég er stundum heilu dagana að svara. Strákarnir sem gerðu mynd- bandið – ungir strákar hjá fyrirtæki sem heitir Draft – eru byrjaðir að plotta næsta myndband við lagið Young Boy og það verður nú eitthvað. Fólk er að spyrja mig: Hvað, átt þú bara milljónir til að gera myndbönd?, en ég á náttúrlega ekki krónu. Þetta er allt gert með lágmarks fjármagni af strákum sem þurfa að sanna sig til að koma sér áfram í þessum bransa.“ Davíð hefur sett saman hljómsveit. „Í staðinn fyrir að hafa tölvu og ýta á „play“ vildi ég hafa band og ekkert „playback“. Það er auðvitað miklu meiri vinna. Bandið byrjaði að æfa fyrir þremur mán- uðum svo við erum að smella. Ég er þegar byrjað- ur að plotta næstu plötu og ég held að það verði auðveldara að semja hana með hljómsveit.“ Hljómsveitin Berndsen spilar á Jól Jólsson kvöldinu á Hótel Íslandi annað kvöld en Berndsen stefnir á útgáfutónleika 23. janúar. „Þá verð ég 25 ára og ég bókaði Sjallann á Akureyri að því tilefni. Mér fannst það snilld því ég er fæddur á Akureyri. Eigandinn var mjög hress fyrir þessu. Ég lofaði honum að það yrði troðið út úr dyrum!“ Dr. Gunni Berndsen hefur engan áhuga á að vera umdeildur FÆR AÐDÁENDABRÉF FRÁ FRAMANDI LÖNDUM Tónlist Davíðs Berndsen hefur farið víða í kjölfar dreifingar á myndböndum hans. Nú er hann kominn með plötu, fulla af glimrandi góðu eitís-poppi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.