Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 78
58 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Terminator (1984)
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger og Linda Hamilton
Kostnaður: 6,4 milljónir dala
Aliens (1986)
Aðalhlutverk: Sigourney Weaver og Michael Biehn
Kostnaður: 18,5 milljónir dala
The Abyss (1989)
Aðalhlutverk: Ed Harris og Mary Elizabeth Mastrantonio
Kostnaður: 69,5 milljónir dala
Terminator 2 (1991)
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger og Edward Furlong
Kostnaður: 102 milljónir dala
True Lies (1994)
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger og Jamie Lee
Curtis
Kostnaður: 110 milljónir dala
Titanic (1997)
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio og Kate Winslet
Kostnaður: 200 milljónir dala
HELSTU KVIKMYNDIR CAMERONS
> VÍSAR BILBO Á DYR
Tobey Maguire hefur vísað
því á bug að hann muni
leika Bilbo Baggins í
Hobbitanum, forleikn-
um að Hringadrottins-
sögu sem Guillermo del
Toro leikstýrir og Peter
Jackson framleiðir. Hann
ku vera upptekinn við að
leika Peter Parker, betur
þekktan sem Spiderman.
Fáheyrt er að beðið sé eftir íslenskri bíó-
mynd með jafn mikilli eftirvæntingu
og beðið er eftir Bjarnfreðarsyni.
Myndin verður forsýnd um helgina í
Sambíóunum og verður miðasala á
sýningarnar þar. Myndin tekur upp
þráðinn þar sem Fangavaktin skildi
við hana eða þegar Georg losnar úr
fangelsi og reynir að hefja nýtt líf.
Jafnframt verður brugðið upp svip-
myndum af æsku Georgs sem var í
meira lagi undarleg og stjórnað af
baráttukonunni Bjarnfreði.
Aðstandendur Bjarnfreðarsonar
hafa verið duglegir við að beita ýmsum
óhefðbundnum meðulum í kynningu
á myndinni. Samskiptasíðan Facebook
hefur verið notuð óspart og á myndin
nú fjórtán þúsund aðdáendur. Þeir bíða
væntanlega allir spenntir eftir því að
berja myndina augum. Þá mun Pétur
Jóhann Sigfússon bregða sér í gervi
Ólafs Ragnars og stjórna morgunþætti
á FM 957 á föstudaginn. Ástæðan er
víst sú að Ólafur Ragnar er ráðinn á
útvarpsstöðina sem kynnir í myndinni
um Bjarnfreðarson. Myndin verður síðan
frumsýnd formlega hinn 26. desember
en í aðalhlutverkum eru sem fyrr
áðurnefndur Pétur, Jón Gnarr og Jör-
undur Ragnarsson. Leikstjóri er Ragnar
Bragason en hann hefur gefið það út,
formlega, að þetta verði síðasti naglinn í
líkkistu þessa fyrirbæris.
Sambíóin forsýna aðra mynd um helg-
ina. Það er The Princess and the Frog
og er teiknimynd frá Disney-risanum.
Myndin markar nokkur tímamót því
þetta er fyrsta myndin í ansi langan
tíma þar sem notast er við gömlu teikni-
myndatæknina en ekki tölvutækin eins
og hátturinn hefur verið á undanfarin ár.
Það virðist hafa skilað sér því myndin er
tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna.
- fgg
Styttist í Bjarnfreðarson
KÍKIR Í BÍÓ Bjarnfreðarson verður forsýnd í
Sambíóunum um helgina og þá verður loksins
bundinn endahnútur á sögu Vaktar-þríeykisins.
James Cameron, leikstjóri Avatar,
var sniðugur þegar hann taldi Sig-
ourney Weaver á að leika dr. Grace
Augustine í myndinni. Dr. Augustine
er sú sem hannar Avatar-líkamana
sem gerir mönnunum kleift að rann-
saka hina forboðnu plánetu Pandora
og komast í kynni Na‘vi-þjóðflokk-
inn. Í huga aðdáenda svokallaðra
sci-fi-mynda er Sigourney Weaver
gyðja og Ellen Ripley og barátta
hennar við geimverurnar á hinni
óþekktu plánetu í Alien-mynda-
flokknum mun lifa um ókomna tíð.
Að minnsta kosti í þessum geira. Í
fjölmiðlum þar vestra hafa áhang-
endur Alien-myndanna fagnað því
ákaft að loksins skuli Sigourney fá
alvöruhlutverk, miðaldra vísinda-
menn þurfi nefnilega ekki alltaf að
vera karlar.
Endurkomu Sigourney hefur
verið fagnað af kvikmyndaaðdá-
endum um allan heim. Enda hefur
þessi magnaða leikkona haft fremur
hægt um sig og smám saman verið
að hverfa á vit sjónvarpsþátta. Enda
eru ekkert mörg kvikmyndahand-
rit í Hollywood um þessar mundir
sem eru klæðskerasniðin fyrir konu
sem er nýorðin sextug. Síðasta „stór-
mynd“ sem Sigourney lék í var ein-
mitt Alien: Resurrection en það er
fjórða og síðasta myndin í þessum
magnaða bálki. Fram að því hafði
Sigourney haft úr flottum verkefn-
um að velja en því miður er æsku-
dýrkunin allsráðandi í kvikmynda-
borginni Hollywood.
Sigourney virðist hafa þá ásýnd
og útgeislun að hún leikur yfirleitt
konur sem éta karla í morgunmat.
Hún var til að mynda tilnefnd fyrir
leik sinn í kvikmyndinni Working
Girl þar sem hún þrælaði Melanie
Griffith út. Sama ár, 1989, var hún
tilnefnd fyrir hlutverk sem var
svolítið ólíkt hennar helstu persón-
um, hún lék Dian Fossey í Michael
Apted-kvikmyndinni Gorillaz in the
Mist en gengið var fram hjá henni í
bæði skiptin.
Sigourney snýr aftur
FÆR GÓÐA
DÓMA
Sigourney Weaver hefur
fengið góða dóma
fyrir leik sinn í Avatar
og það er mörgum
gleðiefni að þetta
hörkutól skuli loks
fá almennilegt
hlutverk eftir að hafa
nánast legið í dvala
frá því Ellen Ripley
var og hét.
Sam Worthington, sem leikur
Jake Sully í Avatar, gæti hugsan-
lega orðið næsta stórstjarna Holly-
wood ef marka má árlegan lista
Forbes. Bandaríska viðskiptatíma-
ritið birti á dögunum lista yfir þá
tíu leikara sem setja munu mark
sitt á árið 2010 og er Worthington
á honum.
Ein af stjörnum 2010
WORTHINGTON
Peningamönnum í Holly-
wood rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds þegar
þeir heyra James Cameron
nefndan á nafn. Kannski er
það engin furða, því Camer-
on hikar ekki við að reyna
að breyta kvikmyndasög-
unni einn síns liðs.
Nýjasta kvikmynd James Camer-
on, Avatar, hefur framkallað svip-
aða spennu, ef ekki meiri, og þegar
fyrsta Hringadróttins-kvikmyndin
var frumsýnd. Og voru kvikmynda-
áhugamenn þá eins og sjö ára börn
klukkan hálfsex á aðfangadags-
kvöldi. Myndin gerist á plánet-
unni Pandora árið 2154 og segir
frá leitar flokki sem hyggst finna
auðlindir plánetunnar og rannsaka
hvort hægt sé að nýta þær í þágu
jarðarbúa. Andrúmsloftið á Pand-
ora er einstakt, dýralífið engu líkt
og þar ræður ríkjum þjóðflokk-
ur sem nefnist Na’vi. Þeir sem til-
heyra honum búa í sátt og samlyndi
við umhverfi sitt, eru þrír metrar
á hæð og hafa ótrúlega hreyfigetu.
Til að mannfólkið geti komist í tæri
við þessa plánetu upp á eigin spýt-
ur hefur vísindahópur leiðangurs-
ins hannað sérstaka genabreytingu
sem gerir þá í hópnum líka Na’vi.
Fremstur í flokki er hermaðurinn
Jake Sully sem er lamaður fyrir
neðan mitti eftir skotárás en með
genabreytingunni er honum hins
vegar gert kleift að ganga upp á
nýtt. Sully heillast af þessum bláa
þjóðflokki og þegar Na’vi-menn
gera sér grein fyrir innrás mann-
fólksins undirbúa þeir vörn plánet-
unnar og Sully þarf að ákveða hvor-
um megin hann vill vera.
Cameron sem guð
Orðið Avatar er tekið úr sanskrít og
þýðir umbreyting guðlegrar veru í
manneskju. Það þarf ekki að koma
neinum kvikmyndaáhugamanni
á óvart að James Cameron skuli
einmitt hafa valið þetta orð. Hann
kemur nefnilega mörgum þannig
fyrir sjónir að vilja leika Guð hvað
hvíta tjaldið varðar. Enginn opin-
ber kostnaður hefur verið gefinn
upp í kringum Avatar en margir
sérfræðingar vestan hafs skjóta á
500 milljónir dala sem líklega upp-
hæð. Slíkar tölur eru náttúrlega
stjarnfræðilegar á íslenskan mæli-
kvarða miðað við núverandi gengi,
sem gerir kostnaðinn 63 milljarða
króna samkvæmt myntbreytu Arion
banka.
True Lies, önnur mynd Camerons,
fékk þann stimpil að vera „dýrasta
mynd kvikmynda sögunnar“ enda
fékk leikstjórinn að láni orrustu-
þotu frá bandaríska hernum. Leigan
á þeim er víst engir smá aurar. Brýr
voru þar að auki sprengdar og svo
var Arnold Schwarzenegger í aðal-
hlutverkinu. Ekki má heldur gleyma
stórmyndum á borð við The Abyss,
Terminator-kvikmyndunum tveim-
ur sem Cameron leikstýrði og svo
Aliens, sjálfstæðu framhaldi geim-
verukvikmyndar Ridley Scott frá
1978. Cameron kann þá list, senni-
lega manna best, að búa til alvöru
stórmyndir.
Titanic-æðið
En það var með Titanic sem Camer-
on varð hálfgerður kóngur, eins og
hann sagði reyndar sjálfur þegar
hann rústaði Óskarinn fyrir tólf
árum. Hún er í níunda sæti yfir
dýrustu kvikmyndir sögunnar og
Cameron breytti með henni hug-
myndum Hollywood um hvernig
mætti gera kvikmynd. Hann skaut
Kate Winslet og Leonardo DiCaprio
svo hátt upp á stjörnuhimininn að
þau verða alla ævi að ná sér þaðan
niður og hann varð sjálfur hálfgerð
goðsagnapersóna.
Titanic var Cleopatra nýrrar kyn-
slóðar. Skipslíkanið af þessu mikla
fleyi heillaði heimsbyggðina og þótt
flestir fái grænar bólur þegar þeir
heyra Celine Dion syngja My Heart
Will Go On er ekki hægt að horfa
framhjá þeirri staðreynd að Titanic
fékk hvorki á sig brotsjó né sigldi á
ísjaka heldur komst í örugga höfn
magnaðrar miðasölu. Áhorfendur
um allan heim greiddu tvo millj-
arða dala. Myntbreyta Arion banka
lýgur ekki: 253 milljarðar íslenskra
króna. Bara í miðasölu.
Tækninýjungar
Of langt mál færi í að telja upp
allar þær tækninýjungar sem
hafa verið þróaðar í kringum
Avatar. En nefna má að Cameron
skrifaði handritið að Avatar 1994
en sagðist ekki ætla að gera hana
fyrr en kvikmyndatækninni hefði
fleygt nægjanlega mikið fram til
að hægt væri að gera hana eins
og hann vildi. Cameron þróaði
sérstakar tökuvélar fyrir mynd-
ina og sviðsmynd sem gerir leik-
urunum kleift að komast í tæri við
tæknibrellurnar sjálfar. Myndin
verður sýnd í „venjulegri“ vídd og
svo þrívídd en þeir sem hafa séð
brot úr myndinni í báðum gæðum
segja það vera eins og að líkja
saman eplum við appelsínur; þrí-
víddarútgáfan sé svo sannarlega
eitthvað nýtt í kvikmyndatækn-
inni og sýni það og sanni að bíó-
heimurinn geti þróast áfram.
Og hvað svo, kynni einhver að
spyrja. Er möguleiki fyrir Camer-
on að seilast enn nær sólinni? Og
fer þá ekki fyrir honum eins og
Íkarusi. Cameron trúir því auð-
vitað ekki sjálfur, hann hefur
lýst því yfir að ef Avatar gangi
vel muni tvær framhaldsmyndir
líta dagsins ljós. Síðan hefur
hann verið að vinna að kvikmynd
af svipaðri stærðargráðu sem á
að rata í kvikmyndahús eftir tvö
ár. Allavega er hægt að bóka eitt:
Cameron mun ekki leikstýra róm-
antískri gaman mynd í litlu sveita-
þorpi með Jennifer Aniston og
Mark Ruffalo í aðalhlutverki, svo
mikið er víst.
Stjarnfræðilegur Cameron
AVATAR CAMERONS
Einhverjir kynnu að telja Cameron
hafa snert af mikilmennskubrjálæði,
hann lýsti því jú yfir sjálfur að hann
væri konungur heimsins á Óskarverð-
laununum um árið. Nýjasta kvikmynd
hans, Avatar, er mikið tækniundur,
nýrri kvikmyndatökutækni er beitt
sem ýmsir telja að muni breyta ásýnd
kvikmyndanna næstu áratugina.
NORDIC PHOTOS/AFP