Fréttablaðið - 17.12.2009, Blaðsíða 82
62 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Bókaupplestur er orðinn að árlegum viðburði
fyrir jól á skemmtistaðnum Boston. Upplesturinn
fer fram á laugardag og eru það rithöfundarnir
Oddný Eir Ævarsdóttir, Huldar Breiðfjörð, Kristín
Ómarsdóttir, Jón Karl Helgason og Snorri Ásmunds-
son sem munu lesa upp úr bókum sínum.
Listamaðurinn Haraldur Jónsson stendur fyrir
uppákomunni og er þetta þriðja árið sem slíkur
bókaupplestur fer fram. „Þetta er einstakt tækifæri
fyrir fólk til að koma og smakka á jólarjóma bók-
menntanna. Þetta er mjög fjölbreytt safn bóka sem
fjalla um ýmislegt misjafnt. Ein er ævisaga sem
gerist á þremur dögum, önnur gerist á heilsuhæli,
sú þriðja gerist í ónefndri borg sem erfitt er að stað-
setja á landakorti en allir þekkja, enn ein spáir um
nýja tíma og svo er þarna einnig frumleg ferðasaga
sem gerist í Færeyjum,“ útskýrir Haraldur og bætir
við að erfitt hafi verið að velja bækur úr því bóka-
flóði sem kemur út fyrir jólin. „Það er sagt að stund
ákvörðunarinnar sé augnablik sturlunar. Það var
erfitt að velja úr þeim stóra hópi rithöfunda sem eru
að gefa út fyrir jólin en ég reyndi að velja sögur sem
mér þóttu myndrænar í frásögn og sem falla ekki
endilega undir hið hefðbundna íslenska söguform.“
Haraldur hvetur alla bókaunnendur að mæta og
tekur fram að hægt verði að kaupa jólaglögg og
pipar kökur á meðan hlýtt er á lesturinn.
Upplesturinn hefst klukkan 16 á laugardag og fær
hver höfundur um fimmtán mínútur til upplestrar.
- sm
Bókalestur og jólaglögg
MENNINGARLEGUR Haraldur Jónsson listamaður segir að erfitt
hafi verið að velja úr hópi þeirra rithöfunda sem gefa út fyrir
jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Platan Grín skrín með gamanmálum
Ara Eldjárn kemur út í dag og verður
til í Eymundsson. Þar eru grínatriði
sem Ari hefur verið að troða upp með
á þessu ári, bæði í útvarpi og á sviði.
„Þarna eru nokkrir sketsar, meðal ann-
ars Bubbi á færibandi, og heilt uppi-
stand. Þar er fjallað um Björgvin G.
Sigurðsson, Búsáhaldabyltinguna, Hr.
Hafnarfjörð, leðurhomma, Bubba í Idol
1980, Þursaflokkinn í Playstation og
fleira,“ segir Ari. „Þetta er svo fersk
plata að nýjasti sketsinn er þriggja daga
gamall. Hann gengur undir nafninu
Jarðarför aldarinnar og fjallar um aug-
lýsingagerðarmann sem hefur unnið
hjá FM í tuttugu ár og fær það verkefni
að gera auglýsingu fyrir erfidrykkju
gamals manns. Ég sendi nokkrum
kunningjum mínum hann til skoðunar
og svo var hann allt í einu bara kom-
inn út um allt á netinu daginn eftir.
Sjálfum Svala á FM fannst hann
svo fyndinn að hann hringdi í mig
og bauð mér í viðtal. Ég er bara á
leiðinni.“
Ari er hluti af grínteyminu
Mið-Ísland, sem er það sniðug-
asta sem hefur verið að gerast
í grínmálum landsins lengi.
Ari er líka einn af þeim sem
skrifa Skaupið í ár og nú er
hann búinn að gefa út disk.
Hann hefur meira að segja
verið í Kastljósinu með
gamanefni sitt! Er hægt að
toppa þetta?„Þetta er alla-
vega eitthvað,“ segir hann,
„en ég held samt að 2010
verði meira ár. Ég ætla að
vera mjög virkur enda er mikið
af fólki sem er í góðu stuði
fyrir grín.“ Hópurinn Mið-
Ísland treður upp á Batterí-
inu (áður sadó-masóklúbbur-
inn Ýmir) á föstudagskvöldið
og þar koma fram ásamt Ara
þeir Bergur Ebbi, Dóri DNA
og Jóhann Alfreð auk þess
sem Þorsteinn Guðmundsson
og Hugleikur Dagsson verða
sérstakir gestir. Ari kynnir
svo Grín skrínið í verslun
Eymundsson í Kringlunni á
laugardaginn kl. 16. - drg
Ari Eldjárn gerir gríndisk
2010 VERÐUR ÁRIÐ Ari Eld-
járn úr hópnum Mið-Ísland
gefur út Grín skrín, geisla-
disk með gamanmálum
sínum.
Leikkonan Halle Berry hefur
unnið sem sjálfboðaliði í
kvennaathvarfi í Los Ang-
eles um nokkurt skeið.
Hún hefur einnig gerst
talsmaður Jenesse-sam-
takanna sem berjast gegn
heimilisofbeldi og styrkir
samtökin að auki fjárhags-
lega. „Ég varð vitni að
því þegar faðir minn
beitti móður mína
grófu ofbeldi og ég
gat ekkert gert til
að stöðva það. Faðir
minn sló móður mína
af engu tilefni. Ég veit
hvaða áhrif ofbeldi
sem þetta hefur á
fjölskyldur, ég hef
upplifað það sem
þessar konur eru að
ganga í gegnum,“
viðurkenndi Berry
sem fyrirgaf föður
sínum aldrei harð-
ræðið. Hún segir
móður sína enn
spyrja sig þeirrar spurningar
af hverju hún hafi ekki flúið
aðstæðurnar.
Berry er nú í sambandi
með kanadísku fyrirsæt-
unni Gabriel Aubry og
eiga þau saman tveggja ára
gamla dóttur, Nahla. Hún
segist vera hamingju-
söm en viðurkennir
að hafa ekki alltaf
valið réttu mennina
til að vera með. „Ég
valdi ranga menn.
Þeir voru ekki alltaf
góðir,“ sagði Berry,
sem missti heyrn á
öðru eyra eftir að
fyrrverandi kærasti
sló hana.
Talar gegn ofbeldi
TALSMAÐUR GEGN
OFBELDI Halle Berry
missti heyrn á öðru eyra
eftir barsmíðar fyrrverandi
kærasta.
> ÓTTAST FÆÐINGUNA
Christina Milian segist vera
stressuð fyrir fæðingu dótt-
ur sinnar og óttast helst að
hún fæðist fyrir tímann.
Söngkonan gengur nú með
sitt fyrsta barn og er sett-
ur fæðingardagur í febrúar á
næsta ári, en hún giftist upptöku-
stjóranum og lagahöfundinum The
Dream í september síðastliðnum.
Lindsay Lohan verður að sækja
áfengisfræðslutíma vikulega. Leik-
konan, sem er á skilorði vegna ölv-
unaraksturs, hefur nú verið dæmd
til að sækja fræðslu um áhrif
áfengis og verða fræðslutím-
arnir að vera algjört for-
gangsatriði hjá henni.
Dómurinn var kveð-
inn upp í dómsalnum í
Beverly Hills á þriðjudag
og samkvæmt slúður-
vefsíðunni TMZ sagði
dómarinn Marsha Revel
að það væri sama hvað
kæmi upp hjá Lohan,
hvort sem það tengd-
ist vinnu eða ekki þá
yrði hún að mæta í
tímana. Þá hefur leik-
konan tíma til 15. júlí
á næsta ári til að ljúka
sex mánaða fræðslu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Lindsay er tekin fyrir akstur undir
áhrifum. Árið 2007 var hún tvisv-
ar sinnum handtekin undir áhrif-
um kókaíns. Þá var hún einnig í
tvígang tekin fyrir að keyra
undir áhrifum áfengis.
Leikkonan hefur verið í
Indlandi upp á síðkastið þar
sem hún tekur upp mynd um
mansal þar í landi, en er nú
komin aftur til Bandaríkj-
anna þar sem hún ætlar að
eyða jólunum.
Dæmd á skólabekk
HEFUR SEX MÁNUÐI
Lindsay Lohan
verður að vera
búin að ljúka
sex mánuðum af
áfengisfræðslu fyrir
15. júlí á næsta ári.
Sex flytjendur fengu
Kraumsverðlaunin afhent
í gær. Meðal þeirra voru
hljómsveitirnar Bloodgroup
og Hjaltalín.
Um er að ræða sérstaka viður-
kenningu Kraumstónlistarsjóðs til
þeirra verka sem hafa þótt fram-
úrskarandi, frumleg og spennandi
í íslenskri plötuútgáfu á árinu.
Kraumur mun styðja við sigur-
plöturnar og jafnframt auka mögu-
leika flytjendanna á að koma þeim
á framfæri utan landsteinanna
með því að kaupa ákveðinn fjölda
af plötunum og dreifa til ýmissa
starfsmanna tónlistarbransans
erlendis.
Dómnefnd Kraumslistans er
skipuð sextán aðilum sem hafa
síðustu ár starfað við umfjöllun og
spilun á íslenskri tónlist á ýmsum
sviðum fjölmiðlunar. Formaður
dómnefndar er Árni Matthíasson
blaðamaður.
Tuttugu plötur voru tilnefndar
til Kraums-verðlaunanna í ár. Á
meðal hljómsveita og tónlistar-
manna sem hlutu ekki náð fyrir
augum dómnefndarinnar í þetta
sinn eru Dikta, Egill Sæbjörns-
son, múm og Feldberg. Á síðasta
ári unnu plötur Agent Fresco, FM
Belfast, Huga Guðmundssonar,
Ísafoldar, Mammúts og Retro
Stefson.
Fengu Kraumsverðlaunin
HARALDUR LEVÍ Haraldur Leví Gunnars-
son hjá Record Records-útgáfunni var á
meðal gesta.
VERÐLAUNAHAFAR Kraumsverðlaunin voru afhent í annað sinn gær við hátíðlega athöfn. Hér stilla verðlaunahafarnir sér upp
saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SIGURVEGARAR
Anna Guðný Guðmundsdóttir
- Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
Bloodgroup - Dry Land
Helgi Hrafn Jónsson - For the
Rest of My Childhood
Hildur Guðnadóttir - Without
Sinking
Hjaltalín - Terminal
Morðingjarnir - Flóttinn mikli