Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 84
64 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Fyrir þægu litlu frænk-
una: Tónlistin úr Söngva-
seið smellpassar í þennan
pakka.
„Við höfum ekki sungið saman í dágóðan tíma og
þetta er alveg æðislegt,“ segir leik- og söngkonan
Þórunn Lárusdóttur. Hún syngur ásamt systrum
sínum Ingibjörgu og Dísellu á jólatónleikum í Saln-
um í Kópavogi á föstudagskvöld. Þetta verða fyrstu
tónleikar þeirra síðan þær gáfu út plötuna Jólaboð
árið 2004, enda hefur Dísella verið búsett í Banda-
ríkjunum. „Núna var hún að syngja í Óperunni.
Það gekk svo vel að það voru aukasýningar, þannig
að við ákváðum að smella í tónleika fyrst það var
hægt,“ segir Þórunn. „Þetta er rosalega skemmti-
legt. Við höfum allar þroskast síðan við vorum að
vinna saman síðast. Dísella var ennþá í námi þá
og núna er hún orðin frábær óperusöngkona. Við
njótum góðs af því,“ segir hún og hlær. „Við erum
allar að vinna í okkar verkefnum en það er gaman
að hittast og syngja svolítið saman. Maður kemur
inn í allt aðra orku og það er bara gaman á æfing-
um hjá okkur.“ Þórunn leikur í söngleiknum Oliver!
sem verður frumsýndur á annan í jólum, Dísella
er önnum kafin í Íslensku óperunni og Ingibjörg
var að ljúka við síðasta jólaprófið sitt í lögfræði við
Háskólann í Reykjavík.
Þórunn lofar skemmtilegum jólatónleikum
á föstudagskvöld sem hefjast klukkan 21. „Við
syngjum fullt af jólalögum, bæði svolítið poppuð
og hátíðleg líka. Svo erum við með skemmtilegar
útsetningar sem eru svolítið ögrandi fyrir okkur.
Þetta er mjög skemmtilegt prógram og fólk á eftir
að labba út í góðu jólaskapi.“ - fb
Þrjár systur með jólatónleika
SAMRÝNDAR SYSTUR Systurnar Þórunn, Ingibjörg og Dísella
Lárusdætur halda jólatónleika í Salnum í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LEIÐARVÍSIR UM JÓLAPLÖTUFLÓÐIÐ
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Jólasveinninn getur keypt
Friendtex bangsa til styrktar
Krabbameinsfélaginu
hjá okkur á 1.000.- krónur
Opið í dag mán-fös kl. 11-18, lau 11-16
Útsala
30–50% afsláttur!
Mikið úrval að
fallegum fatnaði
Auglýsingasími
– Mest lesið
Fyrir kjaftfora
litla frænd-
ann: Gubbað
af gleði með
Tvíhöfða ætti
að hitta beina
leið í mark.
Fyrir fólkið sem þú vilt
ekki fá í heimsókn um
jólin: Tekið stærst upp í sig
með Serði Monster í falleg-
um gjafapappír
gerir kraftaverk.
Fyrir hárgreiðslu-
frændann og flug-
freyjufrænkuna:
Tvöfaldi pakkinn
Vinalög með Friðriki
Ómari og Jógvan er
upplagt sándtrakk í
næsta saumaklúbbi.
Fyrir óvirka
alkann: Sjald-
gæfir fuglar,
diskur Einars
Más Guðmunds-
sonar og
Gunnars Bjarna
úr Jet Black Joe,
er málið.
Fyrir fólkið sem er
„main stream“ en vill samt
vera kúl: Terminal með
Hjaltalín, IV með Hjálmum,
Get It Together með Diktu og
Dry Land með Bloodgroup
eru bæði „mainstream“ og kúl.
Fyrir þá sem
þola ekki tónlist:
Hvaða disk sem er,
bara muna að fá
skiptimiða á hann.
Fyrir ömmu og afa sem
áttu einu sinni heima í
torfbæ: Jólaplata Gerðar G.
Bjarklind og Ragnheiðar
Ástu eða heildarútgáfa
Savanna tríósins ætti að
gleðja.
Fyrir fólk sem
fór illa út úr
myntkörfulán-
um: 6. október
með Egó er pott-
þétt poppplata
sem fjallar um
kreppuna og allt
hitt.
Fyrir ofsamanninn
í fjölskyldunni:
Töfrandi jól með Friðriki
Karlssyni ætti að halda
verstu köstunum niðri.
Það er alveg óhætt að slá því föstu að árið í ár sé ágætis plötuár. Fjöldi platna helst óbreyttur þrátt fyrir kreppu og leið-
indi og breiddin er mikil. Margar frambærilegar plötur voru gefnar út, en fyrir ókunnuga getur þetta verið ansi mikill
frumskógur. Hér er því nokkurs konar leiðarvísir.
Fyrir pabbann sem
er þunnur á
aðfangadag:
Kampavín með
Helga Björns
eða Jól meiri
jól með Snigla-
bandinu eru
góðir diskar
fyrir þá
drykkfelldu.
SKIPTIMIÐI!Æ, VAR GJÖFIN KEYPT Í MORGUN?Þessari vöru fæst skipt til 4. janúar 2010.