Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 89
FIMMTUDAGUR 17. desember 2009 69
Leikararnir Jake Gyllenhaal
og Reese Whitherspoon eru
hætt saman. Tímaritið People
flutti fyrst fréttir af þessu fyrir
nokkrum vikum síðan en tals-
menn leikaranna vísuðu á bug
þeim sögusögnum. Nú hafa tals-
menn þeirra þó ákveðið að þegja
og þykir það staðfesta orðróminn.
„Þau þurftu bara tíma til að
vinna úr sínum málum. Þau voru
mikið í sundur og áttuðu sig á því
að sambandið hefði kannski runn-
ið sitt skeið. Það fjaraði bara út.
Þau skilja sem vinir og vildu fara
varlega í sakirnar vegna barna
Reese,“ var haft eftir heimildar-
manni.
Enn vinir
HÆTT SAMAN Samband Jake Gyllenhaal
og Reese Witherspoon hefur runnið sitt
skeið.
Leikkonan Keira Knightley óttast
að gagnrýnendur muni rakka hana
niður fyrir frumraun hennar á
leiksviði í West End í kvöld. Þar
fer hún með hlutverk í leikritinu
The Misanthrope. „Ég fer ekki í
þetta með neinar væntingar um
að ég fái góða dóma,“ sagði hin 24
ára Knightley. Hún hefur alltaf
ætlað sér að leika á sviði og ákvað
að slá til þegar tækifærið gafst.
„Ég hugsaði sem svo að ef
ég leik ekki núna á sviði
þá verð ég síðar meir of
hrædd til að prófa það.
Þannig að ég ákvað
að stökkva beint
í djúpu laugina,“
sagði hún.
Keira óttast
gagnrýni
KEIRA KNIGHTLEY
Leikkonan breska
óttast að fá slæma
gagnrýni fyrir hlutverk
sitt í The Misanthrope.
Notebook-leikkonan Rachel
McAdams er á forsíðu janúar-
heftis Vogue. Leikkonan þykir
afskaplega jarðbundin miðað við
margar aðrar Hollywood-stjörnur.
Í viðtali við Vogue segist hún
helst vilja eyða peningum sínum
í skemmtilega lífsreynslu. „Ég er
ekki gráðug. Ég kýs heldur að eyða
peningum mínum í góðan mat eða
skemmtileg ferðalög.“
Hún viðurkennir jafnframt að
hún eyði ekki miklum tíma í útlitið
og að henni hafi verið strítt í skóla
vegna þess að hún rakaði ekki á
sér fótleggina. „Móðir mín lagði
aldrei sérstaka áherslu á útlit
mitt þegar ég ólst upp. Hún leyfði
okkur að fullorðnast á okkar eigin
hraða. Hún þvingaði aldrei neinu
upp á mig. Þegar ég spurði móður
mína af hverju hún hafi ekki sagt
mér að raka hárin á fótleggjunum
svaraði hún einfaldlega: „Um leið
og þú byrjar á því verður ekki
aftur snúið.“
Rakaði ekki
fótleggina
JARÐBUNDIN Rachel McAdams hafði
ekki miklar áhyggjur af útlitinu á sínum
yngri árum.
Matthías Ægisson, yngsti bróðir Gylfa
Ægissonar, hefur gefið út sína fyrstu sóló-
plötu, Vegferð. Á plötunni eru tíu lög af
fjölbreyttum toga sem voru samin á 33 ára
tímabili.
„Ég hef ætlað mér að gefa þetta út í langan
tíma. Dóttir mín var búin að suða í mér að
gera eithvað með þetta,“ segir Matthías.
Hann vonast til að koma einu laganna, When
We Cross That Border sem trúbadorinn Halli
Reynis syngur, á framfæri hjá UNICEF,
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur
þegar komið eintaki af plötunni á Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur sem situr í stjórn UNICEF á
Íslandi. „Mig langar að koma laginu á fram-
færi erlendis í samstarfi við þau á Íslandi,“
segir hann. Lagið ætti að eiga vel við starf-
semi UNICEF enda fjallar það um börn sem
þurfa að glíma við hungursneyð.
Síðasta lag plötunnar, Mamma mín, samdi
Matthías til móður sinnar fyrir 33 árum
þegar hann var sextán ára. Hún fékk að heyra
það fyrst síðastliðinn föstudag á sjúkrahúsi
á Siglufirði þar sem hún hefur dvalið eftir að
húsið hennar brann til kaldra kola í byrjun
ársins. „Hún var mjög ánægð en hún var búin
að vita af þessu lagi lengi. Ég hef bara aldrei
gert neitt í því að koma því frá mér.“
Matthías hefur mest spilað fyrir sjálfan
sig í gegnum árin og gert lítið af því að
halda tónleika. Hann hefur eitthvað spilað
í jarðarförum með Páli Rósinkrans og vill
hann einmitt kynna fyrsta lag plötunnar,
Minn er hugur hljóður, fyrir fleirum sem
syngja í jarðarförum.
Hægt er að panta plötuna eða hlusta á
tóndæmi af henni á síðunni Mae-media.net. -fb
Býður Unicef að nota lagið sitt
MATTHÍAS ÆGISSON Yngsti bróðir Gylfa
Ægissonar hefur gefið út sína fyrstu
sólóplötu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA