Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 90
70 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Söngkonan María Magn-
úsdóttir situr ekki auðum
höndum þessa dagana. Auk
þess að hafa nýverið gefið
út sína fyrstu sólóplötu, Not
Your Housewife, stjórnar
hún gospelkór Jóns Vídal-
ín í Garðabæ og undirbýr
jólatónleika þeirra sem fara
fram í kvöld.
Gospelkór Jóns Vídalín hefur
verið starfandi undanfarin fimm
ár. Kórinn, sem heitir eftir Jóni
Vídalín biskup, er samstarfs-
verkefni Fjölbrautaskólans í
Garðabæ og Vídalínskirkju, en
nemendur skólans fá einingar
fyrir að vera í kórnum. „Í upphafi
voru nær eingöngu nemendur úr
FG í kórnum, en í dag er hægt að
segja að þetta sé kór ungs fólks
á aldrinum sextán til þrjátíu ára
því útskriftarnemendur vilja
alls ekki hætta og margir hafa
sótt um að komast í kórinn af
öllu Reykjavíkursvæðinu,“ segir
María sem hefur verið stjórnandi
kórsins frá því í fyrrahaust.
Í dag eru um 30 ungmenni í
kórnum og segir María þau hvert
öðru betri söngvara. „Það er svo
ótrúlegur kraftur í þessum kór.
Krakkarnir elska að syngja gos-
pel og þau kunna að gera það vel.
Þetta er án efa einn efnilegasti
gospelkór landsins, alveg með
þeim betri. Það er geggjað að
hafa svona fullan kór af einsöng-
vurum,“ útskýrir hún og segist
skemmta sér konunglega á kór-
æfingum. „Við æfum einu sinni
í viku og það er endalaust hleg-
ið. Þá er gert frekar mikið grín
á minn kostnað verð ég að segja,
en ég fíla það bara,“ segir hún og
brosir.
Aðspurð segir hún efnisskrá
kórsins mjög fjölbreytta. „Við
æfum „old school“ gospel, nýtt
og fönkaðara gospel og svo hef
ég undanfarið verið að mata þau
á popplögum sem ég útset til að
færa lagavalið nær samtíman-
um. Við erum að syngja eitt og
eitt lag frá tónlistarmönnum svo
sem Justin Timber lake, Fatboy
Slim og meira að segja 80’s-band-
inu Foreigner,“ segir hún.
Jólatónleikar kórsins fara fram
í sal Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ í kvöld og hefjast klukkan
20. „Hljómsveit spilar undir með
okkur í kvöld, en hana skipa þeir
Ingvar Alfreðsson á hljómborð,
Ingólfur Magnús son á bassa og
Brynjólfur Snorrason á tromm-
ur. Miðar eru seldir í anddyrinu á
aðeins 1.000 krónur, en ferming-
arbörn og börn tólf ára og yngri
fá frítt inn,“ segir María og von-
ast til að sjá sem flesta á tónleik-
unum í kvöld. alma@frettabladid.is
GOSPELKÓR TEKUR TIMBERLAKE
JÓLATÓNLEIKAR Jólatónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín fara fram í sal Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ í kvöld og hefjast klukkan 20. MYND/BERGLIND ANDRÉSDÓTTIR
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær eru þau Kate
Hudson og hafnaboltaleikarinn
Alex Rodriguez hætt saman.
Samkvæmt heimildum fjölmiðla
vestanhafs batt Alex, kallaður
A-Rod, enda á samband sitt við
Hudson þar sem honum þótti
hún of kröfuhörð þegar kom að
hafnaboltaleikjum hans með New
York Yankees. Þá er leikkonan
sögð hafa viljað láta stríla sig upp
fyrir hvern leik, heimtað sæti í
fremstu röð og spókað sig fyrir
framan myndavélarnar við hvert
tækifæri.
A-Rod er nú þegar sagður vera
farinn að leita á önnur mið, en
ekki er langt síðan hann skildi
við fyrrverandi eiginkonu sína
til þrettán ára. Þrátt fyrir sam-
bandsslitin eru þau Kate Hudson
sögð vera góðir vinir.
Kröfuhörð
kærasta
GÓÐIR VINIR Kate Hudson og A-Rod
eru sögð vera góðir vinir þrátt fyrir
sambandsslitin.
„Námið sem ég var í tvinnar
saman ljósmyndun og borgarskipu-
lag, það er að segja hvernig fólk
nýtir almenningsrými á mismun-
andi vegu og fleira í þeim dúr. Ég
er menntaður mannfræðingur en
hef alltaf haft áhuga á ljósmynd-
un líka og fannst skemmtilegt
að blanda ljósmyndun saman við
félags- og mannfræðilegar rann-
sóknir,“ útskýrir Kolbrún Vaka
Helgadóttir, sem lauk nýverið
meistaranámi við Goldsmiths-
háskólann í London.
Kolbrún og bekkjarfélagar
hennar héldu ljósmyndasýningu
eftir útskriftina þar sem Kolbrún
sýndi verk úr lokaverkefni sínu.
„Þetta var ekki partur af náminu
heldur ákváðu nokkrir úr bekkn-
um bara að halda sýningu saman.
Ég sýndi myndir sem ég hafði
tekið fyrir meistaraverkefni mitt
sem fjallaði um sundlaugamenn-
inguna á Íslandi og borgarbúann
sem fer í sund til að losna undan
skarkala borgarinnar. Myndirnar
voru teknar í náttúrulegum laug-
um víðs vegar um Ísland.“ Sýning-
in stóð yfir í tvær vikur og var hún
vel sótt að sögn Kolbrúnar.
Aðspurð segir hún myndirnar
hafa vakið nokkra athygli og
fólki fannst íslenska sundlauga-
menningin bæði forvitnileg og
skrýtin. „Þetta er ekki hlutur
sem menn gera í Bretlandi. Fólk
skildi ekki af hverju við vorum
að þessu og sumir áttuðu sig ekki
heldur á því að laugarnar væru
heitar.“ Kolbrún segist upphaf-
lega hafa ætlað að mynda sund-
laugarnar í borginni en hætti við
þar sem fólk kunni ekki við það að
vera myndað á sund skýlum. „Mér
fannst auðveldara að taka myndir
í náttúrulaugunum, þá sat ég bara
ofan í lauginni með myndavélina
og smellti af. Þar sem flestar
náttúru laugarnar eru vinsælir
ferðamannastaðir þótti eðlilegra
að taka myndir þar og fólk kippti
sér lítið upp við þetta.“
Innt eftir því hvort hún ætli að
halda sýningu hér heima segist
Kolbrún ekki útiloka þann mögu-
leika. „Myndirnar eru á leið til
landsins og það væri gaman að
halda sýningu þegar þær koma.
Annar hluti af lokaverkefninu
mínu var ljósmyndabók sem mig
langar líka að vinna áfram með.
Annars lít ég á mig sem mann-
fræðing með myndavél, ég vil
fyrst og fremst skrásetja daglegt
líf en ekki taka listrænar myndir
eða stúdíómyndir,“ segir Kolbrún
að lokum. - sm
Mannfræðingur
með myndavél
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
BAÐMENNING Á ÍSLANDI
Kolbrún Helgadóttir lærði ljósmyndun og borgarmenningu í Goldsmiths-
háskóla í London. Hún hélt ljósmyndasýningu ásamt bekkjarfélögum sínum þar
sem hún sýndi myndir sínar af íslenskum náttúrulaugum.