Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 96

Fréttablaðið - 17.12.2009, Side 96
76 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Framherjinn Guðmundur Pétursson er enn á mála hjá KR þó svo að hann hafi lýst því yfir að hann vilji komast til Breiðabliks þar sem hann var á láni síðasta sumar. Guðmundur hefur tjáð KR- ingum að hann vilji losna frá félag- inu og semja við Breiðablik. Blik- arnir vilja ólmir kaupa Guðmund og hafa þegar gert tvö tilboð í leik- manninn en án árangurs. „KR-ingar lifa í einhverjum draumaheimi og það sem þeir vilja fá fyrir hann er talsvert meira en við erum til í að borga fyrir hann. Þeir standa í vegi fyrir því að strákurinn fái að fara,“ segir Einar Kristján Jónsson, formaður knatt- spyrnudeildar Breiðabliks. „Leik- maðurinn hefur úrræði í málinu, hann getur skotið þessu til gerðar- dóms KSÍ en ég veit ekki hvort hann gerir það. Það er hans mál.“ Guðmundur sjálfur segir það vel koma til greina að skjóta málinu til gerðardóms fái hann ekki úrlausn sinna mála. „Ég er að skoða það mál. Við sjáum hvað setur í þeim efnum fljótlega,“ sagði Guðmundur, sem er ekki sáttur við að vera fastur hjá KR þegar hann vill spila með Breiðablik. „Ég er ekki sáttur við KR. Ég fæ mest lítið að taka þátt í þessu og veit voða lítið. Ég hef tjáð KR- ingum að ég vilji fara til Blika. Rúnar Kristinsson [yfirmaður knattspyrnumála hjá KR] sagðist þurfa að funda með stjórninni og hann yrði síðan í sambandi. Ég hef voða lítið heyrt í honum síðan en þetta var í haust,“ segir Guðmund- ur, sem byrjaði aftur að æfa með KR fyrir þrem vikum. „Miðað við ég hef ekki verið not- aður í þrjú ár hjá KR er ég hissa að þeir séu að setja háan verðmiða á mig,“ sagði Guðmundur, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við KR. Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segir að tvær hliðar séu á öllum málum. „Eins og staðan er í dag erum við aðeins með Björgólf í framlínunni sem og Guðmund. Hann ætti því að fá fullt af tækifærum eins og stað- an er í dag,“ sagði Kristinn en eru KR-ingar að biðja um allt of mik- inn pening fyrir leikmanninn? „Okkur finnst við ekki vera að setja of hátt verð fyrir hann. Við þurfum ekki að selja hann. Ef Blik- arnir virkilega vilja fá hann þá hljóta þeir að greiða það sem þarf,“ sagði Kristinn Kjærnested. - hbg KR er búið að hafna tveim tilboðum Breiðabliks í Guðmund Pétursson: Ekki sáttur við KR og íhugar að fara með málið fyrir gerðardóm GOTT AÐ BÚA Í KÓPAVOGI Guðmundi leið vel í Kópavoginum og þar vill hann vera áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL EM-HÓPURINN Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson Kadetten Hreiðar Guðmundsson Emsdetten Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Ólafur H. Gíslason Haugaland Aðrir leikmenn: Einar Ingi Hrafnsson Nordhorn Kári Kristjánsson Amicitia Zürich Róbert Gunnarsson Gummersbach Vignir Svavarsson Lemgo Guðjón Valur Sigurðsson RN Löwen Sturla Ásgeirsson Dusseldorf Arnór Atlason FCK Gunnar Berg Viktorsson Haukar Ingimundur Ingimundarson Minden Logi Geirsson Lemgo Ólafur Guðmundsson FH Sigurbergur Sveinsson Haukar Aron Pálmarsson Kiel Hannes Jón Jónsson Burgdorf Ragnar Óskarsson Dunkerque Snorri Steinn Guðjónsson RN Löwen Sverre Jakobsson Grosswallstadt Ásgeir Örn Hallgrímsson GOG Heiðmar Felixson Burgdorf Ólafur Stefánsson RN Löwen Rúnar Kárason Fuchse Berlin Alexander Petersson Flensburg Bjarni Fritzson FH Þórir Ólafsson Lubbecke HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari hefur skilað inn lista yfir þá 28 leikmenn sem koma til greina hjá íslenska landsliðinu fyrir EM í Austurríki í janúar næstkomandi. Guðmundur verður svo næst að tilkynna sextán manna leik- mannahóp kvöldið áður en mótið hefst hinn 19. janúar næstkom- andi. Hægt verður að bæta við fleiri leikmönnum ef Ísland kemst áfram í milliriðla og jafn- vel undanúrslit ef þörf er á. Hann má þó ekki velja neinn leikmann sem ekki er á þeim lista sem skilað var inn til Evrópska handknattleikssambandsins nú fyrr í vikunni. - esá Íslenska handboltalandsliðið: 28 manna hópur valinn LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Á erfitt verkefni fyrir höndum að velja endanlegan hóp. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Eyþóri Þrastar- syni og Sonju Sigurðardótt- ur tókst báðum að fylgja eftir góðu ári 2008 með enn betra ári 2009. Þau fengu líka bæði stóra viðurkenningu á árlegri sam- komu Íþróttafélags fatlaðra sem fór eins og venjulega fram á Hótel Sögu í boði Radisson SAS hótelsins. „Ég er mjög sáttur með að fá þessi verðlaun. Fyrri hluti árs- ins var mjög góður en ég var í svolitlum vandræðum í seinni hlutanum en það virðist þó hafa gengið ágætlega,“ segir Eyþór Þrastarson sem setti eitt Evrópu- met og fjögur Íslandsmet á árinu auk þess að vinna til silfurverð- launa í 400 m skriðsundi. Eyþór var eini Íslendingurinn sem vann til verðlauna á Evrópumeistara- móti fatlaðra. EM á Íslandi hápunkturinn Eyþór er fæddur árið 1991 en hann hefur verið blindur frá fæð- ingu og keppir í flokki S11. Eyþór syndir fyrir Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, ÍFR og Sundfélagið Ægi. „EM á Íslandi var hápunktur- inn. Þetta var rosalega flott mót og þetta var það langskemmti- legasta sem var í gangi hjá mér á árinu. Ég held að ég sé því ánægð- astur með það mót því það var mjög sætt að vinna verðlaunin,“ segir Eyþór sem var duglegur að bæta gömul met Birkis Rúnars Gunnarssonar á árinu. Í maí tók Eyþór þátt á Opna þýska meistaramótinu í sundi þar sem hann gerði sér lítið fyrir og setti Evrópumet í flokki blindra í 800 m skriðsundi. „Ég hef stefnt að því lengi að taka metin hans Birkis Rúnars og það var betra að gera það fyrr en síðar. Mér tókst að synda nógu hratt til þess að ná metunum í ár,“ segir Eyþór. Eyþór fagnar öllum verðlaununum sem hann hefur unnið á árinu en viðurkennir að metin standi upp úr. „Metin eru bestu bitarnir. Það er alltaf mjög sætt að ná metum. Metin eru betri en verðlauna- peningarnir. Ég er samt ekki að gera lítið úr verðlaunum,“ segir Eyþór. Hann ætlar að gera enn betur á næsta ári. „Næsta stóra mótið á dagskrá hjá mér er heims- meistaramótið í Hollandi í ágúst á næsta ári. Ég er ekki byrjaður að skipuleggja dagana fram að því en ég er ekki að sjá fyrir mér að ég fái mikið sumarfrí.“ Mjög stór stund fyrir mig „Þetta er mjög stór stund fyrir mig og þetta gefur mér mikið. Þetta er mitt besta ár á ferlinum,“ segir Sonja Sigurðardóttir og gleðin leyndi sér ekki. „Ég held ég sé á lífi ennþá,“ bætir hún við í léttum tón. Sonja glímir við hrörnunarsjúkdóm og minnkandi vöðvastyrk sökum hans en heldur samt ótrauð áfram æfingum og keppni og stefnir markvisst að betri árangri og að ná enn lengra í íþrótt sinni. „Árið í fyrra var dálítið slappt enda var ég búin að vera veik. Það var því gaman að geta staðið sig svona vel í ár,“ segir Sonja. Í febrúar vann Sonja til gull- verðlauna á Malmö Open-mótinu í Svíþjóð og í apríl vann hún til tvennra gullverðlauna á Íslands- móti ÍF í 50 metra laug. Sonja stóð sig með líka miklum ágæt- um á Evrópumeistaramóti fatl- aðra í sundi sem fram fór hér á landi. „Hápunkturinn var að vera á EM á Íslandi. Það var líka mjög gaman að vinna gullverðlaunin í Malmö,“ segir Sonja og þrátt fyrir að sjúkdómurinn geri henni allt- af erfiðara fyrir stefnir hún á að synda mikið á næsta ári. „Ég stefni á að komast á HM í Hollandi í ágúst. Til þess að komast þangað þá þarf ég bara að synda og synda og ekki verða veik. Ég er bjartsýn á að ná því,“ segir Sonja full af eldmóð. „Ég er bara orðin Kristín 2,“ segir Sonja í gríni spurð hvort hún ætli að vinna þessi verðlaun árlega en Kristín Rós Hákonar- dóttir gerði fyrir nokkrum árum en þetta var annað árið í röð sem Sonja er valin Íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra. „Ég ætla líka að keppa á Reykjavík International og svo förum við vonandi út að keppa ef kreppan leyfir. Það skiptir miklu máli að komast út og keppa við þá sem eru í sama fötlunarflokki og ég. Hér heima er minna um krakka í S5 þannig að ég er þá meira að keppa bara við sjálfan mig og klukkuna. Það er skemmti- legra að fá alvörukeppni.“ Jóna fékk Guðrúnarbikarinn Handhafi Guðrúnarbikarsins fyrir árið 2009 er Jóna B. H. Jóns- dóttir en hún hefur verið virkur félagi í ÍFR, Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík í fjölmörg ár. Fyrst sem keppandi í boccia, síðan sem aðstoðarmaður á æfingum og í ferðum á vegum ÍFR. Guðrúnarbikarinn er bikar sem gefinn var ÍF árið 2000 af Össuri Aðalsteinssyni, félagsmanni í Lionsklúbbnum Esju til minning- ar um eiginkonu hans Guðrúnu Pálsdóttur. Bikarinn skal afhendast konu þeirri sem hefur starfað sérlega vel í þágu fatlaðs íþróttafólks. ooj@frettabladid.is Árið þeirra Eyþórs og Sonju Sundfólkið Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir voru í gær valin Íþróttamaður og Íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra en bæði voru þau að fá þessa útnefningu annað árið í röð. GLÆSILEGT ÁR Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir voru í gær valin íþróttafólk ársins úr röðum fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Rapparinn Diddi Fel á útopnu Sólmundur Hólm gefur góð jólaráð Tara Reid situr fyrir í Playboy Blóðugt stríð farsímaframleiðenda Hollywood-skilnaðir hlaupa á milljörðum Nýtt fylgirit Fréttablaðsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.