Fréttablaðið - 17.12.2009, Síða 98
78 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Allir knattspyrnuáhuga-
menn muna eftir því þegar Lee
Sharpe kom til Grindavíkur um
árið. Suðurnesjamenn voru ekki
einir með stóra drauma í íslenska
boltanum þegar góðærið stóð sem
hæst.
Blikar föluðust nefnilega eftir
franska markverðinum Fabien
Barthez sumarið 2007. Þá stóð
Hjörvar Hafliðason í marki Blika
en hann spilaði fyrstu leiki móts-
ins meiddur og voru Blikar því að
leita að arftaka fyrir Hjörvar.
„Ég held að Ólafur Kristjánsson
hafi komið með þessa hugmynd.
Við gerðum alvöru úr málinu og
höfðum samband við umboðsmann
Barthez án þess að vonast eftir
miklu. Viðtökurnar komu okkur á
óvart. Þeir nefndu upphæð og við
vorum búnir að útvega féð,“ sagði
Einar Kristján Jónsson, formaður
knattspyrnu deildar Breiðabliks.
Barthez hafði í lok apríl 2007 lagt
skóna á hilluna og var því laus
allra mála er Blikar höfðu sam-
band. Blikarnir höfðu stuðning
útrásarvíkinga í þessu verkefni
en kaup á Barthez í fjóra mánuði
voru skiptimynt fyrir þá á þess-
um tíma.
„Það stóð svo til að hann kæmi
að skoða aðstæður hjá okkur. Áður
en af því varð komu fram hinar
og þessar kröfur sem við gátum
ekki staðið undir. Hann vildi til að
mynda búa á hóteli allan tímann.
Það varð því ekkert af þessu,“
sagði Einar Kristján en Blikar
sömdu í staðinn við Danann Casper
Jacobsen.
„Ég vissi að þeir hefðu reynt að
fá mann af mínu kaliberi í markið.
Þó að Barthez hafi ekki haft sömu
hæð og nærveru í teignum og ég
hafði verður að viðurkennast að
hann var betri spyrnu maður en
ég,“ sagði Hjörvar Hafliðason létt-
ur er honum voru tjáð þessi tíðindi.
- hbg
Blikar voru næstum búnir að fá einn frægasta markvörð veraldar til liðs við sig sumarið 2007:
Barthez átti að leysa Hjörvar af í marki Blika
SVONA HEFÐI HANN LITIÐ ÚT Á þessari
samsettu mynd Rósu Jóhannsdóttur
sést hvernig Barthez hefði tekið sig út í
búningi Blika.
FÓTBOLTI Guy Lacombe, þjálfari
Monaco, segir að félagið hafi gert
allt sem í sínu valdi stendur til að
leyfa Eiði Smára að aðlagast líf-
inu í frönsku úrvalsdeildinni.
Eiður Smári kom til Monaco
frá Barcelona í upphafi leiktíð-
ar en hefur ekki náð sér á strik.
Lacombe valdi hann ekki í leik-
mannahóp Monaco fyrir leik liðs-
ins gegn Stade Rennais í frönsku
úrvalsdeildinni í gær.
„Auðvitað bárum við miklar
væntingar til hans en svona hefur
þetta bara verið. Við munum
leysa þetta vandamál hægt og
rólega en hann þarf sérstaklega
að vinna í sínum málum,“ er haft
eftir Lacombe í frönskum fjöl-
miðlum.
„Félagið hefur gert allt sem í
valdi þess stendur fyrir hann. En
franska úrvalsdeildin er öðruvísi
en hann bjóst við. Það hefur oft
gerst að erlendir leikmenn hafa
valdið vonbrigðum í Frakklandi,“
bætti hann við. - esá
Eiður ekki í hóp Monaco:
Höfum gert allt
fyrir Eið Smára
EIÐUR SMÁRI Hefur átt erfitt uppdráttar
í Frakklandi. MYND/HEIMASÍÐA AS MONACO
Enska úrvalsdeildin:
Burnley-Arsenal 1-1
0-1 Cesc Fabregas (7.), 1-1 Graham Alexander,
víti (28.)
Chelsea-Portsmouth 2-1
1-0 Nicolas Anelka (23.), 1-1 Frederic Piquionne
(51.), 2-1 Frank Lampard, víti (79.)
Liverpool-Wigan 2-1
1-0 David Ngog (9.), 2-0 Fernando Torres (79.),
2-1 Charles N´Zogbia (91.).
Tottenham-Man. City 3-0
1-0 Niko Kranjcar (37.), 2-0 Jermain Defoe (54.),
Niko Kranjcar (90.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
STAÐAN:
Chelsea 17 13 1 3 42-14 40
Man. United 17 12 1 4 37-14 37
Arsenal 16 10 2 4 41-20 32
Aston Villa 17 9 5 3 28-14 32
Tottenham 17 9 3 5 38-22 30
Liverpool 17 8 3 6 34-23 27
Birmingham 17 8 3 6 18-17 27
Man. City 16 6 8 2 29-24 26
IE-deild kvenna:
KR-Keflavík 70-55
Stig KR: Unnur Tara Jónsdóttir 15, Jenny Pfeif-
fer-Finora 12, Hildur Sigurðardóttir 11, Signý
Hermannsdóttir 11, Margrét Kara Sturludóttir 9,
Guðrún Þorsteinsdóttir 6, Helga Einarsdóttir 5.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 22, Kristi
Smith 14, Marín Rós Karlsdóttir 9, Bryndís Guð-
mundsdóttir 4, Rannveig Randversdóttir 2, Svava
Stefánsdóttir 2, Hrönn Þorgrímsdóttir 1.
Haukar-Hamar 64-65
Stig Hauka: Heather Ezell 32, Ragna Brynjarsdótt-
ir 16, Helena Hólm 5, Guðrún Ámundadóttir 4,
Telma Fjalarsdóttir 4, Margrét Hálfdánardóttir 3.
Stig Hamars: Koren Schram 26, Sigrún Ámunda-
dóttir 24, Hafrún Hálfdánardóttir 6, Kristrún
Sigurjónsdóttir 5, Guðbjörg Sverrisdóttir 2.
Njarðvík-Valur 67-54
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 28, Ólöf Helga
Pálsdóttir 11, Heiða Valdimarsdóttir 10, Anna
Ævarsdóttir 8, Sigurlaug Guðmundsdóttir 3,
Auður Jónsdóttir 3, Helga Jónasdóttir 2.
Stig Vals: Berglind Ingvarsdóttir 15, Hrund
Jóhannsdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 11, Birna
Eiríksdóttir 6, Kristín Óladóttir 3.
Grindavík-Snæfell 81-54
Stig Grindavíkur: Michele DeVault 27, Petrúnella
Skúladóttir 15, Íris Sverrisdóttir 12, Helga Hall-
grímsdóttir 10, Berglind Magnúsdóttir 10, Alma
Garðarsdóttir 5, Jovana Lilja Stefánsdóttir 2.
Stig Snæfells: Gunnhildur Gunnarsdóttir 17,
Unnur Ásgeirsdóttir 9, Ellen Högnadóttir 9, Björg
Einarsdóttir 7, Sara Andrésdóttir 6, Helga Björg-
vinsdóttir 4, Hrafnhildur Sævarsdóttir 2.
Evrópudeildin:
Hertha Berlin-Sporting Lisbon 1-0
Heerenveen-Ventspils 5-0
Basel-Fulham 2-3
Frei, Streller - Zamora 2, Gera.
CSK Sofia-AS Roma 0-3
- Cerci 2, Scardina.
Panathinaikos-Dinamo Búkarest 3-0
Sturm Graz-Galatasaray 1-0
Club Brugge-Toulouse 1-0
Partizan Belgrad-Shaktar Donetsk 1-0
CFR Cluj-PSV Eindhoven 0-2
Sparta Prag-FC Copenhagen 0-3
Athletic Bilbao-Werder Bremen 0-3
Nacional-Austria Vienna 5-1
ÚRSLIT
HANDBOLTI Handknattleiksdeild
Víkings fékk í gær 50 þúsund
króna sekt vegna hegðunar for-
manns deildarinnar, Trausta
Leifssonar.
Aganefnd HSÍ kvað upp dóm-
inn og segir í honum að Trausti
hafi sýnt af sér vítaverða fram-
komu gagnvart dómurum eftir
leik Víkings og Selfoss síðastlið-
inn föstudag.
Víkingi er heimilt að skjóta
þessum úrskurði til stjórnar HSÍ
sem þarf þá að úrskurða í málinu
innan viku. - hbg
Víkingur fékk háa sekt:
Vítaverð fram-
koma formanns
FÓTBOLTI Gamla goðsögnin Paul
Gascoigne er enn í vandræðum
með bakkus.
Hann hefur nú verið sektaður
fyrir að vera með drykkjulæti á
götum Newcastle snemma morg-
uns.
Gazza var handtekinn og sett-
ur í varðhald. Honum var síðar
sleppt með sekt.
Landsliðsmaðurinn fyrrver-
andi hefur einnig átt við andleg
vandamál að stríða og var í tví-
gang á síðasta ári lagður inn á
geðsjúkrahús. - hbg
Gascoigne í vondum málum:
Sektaður fyrir
drykkjuskap
KÖRFUBOLTI KR-konur eru komnar
aftur á sigurbraut í kvennakörf-
unni eftir fimmtán stiga sigur á
Keflavík, 70-55, í DHL-Höllinni í
gær. Það má segja að frábær liðs-
vörn og sameinað átak í sókninni
hafi lagt grunninn að sigrinum.
„Þetta vorum við í dag,“ sagði
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði
KR eftir leikinn en hún gat nú beitt
sér á fullu á ný eftir að hafa verið
í basli með bakið á sér í síðustu
leikjum. „Þetta var mjög mikil-
vægur sigur sem kemur okkur
vonandi á sporið aftur. Það var
vörnin sem klikkaði í bikartapinu
á móti Hamri og núna vorum við
að spila klassavörn. Sparkið sem
við fengum fyrir tíu dögum og vit-
andi það að við erum að fara inn í
langt jólafrí gerði það að verkum
að það komu allar tilbúnar í þenn-
an leik,“ sagði Hildur. Hildur var
einn af fimm leikmönnum KR-liðs-
ins sem skoruðu á milli 9 til 15 stig
en atkvæðamest var Unnur Tara
Jónsdóttir sem átti flotta innkomu
af bekknum.
KR-liðið tók frumkvæðið í byrj-
un og var 18-10 yfir eftir fyrsta
leikhlutann. Keflavíkurliðið átti
nokkra spretti sem hélt því inni í
leiknum en liðið varð fyrir áfall
þegar 6 mínútur og 22 sekúndur
voru eftir af öðrum leikhluta þegar
Bryndís Guðmundsdóttir meiddist
á ökkla. Staðan var þá 22-15 fyrir
KR og Bryndís var búin að taka 10
fráköst. KR vann næstu sex mín-
útur 11-1 og var á endanum með
16 stiga forskot í hálfleik, 35-19.
„Lífið er bara þannig að það á að
koma maður í manns stað en það
gerði það ekki. Við misstum trúna
um leið og hún fór út af,“ sagði Jón
Halldór Eðvaldsson, þjálfari Kefla-
víkur, en hann hefur ekki áhyggjur
af meiðslum Bryndísar þó að hún
hafi ekki spilað meira í leiknum.
Birna Valgarðsdóttir skoraði
9 stig á fyrstu 4 mínútum seinni
hálfleiks og Keflavík kom mun-
inum niður í níu stig, 40-31. Nýju
þjálfarar KR-liðsins tóku þá leik-
hlé og liðið svaraði með því að
vinna næstu þrjár mínútur 12-0.
Sigur KR var aldrei í hættu eftir
það.
„Þær voru bara skíthræddar við
þær. KR-stelpurnar eru náttúrlega
búnar að vinna alla leiki nema einn
í vetur og stelpurnar voru bara
skíthræddar við þær. Það sáu það
allir sem þekkja liðið mitt að þetta
er ekki það sem við erum þekktar
fyrir. Við spiluðum lélega vörn og
fengum sem dæmi mjög fáar villur
í fyrrihálfleik sem er mjög óeðli-
legt. Það segir mér sem þjálfara
að við vorum ekki að spila nógu
grimma vörn. Þær eru að yfir-
dekka okkur og við þorum ekki að
bregðast við því. Ég held að ég hafi
talið rétt að við höfum verið með
sex loftbolta í fyrri hálfleik,“ sagði
Jón Halldór.
Birna Valgarðsdóttir vaknaði
ekki fyrr en í seinni hálfleik og
skoraði þá 20 af stigum sínum en
það hafði líka mikil áhrif að Guð-
rún Gróa Þorsteinsdóttir klippti
nánast Kristi Smith út úr leiknum.
Kristi skoraði flest öll stigin sín
þegar Gróa sat á bekknum. - óój
KR-konur unnu ellefta sigurinn í röð í Iceland Express deild kvenna í gær er Keflavík kom í heimsókn:
Sameinað átak kom KR aftur á sigurbrautina
BARÁTTA Ekkert var gefið eftir í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Chelsea mátti hafa veru-
lega fyrir sigrinum gegn Her-
manni Hreiðarssyni og félögum í
Portsmouth í gær. Botnliðið beit
hraustlega frá sér og var ekki
fjarri því að taka stig af toppliðinu.
Avram Grant sneri aftur á Stam-
ford Bridge í fyrsta skipti eftir að
hann var rekinn frá Chelsea í gær
og honum var klappað lof í lófa af
stuðningsmönnum félagsins.
Nicolas Anelka kom Chelsea yfir
á 23. mínútu og þannig stóðu leikar
í hálfleik. Portsmouth byrjaði síð-
ari hálfleik hraustlega og jafnaði á
51. mínútu. Aukaspyrna liðsins fór
í andlit varnarmanns Chelsea og
endaði síðan fyrir fótum Piquionne
sem gat ekki annað en skorað.
Chelsea gaf nokkuð eftir í kjöl-
farið og Portsmouth fékk færi á að
komast yfir. Það var fátt sem benti
til þess að Chelsea væri að fara að
gera neitt þegar Wilson braut afar
klaufalega á Ivanovic. Vítaspyrna
var dæmd sem Lampard skoraði
örugglega úr. 2-1 og Chelsea komið
aftur á sigurbraut.
Cesc Fabregas kom Arsenal yfir
á 7. mínútu gegn Burnley eftir
ævintýralegan klaufaskap í vörn
Burnley. Héldu margir að Arsenal
myndi valta yfir nýliðana í kjölfar-
ið en það átti ekki að verða.
Thomas Vermaelen braut klaufa-
lega af sér á 28. mínútu. Hin
örugga vítaskytta Graham Alex-
ander steig á punktinn og skor-
aði með því að skjóta boltanum í
mitt markið. Fleiri mörk voru ekki
skoruð og Arsenal missti því af
dýrmætum stigum.
Þungu fargi var létt af Rafa
Benitez, stjóra Liverpool, þegar
Liverpool náði loksins að landa
sigri er Wigan kom í heimsókn á
Anfield. David Ngog kom Liver-
pool yfir með laglegu skallamarki
og Fernando Torres afgreiddi leik-
inn á 79. mínútu er hann skoraði
af harðfylgi eftir að hafa klúðr-
að dauðafæri. Charles N´Zogbia
minnkaði muninn í uppbótartíma
en Wigan var aldrei nálægt því að
stela stigi.
Hið óútreiknanlega lið Totten-
ham gerði sér lítið fyrir og valtaði
yfir Man. City, 3-0. Niko Kranjcar
var með tvö góð mörk og Jermain
Defoe skoraði þriðja markið.
henry@frettabladid.is
Aftur á beinu brautina
Eftir fjóra leiki í röð án sigurs tókst Chelsea að vinna leik. Lundúnaliðið lagði
þá Portsmouth, 2-1, og náði um leið þriggja stiga forskoti á toppi ensku deildar-
innar. Liverpool vann fínan sigur á Wigan en Arsenal missteig sig gegn Burnley.
HERMANN Á FERÐINNI Hermann Hreiðarsson átti ágætan leik með Portsmouth í
gær. Hann er hér í baráttunni við Branislav Ivanovic. NORDIC PHOTOS/AFP